Réttir

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG, fór eftir hádegið norður í land í dag, þar sem hann hyggst fara í göngur og réttir í sinni heimabyggð.

Liggur það ekki í augum uppi, að fjármálaráðherra, fari og smli fé í réttir.  Þetta er kannski ekki endilega það fé sem honum bráðvantar núna.  

En fé samt.


mbl.is Steingrímur í réttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Farið hefur fé betra.

Elvar 3.9.2009 kl. 17:59

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Já Jakob. hugsaðu þér hvað gömlu höfuðpaurarnir hefðu gert í sínu fríi . þeim finnst kanski hallærislegt að fara í réttir og smalamennskur eina helgi (sem er þó heilbrigður lífsstíll).

 þá dugði ekki neitt minna en gullsteik og tilheyrandi á kosnað þjóðarinnar, (hvað sem það hefur nú verið). Líklega eitthvað sterkara en léttvín sem drukkið er með mat . þess vegna er allt eins og það er á Íslandi í dag. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 3.9.2009 kl. 18:38

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er enginn atvinnugrein á Íslandi hallærisleg, þótt margir hafi reynt að fá fólk til að trúa að fjármálageirinn væri eitthvað fínni en aðrar starfsgreinar.  Þá er það nú komið svo að fólk er farið að skammast sín fyrir að hafa unnið í banka og vill helst ekki segja frá því í dag, þótt það hafi bara verið að vinna sína vinnu.

Jakob Falur Kristinsson, 4.9.2009 kl. 17:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband