Brandari dagsins

Tveir gamlir menn frá Vestmannaeyjum fóru á handfæraveiðar á lítilli trillu, sem annar þeirra átti.  Báðir voru þeir með falskar tennur.  Fljótlega eftir að þeir hófu veiðar fékk annar þeirra mikið hóstakast, sem varð til þess að fölsku tennurnar hrukku út úr munni hans og fóru í sjóinn. 

Félagi hans og bátseigandinn ætlaði að stríða hinum og næst þegar hann dró stóran þorsk, setti hann sínar fölsku tennur upp í þorskinn og kallaði til félaga síns

"Nei sjáðu hvílík heppni, þorskurinn hefur ætlað að gleypa tennurnar þínar og þær eru hér." 

Síðan rétti hann félaga sínum tennurnar og sá setti þær upp í sig en var fljótur að taka þær úr aftur og sagði;

"Nei þetta eru ekki mínar." Síðan henti hann tönnunum í sjóinn aftur. 

Sá sem átti tennurnar sagði ekkert og luku þeir veiðiferðinni á þess að ræða neitt saman, en báðir komu tannlausir í land.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Man eftir því þegar Árni Johnsen sagði þessa sögu og lét í veðri vaka að hún væri sönn. Man ekki hvort hann nafngreindi mennina. Er hún sönn?

Þessi brandari hefur alltaf hitt í mark þegar ég segi erlendum ferðamönnum hana.

Annars hef ég mjög gaman af þessum bröndurum, þó ég skrifi ekki alltaf athugasemd við þá.

Húnbogi Valsson 24.10.2009 kl. 17:23

2 Smámynd: Jón Örn Arnarson

Þetta gæti hafa verið þrír bankar - allir með falskar forsendur með von um geta lifað á eigin lygi.

Jón Örn Arnarson, 24.10.2009 kl. 20:48

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þetta mun vera satt að sögn Árna Johnsen

Jakob Falur Kristinsson, 25.10.2009 kl. 08:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband