Fyring aflaheimilda

Eygló Harðardóttir, alþingismaður Framsóknarflokksins, segir að verði farið út í fyrningu aflaheimilda muni það leiða til gjaldþrots Landsbankans. Bankinn sé með um 50% af öllum skuldum sjávarútvegsins og fyrning aflaheimilda kæmi til með að hafa mikil áhrif á þau veð sem bankinn hefur fyrir þessum skuldum.

Alltaf skal Framsókn verða fyrst til ef breyta á núverandi kvótakerfi.  Það átti aldrei að heimila veðsetningu aflaheimilda.  Telur Framsókn að engin fiskur verði veiddur þótt breyting verði á kvótalögunum.  Þótt allar veiðiheimildir verði innkallaðar munu þau fyrirtæki sem skulda þessi lán halda áfram sínum rekstri óbreyttum og ættu þess vegna að getað greitt af þessum lánum.  Ég held hinsvegar að mörg fyrirtæki séu orðin svo skuldsett að þau geti aldrei greitt þessi lán og nú er leitað með logandi ljósi að ástæðu til að afsaka að lánin vera aldrei greidd.  Enda hvaða vit var að taka lán til að kaupa kílóið af þorski á kr. 4.000,- eins og það var hæst og fá kannski 250 krónur á kíló fyrir veiddan þorsk.  Slík dæmi gátu aldrei gengið upp en samt var lánað til að framkvæma þessa vitleysu. og ef illa fer þá fer bankinn bara á hausinn einu sinni enn.  Hjá öllum fyrirtækjum er það reksturinn sem greiðir af lánum, veðin gera það ekki ein og sér.


mbl.is Fyrning setur fjárhag Landsbankans í voða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband