Magnyl við hálsbroti

Þetta er líka þekkt hér á landi að fólk er ekki sjúkdómsgreint.  Ég þekki það af eigin raun, því þegar ég lenti í hinu alvarlega slysi á sjó 2003 og fór á Heilsugæsluna á Patreksfirði var ég bara sendur heim með nokkrar magnylpillur og sagt að koma í skoðun eftir nokkra daga.  Þetta orsakaði það að ég hef verið lamaður að hluta síðan.
mbl.is Fékk magnýl við hálsbroti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

  Þegar ég var polli fékk ég slæman verk í kviðnum  en læknirinn hélt að ég væri með  slæma botnlangabólgu enda verkurinn á þeim  stað og .var ég sendur á spítala til rannsóknar .Þetta reyndist bara vera magaverkur.Allur er varinn góður.en ég heyrði fólk vera að baktala lækninn fyrir mistökin  en er ekki betra að vera varkár en að taka sjensa?

Hörður Halldórssson 22.6.2009 kl. 07:34

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Auðvitað er betra að læknar séu varkárir, en í mínu tilfelli var bara um hreint kæruleysi að ræða.

Jakob Falur Kristinsson, 22.6.2009 kl. 11:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband