Hótuðu fólki

Lögreglan hafði afskipti af tveimur ungum mönnum í miðborg Reykjavíkur í nótt, en mennirnir eru sakaðir um að hafa ógnað fólki í efri byggðum borgarinnar með skammbyssu og hótað því lífláti. Nokkrar slíkar tilkynningar bárust lögreglu.

Þetta mun nú ekki hafa verið alvöru skammbyssa, heldur leikfangabyssa úr plasti.  En nóg til að blekkja lögregluna, enda eru þessar byssur orðnar svo líkar raunverulegum byssum að það þarf vandlega skoðun til að sjá muninn.

En hver tilgangur mannanna með þessum fíflaskap er ekki vitað.


mbl.is Hótuðu fólki lífláti með plastbyssu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kannski voru ungu mennirnir að reyna að hafa gaman af tilverunni. Örlítið krydd í tilveruna. En hér gekk grínið of langt.

Hrafn Arnarson 3.10.2009 kl. 11:05

2 identicon

Ég sé ekkert "örlítið krydd í tilveruna" við það þegar 18 og 20 ára menn eru að ógna fólki.

Jóhann Sig 3.10.2009 kl. 14:55

3 identicon

Ætli fórnarlömbunum hafi ekki fundist þetta fyndið?

Áslaug Herdís Brynjarsdóttir 3.10.2009 kl. 16:05

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Hvað er fyndið og hvað er ekki fyndið, hver getur dæmt um það.

Jakob Falur Kristinsson, 10.10.2009 kl. 11:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband