Innbrot

Brotist var inn í Breiðholtskirkju í gærkvöldi en lögreglan féll tilkynningu um innbrotið á tólfta tímanum. Ekki var í morgun vitað nánar hvort og þá hverju var stolið í kirkjunni.

Er þessum andskotans aumingjum ekkert heilagt.  Að brjótast inn í kirkju til að stela er það lægsta plan sem nokkur þjófur kemst á.


mbl.is Brotist inn í Breiðholtskirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvers vegna er það lágkúrulegra en önnur inbrot... ?

DoctorE 2.10.2009 kl. 08:40

2 Smámynd: Reputo

Trú og tilbeðsluhallir eru móðgun við mannkynið. Sennilega var þetta skásti staðurinn sem manngreyið gat brotist inn á.

Reputo, 2.10.2009 kl. 09:04

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er vegna þess að hver kirkja er helgur staður og á að umgangast þær, sem slíkar.  Að trú og tilbeiðsluhallir eru móðgun við mannkynið, eins og þú kýst að orða það er merki um að þú teljir þig vera trúleysingja.  Það finnst ekki einn einasti maður á jarðríki sem ekki trúir á eitthvað.  Það þarf ekki endilega að vera kristin trú eða önnur trú eins og íslam, Búdda, hindúatrú ofl.  Sumir trúa jafnvel á stokka og steina.  Trúin er hverjum manni nauðsynleg því allir lenda einhvern tíma í erfiðleikum og það veitir sálarró á viðkvæmum tíma að trúa að til sé eitthvað manninum æðra.  Ég hef heyrt mann sem taldi sig vera trúlausan.  En þegar hann varð fyrir miklu áfalli var það fyrsta sem hann sagði Guð hjálpi mér.

Jakob Falur Kristinsson, 2.10.2009 kl. 16:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband