Hækkun á eldsneyti

 Eldsneytisverð hefur hækkað. Skeljungur hækkaði í gær lítrann af bensíni um 5 krónur og lítrann af dísilolíu um 4 krónur. Kostar bensínlítrinn í sjálfsafgreiðslu nú 155,10 krónur og dísilolíulítrinn 159,60 krónur.

Hvernig er það með þessi blessuð olíufélög fylgjast þau ekkert með í olíuheiminum.  Þegar olía er að lækka á heimsmarkaði þá er hún hækkuð hér.


mbl.is Eldsneytisverð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ThoR-E

Fjand$%#$% hirði þessa hundingja!

 Þeir hafa ekki einusinni fyrir því að koma með afsakanirnar fyrir hækkununum.

Ég er brjálaður!

ThoR-E, 18.4.2009 kl. 13:59

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þeir eru hættir að nenna því.

Jakob Falur Kristinsson, 18.4.2009 kl. 14:27

3 Smámynd: Valbjörn Júlíus Þorláksson

Olíuverð er að hækka í íslenskum krónum þó hún lækki í erlendum gjaldmiðlum..  Við notum krónur á íslandi, vissuð þið það ekki? :)

Valbjörn Júlíus Þorláksson, 18.4.2009 kl. 14:50

4 Smámynd: ThoR-E

Valli:

Ef þessar verðbreytingar hjá þeim væru í einhverju samræmi við fall og ris krónunar, sem og lækkun og hækkun heimsmarkaðsverð, að þá væri þetta allt annað mál.

En að hækka um 5 til 6 krónur um leið og krónan fellur, en lækka síðan verðið hjá sér um 1 til 2 krónur þegar heimsmarkaðsverðið hrynur, og krónan styrkist.

ThoR-E, 18.4.2009 kl. 16:48

5 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

það vantar allt samræmi í þennan hækkunar/lækkunarferil hjá olíufélögunum.

Jakob Falur Kristinsson, 18.4.2009 kl. 17:42

6 identicon

Krónan hefur veikst að undanförnu og því mjög eðlilegt að olíufélögin hækki eldsneytisverð á sama hátt og aðrir vöruflokkar munu hækka.

Náttúrulaus 18.4.2009 kl. 18:14

7 Smámynd: ThoR-E

Náttúrulaus..

Þér finnst þá eflaust eðlilegt að þegar krónan styrkist að þá lækka olíufélögin lítið sem ekkert.

Rugl er þetta!

ThoR-E, 18.4.2009 kl. 19:03

8 Smámynd: Jón Rúnar Ipsen

hækkunin er 10 krónur í þessum mánuði er það bara í lagi

Jón Rúnar Ipsen, 18.4.2009 kl. 19:20

9 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þetta er eitt allsherjarrugl varðandi verð á olíu á Íslandi

Jakob Falur Kristinsson, 19.4.2009 kl. 15:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband