Siglufjörður

Mikil sala hefur verið á fasteignum í Siglufirði síðustu mánuði. Frá júlílokum hefur fasteignasalan Domus selt tólf eignir á staðnum, sem telst mikið þar í bæ.

Þetta telst ekki mikið bara á Siglufirði, heldur á landinu öllu.  Ef þetta hefði verið í Reykjavík væri það stórfrétt og flestir fasteignasalar komnir í fréttir um að fasteignamarkaðurinn væri allur að lifna við.  En það sem er að gerast er að fólk er að uppgötva að í dag er hægt að fá góð íbúðarhús á landsbyggðinni fyrir brot af því sem sæmilegur sumarbústaður kostar.  Hér á Bíldudal eru um 30 hús, sem fólk notar sem sumarhús, þessir farfuglar koma á vorin og fara á haustin og hefur þetta bæði kosti og ókosti.

Kostirnir eru;  íbúafjöldinn eykst mikið á sumrin og fólkið kaupir margskonar þjónustu og skilur því eftir peninga á stöðunum og þetta auðgar mannlífið um tíma.

Ókostirnir eru;  Nær allt þetta fólk er með lögheimili á öðrum stöðum og greiðir því ekkert í sameiginlegan bæjarsjóð en fær samt alla þjónustu frá viðkomandi sveitarfélagi, t.d. sorphirðu, vatn ofl.  Ef fólkið væri gert skylt að flytja lögheimili sín til að fá áðurnefnda þjónustu, yrði þetta mikil lyftistöng fyrr viðkomandi bæjarfélög.


mbl.is Hefur selt 12 eignir í Siglufirði á nokkrum mánuðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband