Makríll

Norðmenn biðla nú til landa Evrópusambandsins um að opnað verði á ný fyrir makrílveiðar þeirra í lögsögu ESB. Í bréfi sem sent var öllum aðildarþjóðum ESB segir að verði ekki orðið við beiðninni geti viðræður í haust um gagnkvæmar fiskveiðiheimildir 2010 orðið sérstaklega erfiðar.

En hvað með Ísland?  Verður sömu vitleysunni haldið áfram hér á landi, það er að moka upp makríl í bræðslu á sem skemmstum tíma.  Þetta er gott dæmi um hvaða hagsmuni íslenskur sjávarútvegur hefur af því að Ísland gangi í ESB.


mbl.is Noregur deilir við ESB um makríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Jakob makríllinn er löngu orðinn feitur og nú má ekki veiða hann.

Hann er í rosalegu magni við landið og étur seiði. Sjáðu þetta 

Sigurður Þórðarson, 16.10.2009 kl. 11:22

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er rétt að það er mikið af makríl við landið og við gætum auðveldlega veitt hann ef ekki kæmi til þetta arfavitlausa kvótakerfi, því með því kerfi gerum við lítið annað en að ala upp fisk fyrir aðrar þjóðir til að veiða.

Jakob Falur Kristinsson, 16.10.2009 kl. 12:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband