Spakmæli dagsins

Að hafa enga skoðun er einnig eins konar ákvörðun,

Því að hafi maður sjálfur engar skoðanirgefur

hann skoðunum og atferli annarra meira vægi.

(Sören Kirkegaard)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll Jakob. Þetta er meiri spekin  Þýðir þetta kannski að maður skipti minna máli en aðrir. Ég er sammála því að maður á alltaf að leyfa öðrum að hafa sínar skoðanir og virða þær, en að hafa engar skoðanir finnst mér ekki gott. Svo er það annað mál hvort maður þarf alltaf að vera að flagga sínum skoðunum. Bestu kveðjur til þín  Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 17.4.2009 kl. 19:31

2 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Þetta er alveg rétt Jakob. Ég held að sem þjóðfélagsþegn hafi maður ákveðna ábyrgð að hafa skoðun. Sumir geta ekki virta annarra manna skoðun en þannig er það nú bara almennt í lífinu :) Við bloggararnir eru náttúrulega atvinnumenn í skoðunum og elskum okkar skoðanir - eðlilega enda eru þær réttar.

Guðmundur St Ragnarsson, 17.4.2009 kl. 19:37

3 Smámynd: TARA

Ég er mjög hrifin af spakmælum og orðatiltækjum...

TARA, 18.4.2009 kl. 00:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband