Fíkniefni

Þrír Íslendingar sem handteknir voru í sumar og sátu um tíma í gæsluvarðhaldi voru taldir tengjast einu stærsta fíkniefnamáli sem upp hefur komið í heiminum.  Þeir taka hraustlega til hendinni íslendingar jafnt í smygli á fíkniefnum sem öðru.  Vilja alltaf vera stærstir og mestir í öllu.
mbl.is Íslendingar tengdir við stórt fíkniefnamál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er nokkuð ljóst að nafn íslands er handónýtt.. það voru útrásarvíkingarnir og heimskir/gráðugir stjórnmálamenn... forsetinn gengur nú fram og segir fjárglæfrapa íslands svo til saklausa... og nú eitt stærsta fíkniefnamál heimsins...
Ég væri ekki hissa ef þetta væri fjármagnað af mafíum íslands... ekki baun hissa

DoctorE 24.9.2009 kl. 08:34

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Einhvers staðar frá koma peningarnir til að kaupa allt þetta magn.

Jakob Falur Kristinsson, 24.9.2009 kl. 10:56

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég varð mjög hissa þegar ég heyrði sjálfan forsetann fullyrða að engin lög hefðu verið brotin í sambandi við bankahrunið.  Er þá það bara peningasóun að skipa 3 sérstaka saksóknara og rannsóknarnefnd Alþingis vegna bankahrunsins.  Það er komi fullt af málum sem bíða þess að verða ákært í.  Þarna skaut Ólafur Ragnar sig illilega í fótinn.  Ég vona að þetta hafi ekki verið rétt haft eftir honum.

Jakob Falur Kristinsson, 24.9.2009 kl. 15:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband