Vegagerð

Kristján L. Möller, samgönguráðherra, segir að ekki útilokað sé að setja nokkurt verk í einkaframkvæmd í gang.  En hvað með framkvæmdir á vegum ríkisins, eiga þær ekki að vera neinar.  Það er alþekkt lögmál að í kreppu eigi að auka framkvæmdir á vegum ríkisins og í góðæri eigi síðan að draga úr þeim.  Þarf alltaf að vera að hugsa um þennan andskotans fjárlagahalla ef eitthvað á að gera.
mbl.is Ekkert svartnætti í vegagerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þarf ríkið nokkuð að vera með vegagerðarframkvæmdir. Stóru verktakarnir eru þeir einu sem geta farið í einkaframkvæmdir. Ístak er komið næg verkefni þannig þeir þurfa að ráða undirverktaka sem þeir borga svo smánarlega fyrir að greiðslur eru undir 50% af taxta. ÍAV er búið að fá ríkisstyrk, litlar 800 milljónir til að halda áfram með tónlistarhúsið. Þeir bjóða samt í útboðsverk. Er ekki bara verið að hreinsa til á markaðnum til að tryggja að verkin fari til útvaldra? Kanski er verið að tryggja að þeir fari ekki að gera uppsteit vegna ólöglegra myntkörfulána.

Guðný 21.6.2009 kl. 16:37

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þetta er örugglega rétt hjá þér Guðný.  Á sínum tíma átti ríkið ÍAV en það var einkavætt eins og svo margt annað og selt fáeinum útvöldum stjórnendum þessa fyrirtækis.

Jakob Falur Kristinsson, 21.6.2009 kl. 16:56

3 Smámynd: Jón Rúnar Ipsen

Það má ekki gleyma að hjá verktökum vinnur fólk

Jón Rúnar Ipsen, 21.6.2009 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband