Innheimtukosnaður

Það er orðið slæmt ef lögfræðingar landsins eru farnir að misskilja lög í stórum stíl hvað varðar innheimtukostnað.  Eru slíkir menn þá hæfir til að stunda lögfræðistörf yfirleitt, því lögin um innheimtukostnað eru bæði stutt og skýr.  Jafnvel 14-15 ára unglingar skilja þau vel.  Ég er hræddur um að í flóknum málum muni þessir lögmenn ekkert skilja í hinum ýmsu lögum og gera eintóma vitleysu.
mbl.is Ekki undanþegnir innheimtulögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já þarna er ég alveg sama sinnis og þú Jakob.  Mér finnst með miklum ólíkindum hvernig trekk í trekk allri heilbrigðri skynsemi er fleygt út í hafsauga í nafni einhverrar "lagatúlkunar"- hver fjandinn svo sem það nú er.  Lögfræðingastéttinn hamast við að snúa útur illa skrifuðum lagatextum og henda svo öllu á hvolf.  Svo eru þeir orðnir svo kexruglaðir að þeir kunna ekki einu sinni lengur að rukka fyrir rukkarstörfin sín - sem ég hélt nú að hefði verið sérgrein flestra í stéttinni.

Gísli Gunnlaugsson 24.8.2009 kl. 15:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband