Klósettferðir

Japanskt flugfélag hefur tekið markmið sitt um að draga úr þyngd flugvéla í flugi upp í nýjar hæðir með því að biðja flugfarþega á einhverjum áætlunarleiðum sínum um að fara á salernið áður en farið er um borð.

Flest getur nú mönnum dottið í hug, fólk verður ekkert léttara þótt það fari á salerni.  Hvað með ófrískar konur? Verður farið að taka ófædd börn með keisaraskurði áður en þær fá að fara um borð í flugvél.

Í þessu sambandi dettur mér í hug atvik ,sem ég lenti í fyrir mörgum árum.  En þá var ég að fara að fljúga með flugfélaginu Vængjum frá Reykjavík til Bíldudals og var með lítinn kassa sem í var rafmagnsmótor, sem þurfti nauðsynlega að komast með vestur.  Þegar ég lét minn farangur á vigtina sagði afgreiðslumaðurinn; "Þetta er talsvert mikið og hvað er í þessum kassa, sem er svona þungur"  Ég sagði að það væri rafmagnsmótor, sem ég yrði að koma vestur.  "Það gengur ekki, þú verður að skilja hann eftir, því vélin er að verða alltof þung."  Ég sagði manninum að þessi mótor væri í færiband í frystihúsinu sem ég rak og vinna hjá 80 manns væri í hættu ef mótorinn kæmist ekki með.  Hann klóraði sér í hausnum smá stund og sagði svo; "Ef þú treystir þér til að hafa mótorinn sem handfarangur og sitja með hann í fanginu vestur þá sleppur þetta með þyngdina."  Ég samþykkti það strax og vestur komst ég með mótorinn en hvers vegna vélin var léttar við það eitt að ég sæti með mótorinn í fanginu en hann væri ekki í farangursgeymslu vélarinnar skildi ég aldrei.


mbl.is Fyrst á klósettið - síðan um borð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband