Ríkisstjórnin

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagðist á Alþingi telja að skoða ætti kosti þess og galla að gera ríkisstjórn Íslands að fjölskipuðu stjórnvaldi þar sem allir ráðherrar bera ábyrgð á stjórnarákvörðunum.

Í búsáhaldabyltingunni varð til nýtt stjórnmálaafl, sem fékk nafnið Borgarahreyfingin og fékk 4 þingmenn kjörna og þeir hafa stöðugt haldið því fram að þeir væru fulltrúar fólksins í landinu.  Reyndar er nú einn af þessum 4 orðin óháður þingmaður og hinir þrír eru í dag ekki í heldur heitir það framboð nú Hreyfingin og eftir sem áður segjast þau vera fulltrúar fólksins í landinu, sem sé búið að fá nóg af svokölluðum fjórflokki.  Væri nú ekki ráð að núverandi ríkisstjórn víki og við tæki minnihlutastjórn Hreyfingarinnar, þá væri fólkið í landinu farið að stjórna Íslandi nánast beint og milliliðalaust.

Er hægt að hugsa sér meira lýðræði.


mbl.is Skoðað að gera ríkisstjórnina að fjölskipuðu stjórnvaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Þú sérð að þó að þau kalli sig stjórn fólksins, þá voru ekki nema nokkur prósent sem vildu fá þau við stjórn, svo að þau eru þá bara að tala fyrir þann hluta... er það ekki? Þeir sem kusu hina flokkana líta eflaust ekki svo á að þessi flokkur sé að tala fyrir þá líka?

Kær kveðja,

Inga Lára

Inga Lára Helgadóttir, 5.11.2009 kl. 13:02

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er alveg rétt.  Þau geta ekki talað fyrir stærri hóp en þann sem kaus þau.

Jakob Falur Kristinsson, 6.11.2009 kl. 09:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband