Barnaþrælkun

Börn sem vinna á tóbaksökrum í Afríkuríkinu Malaví fá svo mikið magn nikótíns inn í líkama sinn í gegn um húðina að það jafngildir því að þau reyki fimmtíu sígarettur á dag. Þetta er kemur fram á fréttavef Sky.

Þetta er ekkert annað en barnaþrælkun að láta börn vinna á tóbaksökrum.  Auðvitað er fátækt mikil í Malaví og allir reyna að bjarga sér sem best, en það getur ekki réttlætt þetta.


mbl.is Fá nikótínmagn fimmtíu sígaretta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórgnýr Thoroddsen

Réttlætanlegt? Nei. -Afsakanlegt? Jú.

Hugsum þetta aðeins, hugsanlega eru aðstæður ekki til staðar sem leyfa börnunum að velja annað án þess að kjósa dauða eða líf á götunni. Að óskoðuðu máli auðvitað get ég ekki sagt að þú hafir rangt fyrir þér en við verstu mögulegu aðstæður þá er betra að börnin vinni skítavinnu en að þau drepist úr hungri, eða hvað?

Foreldrarnir VERÐA að geta unnið fyrir sér OG börnunum til þess að þetta verði ekki lengur afsakanlegt, hitt er svo annað að það mætti auðveldlega redda þessum börnum hlífðarbúnaði..

..er afsakanlegt að við veitum þeim ekki hjálparhönd við að bæta líf sitt í það minnsta það mikið?

Þórgnýr Thoroddsen, 24.8.2009 kl. 19:07

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er auðvitað betra að börn vinni þótt aðstæður séu slæmar, frekar en þau deyi úr hungri.

Ég er sammála þér hvað varðar hlífðarbúnaðinn.

Jakob Falur Kristinsson, 25.8.2009 kl. 11:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband