Sjávarspendýr

Rússneskur vísindamaður, sem vinnur við að þjálfa seli til notkunar í leiðöngrum á vegum hersins, kvartar undan því í blaðaviðtaki að Rússar séu að heltast úr lestinni í kapphlaupinu við Bandaríkjamenn um hervæðingu sjávarspendýra.

Flest er nú farið að nota í sambandi við hernað.  Munu Rússar ekki þá fara að beita stórhvölum í hernaðarskini, fyrst Bandaríkjamenn eru orðin á undan með selinn.  Hvar eru nú öll dýraverndunarsamtökin, sem telja þessi sjávardýr nánast heilög.  Nú geta þeir Bandaríkjamenn sem hafa ættleitt hvali allt í einu vaknað upp við þann vonda draum að þeirra hvalur sé í hernaðarátökum einhver staðar í heiminum.


mbl.is Hervæðing sjávarspendýra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Steinsson

Þetta er ekkert nýtt. Svona fyrir utan klassíska notkun á dýrum eina og hestum, fílum, hundum og bréfdúfum í hernaði þá er langt síðan farið var að kalla ýmis önnur dýr í herinn. Bandaríski flotinn byrjaði að þjálfa höfrunga í kringum 1960 og nokkur dæmi eru um að dýr eins og hundar, svín og jafnvel leðurblökur væru notuð til að bera sprengjur í seinni heimstyrjöld svo eitthvað sé nefnt.

Einar Steinsson, 1.12.2009 kl. 17:32

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er sennilega alveg rétt að þetta er ekki að byrja núna.

Jakob Falur Kristinsson, 2.12.2009 kl. 12:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband