Ný bók

Nú er komin út ný bók eftir þá Halldór Guðmundsson og Dag Gunnarsson, um íslenska efnahagshrunið.  Þessi bók mun líka verið gefin út í Þýskalandi og vakið þar mikla athygli og mun sjónvarpsstöðin ZDF ætla að sýna í kvöld þátt um íslensku kreppuna.

Ég held að þeim væri nær að sýna þátt um þýsku kreppuna, sem mun ekkert vera skárri en sú íslenska.  Kannski er þetta þeim einhver huggun í sinni kreppu að horfa á vandræðin á Íslandi.


mbl.is „Velviljaður áhugi“ Þjóðverja á íslenska efnahagshruninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ekki hægt að bera saman ástandið hér og í Þýskalandi. Í Þýskalandi hefur eftirfarndi ekki gerst.

  • Verðlag hefur ekki hækkað.
  • Skuldir hafa ekki hækkað.
  • Það eru ekki gjaldeyrishöft.
  • Skattar hafa ekki verið hækkaðir.
  • Flest fyrirtæki eru ennþá að skila hagnaði þrátt fyrir samdrátt.

Jú fjöldi atvinnulausra eykst nokkuð, mun minna en hér, en þar var fyrir reyndar mikið atvinnuleysi.  Atvinnuleysi hérna á eftir að stóraukast í haust þegar verður farið að láta fyrirtækin sem eru gjaldþrota rúlla. 

Í þýskalandi eru menn hins vegar að sjá til lands þar hefur bílasala stóraukist og hlutabréfamarkaðir rjúka upp.

Vörður 12.6.2009 kl. 17:42

2 identicon

Ekkert skárri en sú íslenska? Þú ert að grínast...Íslendingur, búsettur í vægu kreppuástandi Þýskalands

Eiki S. 12.6.2009 kl. 21:35

3 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Ég veit ekki betur en að kreppan og bankahrunið á Íslandi hafi komið mjög illa við þjóðverja eins og glöggt má sjá hér:

http://www.youtube.com/watch?v=wWPhTYsFTv8

Jón Bragi Sigurðsson, 13.6.2009 kl. 08:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband