Afskriftir lána

Hagsmunasamtök heimilanna segja að af skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, vegna fyrstu endurskoðunar efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og AGS, megi ráða að sjóðurinn telji mun meiri þörf fyrir niðurfærslu á skuldum heimilanna en áður hefur komið fram.

Þessi samtök telja að færa þurfi íbúðarlánin niður í 65% af núverandi höfuðstól þeirra og bankarnir verði að taka þær afskriftir á sig en ekki ríkissjóður.  En þola íslensku bankarnir þetta?  Þeir eru nú rétt nýskriðnir á lappirnar eftir Hrunið og hafa ekki sterka eiginfjárstöðu.  Einnig er rétt að hafa í huga að allt útlit er fyrir að erlendir kröfuhafar eignist Íslandsbanka og Kaupþing og vafasamt að þeir kæri sig um að afskrifa íslensk húsnæðislán.


mbl.is AGS sér þörfina á leiðréttingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Pétur Axelsson

Hefur einhver spurt sig (fyrir utan HH) hvort íslensk heimili hafi efn á að öllu ruglinu sé velt yfir á þau.

ríkisÓstjórn Íslands byrjar alltaf á öfugum enda. Þessi óStjórn er búin að lögfesta ójöfnuðinn milli skuldara og víxlara andskotans.

Þetta er sko engin jafnaðarstefna, þetta er hreinræktuð óJafnaðarstefna.

Axel Pétur Axelsson, 4.11.2009 kl. 10:20

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Því miður hefur þessi ríkisstjórn stutt meira við bakið á skuldareigendum en skuldurum.

Jakob Falur Kristinsson, 5.11.2009 kl. 10:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband