Lækka greiðslur

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra segir það ekki liggja endanlega fyrir hvaða leiðir verða farnar til að ná boðuðum niðurskurði í útgjöldum Fæðingarorlofssjóðs um 1,5 milljarða króna.

Það var kominn tími til að taka á þessum málum.  Lengi vel var ekkert hámark og þá veit ég um menn sem voru sjómenn á frystitogurum og höfðu miklar tekjur og tóku sér síðan frí sem fæðingarorlof og fengu 80% af sínum fyrri tekjum, sem gat verið yfir milljón á mánuði.  En svo var sett hámark kr: 350 þúsund og 80% af því eru 280 þúsund, sem má teljast þokkaleg laun og má benda á að tekjur öryrkja geta ekki orðið hærri en kr: 180 þúsund á mánuði hjá þeim sem búa einir.  En hjá þeim sem fara í fæðingarorlof er í flestum tilfellum tveir aðilar , sem afla tekna.  Þótt undantekningar séu frá því eins og einstæðar mæður.


mbl.is Hámarksgreiðslur á mánuði verða líklega lækkaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband