8.6.2009 | 11:54
Til hvers að hengja þá sem þegar hafa gert það sjálfir
Þau áform ríkisstjórnarinnar um innköllun aflaheimilda um 5% á ári hafa farið mikið fyrir brjóstið á LÍÚ og mörgum sjómönnum. Morgunblaðið var fyrir skömmu með nokkrar fréttaskýringar og þar var rætt við útgerðarmenn, sjómenn ofl. Allir voru sammála um að þessi leið myndi setja öll fyrirtæki í sjávarútvegi á hausinn á 6,5 árum. Já þetta er svo nákvæmlega útreiknað að þetta mun taka 62 mánuði. Útgerðin er skuldum vafinn upp fyrir haus og mun skulda 500-600 milljarð, sem hún getur með núverandi tekjum aldrei greitt og er því í raun gjaldþrota. Þessar miklu skuldi eru tilkomnar vegna mikilla fjárfestinga bæði í aflaheimildum, nýjum skipum og í óskyldum rekstri. Útgerðarmenn voru búnir að spóla svo upp verð á aflaheimildum að eitt kíló af þorski var selt á yfir fjögur þúsund krónur. Allt kaupverðið var síðan greitt með erlendu láni og veiðiheimildirnar settar að veði. Þetta var gert þótt vitað væri að hér væri aðeins um veiðiheimild til eins árs í senn og að eðlilegur rekstur gæti aldrei greitt þetta. Nokkuð mörg útgerðarfyrirtæki tóku þátt í hlutabréfaæðinu og veðsettu kvótann fyrir þeim lánum.
Morgunblaðið birti fyrir stuttu grein um fjölskyldufyrirtæki í Grundarfirði, Sófanías Cesilsson hf. En þar hafði framkvæmdastjórinn fengi meirihluta stjórnar til að samþykkja lántöku upp á tvo milljarða í erlendu láni með veði í kvóta fyrirtækisins og voru peningarnir notaðir til hlutabréfakaupa í ákveðnum banka. Nú eru hlutabréfin verðlaus en lánið orðið tvöfalt hærra og er því svo komið að ekkert eigið fé er eftir í þessu fyrirtæki, sem var mjög sterkt fyrir, og eigendur bræður og systur og makar berjast í dómsölum. Hver verða síðan afdrif þessa fyrirtækis er óljóst ennþá. Ég veit um nokkur mörg hliðstæð dæmi þótt þau hafi ekki enn ratað á síður Morgunblaðsins en þetta mál er bara toppurinn á ísjakanum. Mörg slík mál eiga eftir að koma upp í tengslum við rannsókn á bankahruninu.
Mörg sveitarfélög sem ekki eru nú fjárhagslega vel sett, hafa tekið undir mótmæli útgerðarmanna. Sem er að vissu leyti mjög skrýtið, því samfara fyrningarleiðinni á að stofna Auðlindasjóð, sem mun leigja út þær veiðiheimildir sem verða innkallaðar árlega. En gert er ráð fyrir að einn þriðji hluti tekna Auðlindasjóðs renni til sveitarfélaganna til að laga þeirra fjárhag. Þær sveitastjórnir sem hafa mótmælt þessari fyrningarleið eru ekki að hugsa um hag sinna íbúa heldur ræður pólitísk afstað þeirra viðhorfum.
Það hafa margir velt því fyrir sér, hvers vegna öll sjávarútvegsfyrirtæki fari á hausinn við 5% skerðingu á veiðiheimildum en þau stóðu öll af sér 30% niðurskurð í þorskveiði. Því er til að svara að við 30% niðurskurðinn brugðust útgerðirnar þannig við að þau bjuggu með smá viðskipum með veiðiheimildir sífellt hærra verð á bókfærðu verði sinna veiðiheimilda. En nú verður ekki lengur hægt að stunda slík viðbrögð lengur. Þótt 5% veiðiheimilda verði innkölluð af einhverri útgerð er ekki þar með sagt að hún geti ekki fengið þessi 5% aftur. En þá þarf útgerðin að greiða leigu til Auðlindasjóðs, sem á að verða mjög hófleg. En þar stendur hnífurinn í kúnni, útgerðin vill ekkert greiða fyrir sinn nýtingarrétt. Einnig hafa mörg stór útgerðarfyrirtæki haft miklar tekjur af því að leigja frá sér veiðiheimildir, en nú verður slíkt ekki hægt lengur, þegar vitleysan var sem mest var verið að leigja veiðiheimildir í þorski fyrir kr. 200-250 krónur á kíló.
Þeir sem eru í útgerð í dag hafa ákveðið forskot til að leigja af Auðlindasjóði, þar sem þeir eiga nú þegar bæði skip og veiðarfæri. Einnig eru þessar útgerðir með mjög hæfa og góða sjómenn, ég hef heyrt útgerðarmenn fullyrða að fyrningarleiðin yrði snara um háls þeirra og þeir síðan hengdir. Ef sjávarútvegsfyrirtæki getur ekki greitt hóflegt gjald fyrir nýtingu auðlinda hafsins er hún mjög illa sett og slík fyrirtæki væru einfaldlega gjaldþrota. Gjaldþrot er ekkert nýtt í íslenskri útgerð og þrátt fyrir það verður fiskur áfram veiddur á Íslandsmiðum. Hvað varðar snöruna um háls útgerðarmanna þá settu þeir hana sjálfir en ekki ákvörðunin um fyrningarleiðina.
Þar sem útgerðin skuldar 500-600 milljarða væri það allri útgerð fyrir bestu að þeirra útgerð yrði gjaldþrota og losna þannig við þennan skuldaklafa sem útgerðin er í. Byrja svo bara aftur með hreint borð. Fyrningarleiðin mun bjarga íslenskri útgerð en ekki kveða upp dauðadóm yfir henni og nýtt framfaraskeið hefst í útgerð á Íslandi. Menn verða að skilja það að það er fiskurinn í sjónum sem er hinn raunverulega auðlind en ekki veiðiheimildir
Þegar ég bjó vestur á Bíldudal fylgdist maður með hinum miklu aflamönnum á Ísafirði og þá var algengt að þeir fengju nýtt skip á 2-3 ára fresti. En í dag hefur ekki komið nýtt skip til Ísafjarðar í um 20 ár ef undanskildir eru smábátar. Hvað hefur breyst svona mikið er öll hagræðingin að skila sér með þessum hætti.
Menn gleyma allir þeirri staðreynd að víða um land eru sjávarþorp sem hafa misst frá sér allar aflaheimildir og þar með gert nær verðlaus allar eignir þess fólks, sem á þessum stöðum býr.
Það er nóg komið af allri vitleysunni sem þetta kvótakerfi hefur leitt af sér að nú verður að stokka upp á nýtt og gefa aftur.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
2006
Tenglar
Ýmsir tenglar
- Arnfirðingur
- Bíldudalur
- Bolungarvík
- Bæjarins besta á Ísafirði
- Guðrún Rebekka Jakobsdóttir Edinborg
- Falið vald
- Flateyri
- Frjálslyndi flokkurinn
- Ísafjörður
- Júdit Krista Jakobsdóttir, Bíldudal
- Kristinn Ásgeirsson, Danmörku
- Kristinn H. Gunnarsson
- KVÓTASVINDLIÐ MITT
- Mats Wibe Lund
- Óvinir Ísland
- Skipamyndir Þorgeir Baldursson ljósmyndari
- Suðureyri
- Strandabyggð
- Súðavík
- Tálknafjörður
- Tíðis-fréttavefur
- Vesturbyggð
- VÍSIR.IS
SKIPAMYNDIR
- Fiskistofa Ýmsar upplýsingar
- Gísli Reyisson Aflafréttir
- Hafþór Hreiðarsson Skipamyndir
- Ragnar í Grindavík Skipamyndir
- Skip.is Ýmsar upplýsingar
- Þorgeir Baldursson SKIPAMYNDIR
- http://
Bloggvinir
- Adda bloggar
- Ágúst H Bjarnason
- Albertína Friðbjörg
- Alma Jenny Guðmundsdóttir
- Anna
- Anna Guðný
- Anna Heiða Stefánsdóttir
- Anna Pálsdóttir! :)
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Apamaðurinn
- Arinbjörn Kúld
- Ásgerður Jóna Flosadóttir
- Arnlaugur Helgason
- Arnþór Helgason
- Ársæll Níelsson
- Ásdís Rán
- Ásgeir Jóhann Bragason
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Ásgeir Sveinsson
- Axel Jóhann Axelsson
- Baldur Smári Einarsson
- Baldvin Jónsson
- Bara Steini
- Birgitta Jónsdóttir
- Birna M
- Bjarney Bjarnadóttir
- Bjarni Baukur
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Bjarni Kjartansson
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Bjarki Þór Guðmundsson
- Bjarki Steingrímsson
- Björgvin S. Ármannsson
- Björgvin Guðmundsson
- Björn Leví Gunnarsson
- Björn Finnbogason
- Bragi Sigurður Guðmundsson
- Bragi Sigurðsson
- Hommalega Kvennagullið
- Bwahahaha...
- Davíð Pálsson
- Davíð S. Sigurðsson
- Didda
- Dunni
- Edda Agnarsdóttir
- Edda Sveinsdóttir
- Eggert Þór Aðalsteinsson
- Egill Jón Kristjánsson
- egvania
- Einar B Bragason
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Eiríkur Sjóberg
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Emil Örn Kristjánsson
- J. Einar Valur Bjarnason Maack
- Elín Margrét Guðmundsdóttir
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Eyjólfur Ingvi Bjarnason
- FF
- FLÓTTAMAÐURINN
- Faktor
- Fannar frá Rifi
- Finnur Bárðarson
- Fjarki
- Friðrik Höskuldsson
- Frjálshyggjufélagið
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Georg Birgisson
- Gestur Guðjónsson
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnar Þór Ólafsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Guðjón Heiðar Valgarðsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Guðjón Ó.
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðmundur Zebitz
- Guðni Gíslason
- gudni.is
- Guðrún Hafdís Bjarnadóttir
- Guðrún Jónína Eiríksdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Guðrún Helgadóttir
- Guðrún S Hilmisdóttir
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Sigurðsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Haffi
- Hafrún Kristjánsdóttir
- Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
- Halla Rut
- Halldór Sigurðsson
- Halldór Örn Egilson
- Hallgrímur Guðmundsson
- Hallur Magnússon
- Haraldur Bjarnason
- Haraldur Davíðsson
- Haraldur Haraldsson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Heiður Helgadóttir
- Helga Dóra
- Helga Sigrún Harðardóttir
- Helga Þórðardóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Himmalingur
- Hilmar Sæberg Ásgeirsson
- hilmar jónsson
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Hjalti Sigurðarson
- Hjartagullin mín
- Hinrik Þór Svavarsson
- Hörður B Hjartarson
- Hlekkur
- Huld S. Ringsted
- Hólmdís Hjartardóttir
- Hrannar Baldursson
- Hrannar Björn Arnarsson
- hreinsamviska
- Hulda Haraldsdóttir
- Hörður Halldórsson
- Hörður Hilmarsson
- Hvíti Riddarinn
- Ingunn Jóna Gísladóttir
- Ingvar Valgeirsson
- Jakob Kristinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jens Guð
- Jens Sigurjónsson
- Jóhannes Jónsson
- Jóhanna Fríða Dalkvist
- Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
- Jóhannes Ragnarsson
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jón Baldur Lorange
- Jón Halldór Eiríksson
- Jón Kristófer Arnarson
- Jón Finnbogason
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Kama Sutra
- Karl Tómasson
- Karl V. Matthíasson
- Katrín
- Kjarri thaiiceland
- Kristín Katla Árnadóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Konráð Ragnarsson
- Kristinn Sigurjónsson
- Kristinn Theódórsson
- Kristján Pétursson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Lilja Skaftadóttir
- Lovísa
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Lúðvík Lúðvíksson
- Lýður Árnason
- Maddý
- Magnús Þór Friðriksson
- Margrét Sigurðardóttir
- Marinó Hafnfjörð Þórisson
- Magnús H Traustason
- Marinó Már Marinósson
- Marzellíus Sveinbjörnsson
- Morgunblaðið
- Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Natan Kolbeinsson
- Níels A. Ársælsson.
- Ólafía Margrét Guðmundsdóttir
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Tryggvason Þorsteinsson
- Ólafur Ragnarsson
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólafur Tryggvason
- Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
- Ólöf de Bont
- Óskar Helgi Helgason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Paul Nikolov
- Páll Höskuldsson
- Páll Vilhjálmsson
- Pjetur Stefánsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- percy B. Stefánsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Rafn Gíslason
- Ragnar Borgþórs
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Regína R
- Ruth
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Samtök Fullveldissinna
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Sigurður Sigurðsson
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigríður Hafdís Þórðardóttir
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir
- Sigurður Haukur Gíslason
- Sigurður Jón Hreinsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigrún Jónsdóttir
- Snorri Bergz
- Sigurjón Sveinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Steinþór Ásgeirsson
- Svartagall
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Einarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Sólveig Aradóttir
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- TARA
- Tiger
- Tinna Eik Rakelardóttir
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valbjörn Júlíus Þorláksson
- Valdimar Leó Friðriksson
- Valan
- Vefritid
- Vestfirðir
- Viggó H. Viggósson
- Vilborg Auðuns
- Þórbergur Torfason
- ÞJÓÐARSÁLIN
- Þórhallur Heimisson
- Þórhallur Pálsson
- Þórarinn Þ Gíslason
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Helgi Þórðarson
- Þórir Kjartansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Þór Jóhannesson
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Jón V. Þorsteinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 24.1.2010 Jakob Kristinsson er látinn.
- 21.1.2010 Spakmæli dagsins
- 21.1.2010 Obama
- 21.1.2010 Icesave
- 21.1.2010 Mótmælendur ákærðir
- 21.1.2010 Norwegian
- 21.1.2010 Kaninn og RÚV
- 21.1.2010 Látinn laus
- 21.1.2010 Kína
- 21.1.2010 Hvað vill félagsmálaráðherra?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.