Smygl

Tollgæslan fann í byrjun október við hefðbundið eftirlit talsvert magn stera í vörusendingu til fyrirtækis. Í sendingunni var loftpressa og höfðu sterarnir verið faldir í loftkút hennar.

Þeir eru miklir snillingar við að finna góða felustaði fyrir smyglvarning þessir menn.  En eru sterar nokkuð hættulegir.  Ég hef heyrt að þeir bæti heilsu fólks, geri fólk sterkara og hraustara, en það má víst ekkert gera í þessu landi. 

Allir eiga að vera aumingjar, sem ekkert geta.


mbl.is Reyndu að smygla sterum í loftpressu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hans Jörgen Hansen

Heimildarmyndin "bigger stronger faster" vill meina það að steranotun sé hættulaus sé þeir notaðir skynsamlega.

Þetta er áhugaverður vinkill í steraumræðu og koma fram margar áhugaverðar staðreyndir um steranotkun sem ekki hafa fengið að vera með.

Mæli allavega með myndinni, veit ekki með sterana

Hans Jörgen Hansen, 18.10.2009 kl. 12:09

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég hef heyrt að sterar væru skaðlausir, en það er auðvitað eins með þá og allt annað að þá verður að nota skynsamlega.

Jakob Falur Kristinsson, 18.10.2009 kl. 13:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband