Tyrkir

Tyrknesk stjórnvöld hafa boðist til að vera gestgjafar á fundi milli stjórnvalda í Írans og fulltrúa stórveldanna þar sem fjallað verði um kjarnorkuáætlun Írana.

Í Íran eru ráðandi slík öfl að þeim væri trúandi til alls með kjarnorku.  Þetta er klerkaveldi og ofsatrúarmenn ráð þar mestu.

Mikið er það gott ef Tyrkjum tekst að miðla þarna málum, því eins og staðan er núna bendir allt til að Bandaríkin vilji ráðast inn í Íran og eyða kjarnorku þeirra.  Þeir nota bara sömu afsökun og gert var í Írak, sem var leit að kjarnorkuvopnum sem aldrei fundust.


mbl.is Tyrkir bjóða til viðræðna um Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Já Tyrkir eru harðir í horn að taka og Bandaríkin virðast vera að nota sömu uppskriftina aftur.

Málið er að mjög margar þjóðir eru búnar að átta sig á hinum svokölluðu björgunaraðgerðum Bandaríkjanna í Íraksstríðinu. þar á meðal Ísland og Noregur. Við megum aldrei aftur taka þátt í svona hörmulegum græðgisaðförum.

Og aldrei aftur hleypa Davíð Oddsyni nálægt pólitík.

Hann leiddi Ísland inn í það víti að taka þátt í að styðja Bandaríkin á sínum tíma í þessu. Davíð og græðgi eru um það bil það sama.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 13.9.2009 kl. 21:27

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég er sammála þér að öllu leyti.

Jakob Falur Kristinsson, 14.9.2009 kl. 10:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband