Álver

Álrisinn Rio Tinto Alcan hefur ákveðið að segja upp 350 manns í sjö starfsstöðvum sínum í Frakklandi. Tilgangurinn er að lækka tilkostnað og hagræðing í þágu aukinnar samkeppnisfærni.

Fyrst Alcoa þarf að gera þetta í Frakklandi vegna minni notkunar á áli og mikilla birgða af áli í heiminum, er þá ekki óhætt að afskrifa stækkun í Straumsvík.  Þetta ætti að kenna álelskendum á Íslandi að þótt álver skapi mörg störf.  Þá geta þau störf horfið á einni nóttu, því ættum við að fara varlega að treysta of mikið á að álver bjargi hér öllu í atvinnumálum.


mbl.is Rio Tinto Alcan segir 350 manns upp í Frakklandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Gömul álver eru óhagkvæm í rekstri. Jafnskjótt og þau hafa verið afskrifuð og framleiðsla ekki eftir væntingum eiganda með kostnað í huga, er ekkert annað en að leggja þau niður. Þetta blasir við í álbræðslunni í Straumsvík. Elsti hluti verksmiðjunnar er um 40 ára og eigendur standa frammi fyrir því að endurbyggja verksmiðjuna með ærunum kostnaði eða flytja starfsemina annað. Það kann að vera hagkvæmara að mörgu leyti: styttra með aðföng og fasteignaskattar væntanlega lægri þar en í Hafnarfirði.

Að mörgu leyti væri það vænlegur kostur enda eru önnur viðhorf nú en fyrir 40 árum. Þannig verður verksmiðjan smám saman að þvælast fyrir skipulagi og betri landnýtingu. Þorlákshöfn væri þannig að mörgu leyti hentugri.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 21.10.2009 kl. 13:28

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ætli Alcan loki ekki bara í Straumsvík og þegar það verður hef ég eki mikla trú á að fyrirtækið reisi nýtt álver í Þorlákshöfn, þótt sú staðsetning væri ágæt.

Jakob Falur Kristinsson, 21.10.2009 kl. 17:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband