Skólabygging

Íslandsbanki og Fljótsdalshérað hafa gert með sér samning um fjármögnun á ný- og endurbyggingu við Grunnskólann á Egilsstöðum. Verkefnið er eitt það stærsta sem sveitarfélagið hefur ráðist í en gert er ráð fyrir að nýja byggingin verði rúmir fjögur þúsund fermetrar.

Er þetta ekki sama sveitarfélagið og Kristján Möller var að færa 100 milljóna króna aukaframlag úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga.  Þegar virðist rofa til í fjármálunum, þá á að hella sér í stórfelldar lántökur.


mbl.is Samið um fjármögnun skólabyggingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Til að upplýsa þig aðeins um þetta þá eru peningarnir sem Möllerinn var að færa eingöngu skuld ríkisins við Fljótsdalshérað vegna sameiningar sveitarfélaga árið 2004 og hefur staði í strögli með að fá þetta greitt í 5 ár. Stefndi í málaferli vegna þessa. Skólabyggingin er þegar hafin fyrir meira en ári síðan en erfiðlega hefur gengið að fjármagna hana eftir bankahrunið. Get ekki séð að nauðsynleg skólabygging vegna fjölgunar fólks tengist á nokkurn hátt því að ríkið greiði trassaskuld sína.

Haraldur Bjarnason, 21.4.2009 kl. 20:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband