Tunglferðir

Tvö dagblöð í Bangladess hafa beðist afsökunar á því að hafa birt frétt sem birtist upphaflega á bandarískum háðsádeiluvef. Þar var fullyrt, að tunglferðirnar hafi verið sviðsettar.

Er það ekki bar hið rétta í málinu að þetta hafi verið sviðsett, þótt enginn þori að kannast við það.


mbl.is Báðust afsökunar á fréttaklúðri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Halldórsson

Jú ætli þeir hafi nú ekki farið að heimsækja karlinn í tunglinu.

Hörður Halldórsson, 5.9.2009 kl. 03:37

2 Smámynd: Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)

Ja staðreyndin er sú að þetta var EKKI sviðsett. Þeir einu sem halda því fram eru þeir sem sannarlega hafa ekkert kynnt sér málin, ekki skoðað myndirnar, ekki hlustað á þá hundruð jarðfræðinga sem rannsökuðu grjótið sem komið var með heim til jarðar, ekkert kynnt sér vitnisburði geimfaranna. Þeir sem halda því fram að mesta afrek mannsins hafi verið falsað hafa sannarlega kolrangt fyrir sér, það er óumdeilanlegt.

Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is), 5.9.2009 kl. 10:53

3 Smámynd: Rebekka

Þessari mynd er ekki beint til eiganda þessa bloggs, heldur til allra sem efast um að menn hafi ferðast til tunglsins.

Free Image Hosting at www.ImageShack.us



QuickPost Quickpost this image to Myspace, Digg, Facebook, and others!

Rebekka, 5.9.2009 kl. 13:43

4 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Svokallað mánagrjót er eigi sönnun þess að mannskepnan hafi farið til tunglsins.

Í fyrsta lagi er mánagrjót á jörðinni og í annan stað eiga Rússar slíkt grjót sem þeir létu róbota safna (þá í litlum mæli sé þá sýnir það augljóslega að hægt var að safna án manna)

Einnig má benda á að "mánagrjót" sem geymt var í hollenska þjóðminjasafninu og var gjöf Bandaríkjamanna til Hollendinga reyndist bara vera tré.  Það kom í ljós fyrir stuttu.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 5.9.2009 kl. 14:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband