Bílvelta

Bíll valt á Suðurlandsvegi í Hveradalabrekku í gærkvöldi. Engan sakaði, að sögn lögreglunnar á Selfossi. Óhappið er rakið til þess, að snjóað hafði á Hellisheiði og var vegurinn því háll. Lögreglan segir, að vetrarfærð sé á heiðinni eins og er.

Auðvitað er komin vetrarfærð á heiðum landsins, enda kominn október og er oft algengt.  Þess vegna er spurning hvort Umferðastofa sé með réttan tíma á viðmiði sínu um notkun nagladekkja.  En það má ekki hafa þau undir bílnum á tímabilinu 15. apríl til 1. eða 15. nóvember.  Svo er líka að margir ökumenn hafa aldrei ekið í mikilli hálku.


mbl.is Valt í hálku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Hálka veldur ekki óhappi eða slysi, það gera hins vegar ökumenn sem ráða ekki við aðstæður eða telja sig betri ökumenn en þeir eru.

corvus corax, 2.10.2009 kl. 08:07

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er hárrétt hjá þér Sir.

Jakob Falur Kristinsson, 2.10.2009 kl. 16:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband