N1

Hagnaður af rekstri N1 fyrir skatta nam 923 milljónum fyrir skatta fyrstu tíu mánuði ársins samanborið við rúmlega 2,1 milljarðs tap á sama tímabili í fyrra.

Þetta er mikill viðsnúningur í rekstri hjá þessu fyrirtæki.  En auðvitað er hann til kominn vegna að flest olíufélögin hafa hækkað sína álagningu í skjóli hækkunar hjá ríkinu á bensín- og olíugjaldi.Þeir ættu nú að sjá sóma sinn í að láta verulegan hluta af hagnaðinum renna til Fjölskylduhjálpar Íslands.


mbl.is Hagnaður hjá N1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst Örn Grétarsson

Eiga þeir þá líka að fara og betla hjá fjölskylduhjálp þegar er tap af fyrirtækinu? Þetta hlýtur að virka í báðar áttir!

Þegar er tap er þetta illa rekið drasl fyrirtæki. Þegar er hagnaður er þetta evil gróða corporation!

Ágúst Örn Grétarsson, 1.12.2009 kl. 11:51

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Hverslags rugl er þetta, ég var aðeins að benda á að góð afkoma gæfi fyrirtækinu möguleika á að styrkja Fjölskylduhjálp Íslands.  Ég hef aldrei gefið til kynna að ef N1 væri rekið með tapi, þá væri það eitthvert drasl fyrirtæki.  En þar sem þú ert greinilega að snúa út úr mínum skrifum þér til ánægju.  Þá get ég sagt það að mér er andskotans sama ef það veitir þér einhverja fullnægingu að skrifa svona.

Jakob Falur Kristinsson, 1.12.2009 kl. 15:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband