Baldur

Bæjarstjóra Vesturbyggðar var í gær afhentur undirskriftarlisti með á sjöunda hundrað nöfnum íbúa. Þeir mótmæla fyrirhugaðri fækkun á ferðum Breiðafjarðarferjunnar Baldurs. Heimamenn telja ferðaöryggi stofnað í hættu með þessum fyrirætlunum, enda einnig í farvatninu að fækka snjómokstursdögum.

Það væri brjálæði að fækka ferðum Baldurs, því þetta er eina leiðin fyrir sunnanverða Vestfirði, til að komast á hringveg 1.  Þótt vegir væru sagðir færir  er það oft miðað við velútbúna jeppa.  Að ætla að aka á venjulegum fólksbíl þessa leið er stórhættulegt, þar sem nánast öll byggð frá Barðaströnd og að Króksfjarðanesi er komin í eyði og ef eitthvað kemur fyrir er enga aðstoð hægt að fá.  Farsímasamband á þessari leið er mjög lélegt, svo það nýtist illa.  Einnig má benda á að það þarf að fara yfir marga hálsa og heiðar, sem varla er hægt í blindbil og lélegu skyggni.  Það skeði fyrir nokkrum árum að ungt fólk var á leið til Bíldudals og festi fólksbíl sinn á Kletthálsi og fólkið ætlaði að leita sér aðstoðar og gekk niður í eyðifjörð og komst síðan að bílnum aftur og varð úti þar. Þetta er líka eina leiðin sem vöruflutningabifreiðar geta notað yfir veturinn.


mbl.is Mótmæla fækkun ferða Baldurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband