Hagar

Félagið "Hagar", sem hefur verið í eigu Jóns Ásgeirs og fjölskyldu, er nú að hluta til komið í eigu Kaupþings og hefur Kaupþing skipað tvo menn í stjórn Haga og hefur nú Jón Ásgeir 7 vikur til að koma með aukið hlutafé að upphæð 7,5 milljarða.  Annars eignast Kaupþing félagið að fullu og hvað skeður þá?  Ætlar Kaupþing að fara að reka verslanakeðju, sem Hagar raunverulega eru?  Eða á að færa þetta félag einhverjum útvöldum?

Ég tel að Jón Ásgeir og hans fjölskylda hafi rekið þetta félag vel og einhverjar annarlegar hvatir búi að baki hjá Kaupþing.  Það er staðreynd að Bónus hefur fært íslensku fólki meiri kjarabætur en nokkrir kjarasamningar hafa gert, með lágu vöruverði.  Þótt margt slæmt megi segja um Jón Ásgeir og hans útrásir til annarra landa.  Þá hafa Hagar alltaf verið kjölfestan í hans rekstri og verið vel rekið fyrirtæki.  Ég held að Kaupþing kæmi best að Jón Ásgeir og hans fjölskylda fengi að reka þetta félag áfram og fá tíma til að greiða sínar skuldir við bankann.  Það er aldrei gott að bankar séu að vasast í fyrirtækjarekstri.  Bæði skekkir það alla samkeppnisstöðu á markaði og óhæfir stjórnendur verða ráðnir vegna tengsla við stjórnendur viðkomandi banka.  Því segi ég við stjórnendur Kaupþings;

Látið Jón Ásgeir í friði með Haga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband