Nauðgun

Ríkissaksóknari hefur látið falla niður mál gegn tveimur bræðrum á fertugsaldri sem grunaðir voru um að hafa nauðgað 19 ára stúlku í bifreið annars mannsins við Tryggvagötuna í maí sl.

Auðvitað var ekki ákært í þessu máli, því Hæstiréttur hefur með dómum sínum gefið til kynna mjög sterklega að allt í lagi sé að nauðga konum.  Nýlega féll dómur í Hæstarétti um nauðgun á ungri stúlku, sem var haldið nauðugri í hálfan sólahring á meðan gerandinn nauðgaði henni aftur og aftur.  Að vísu var sá maður dæmdur en allur dómurinn var skilorðsbundinn, svo að dómi loknum var maðurinn frjáls ferða sinna og með vottorð frá Hæstarétti um að nauðgun væri ekki alvarlegt brot.  Nú getur þessi sami maður haldið áfram iðju sinni við að lokka til sín ungar stúlkur og nauðgað þeim.


mbl.is Ekki ákærðir fyrir nauðgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

?? Eitthvað virðast þessi 75% ná hátt upp að hársverðinum..

Fransman 21.11.2009 kl. 12:55

2 Smámynd: ThoR-E

Sammála þér Jakob.

Hvað ætli margir nauðgarar hafi komist úr landi til síns heima á meðan þeir voru í farbanni.

Hvað ætli mörg fórnarlömb sitji eftir með sárt ennið.

 Þetta er til skammar!!!

ThoR-E, 21.11.2009 kl. 14:16

3 Smámynd: Viðar Helgi Guðjohnsen

Það á ekki að ákæra nema að það liggi rökstuddur grunur fyrir sekt og að nær öruggt sé að sakfelling náist.

Annars algjörlega sammála hvað dómana varðar, það þarf að þyngja refsingar hér og taka upp endurgjaldsstefnuna aftur. Betrunarstefnan virkar ekki.

Viðar Helgi Guðjohnsen, 21.11.2009 kl. 15:13

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Eitthvað verður að gera, því núverandi ástand er ekki líðandi.

Jakob Falur Kristinsson, 22.11.2009 kl. 10:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband