Alþjóða Gjaldeyrissjóðurinn

Vigdís Hauksdóttir þingmaður Framsóknar sagði á Alþingi í dag að nú væri starfandi skuggaríkisstjórn Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins.

Hún má svo sem alveg halda þessu fram en ætli hún viti ekki að við óskuðum eftir aðstoð frá þessum sjóði og skuldbundum þar með til að vinna eftir þeim reglum sem hann setur.


mbl.is Skuggaríkisstjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ég óskaði aldrei eftir aðstoð IMF og hefði betur viljað sleppa því, alveg frá upphafi. Réttnefni á þetta bákn væri frekar Alþjóðagjaldþrotasjóðurinn!

Guðmundur Ásgeirsson, 9.6.2009 kl. 23:43

2 Smámynd: Guðrún Jónína Eiríksdóttir

Já munur á Jóni og séra Jóni.

Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 11.6.2009 kl. 00:57

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég man ekki betur en einmitt Steingrímur J. Sigfússon hafi fyrstur þingmanna talað um að afþakka þessa aðstoð.  En það máttu þau Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ekki heyra nefnt.

Jakob Falur Kristinsson, 12.6.2009 kl. 23:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband