Gagnrýni

Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn Reykjavíkur, gagnrýndi Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borgarstjóra, harðlega á borgarstjórnarfundi fyrir að víkja ekki einu orði að nauðsynlegu uppgjöri við 18 ára ríkisstjórnartíð Sjálfstæðisflokksins og ábyrgð hans á efnahagshruninu heldur reyna að skella skuldinni á núverandi efnahagserfiðleikum á þá ríkisstjórn sem nú væri að glíma við að láta enda ná saman í ríkisfjármálum.

Þótt allir viti það, er eins og aldrei megi segja frá því að Sjálfstæðisflokkurinn fór með stjórn efnahagsmála í 18 ár samfellt og ber flokka mest ábyrgð á efnahagshruninu.  Það þýðir ekkert að reyna að ásaka Samfylkinguna því þegar hún kom i ríkisstjórn var búið að koma málum í þann farveg að Hrunið var ekki hægt að stoppa og þegar það skall á þá voru þeir á stöðugum leynifundum, þeir, Davíð Oddsson, Geir H. Haarde og Árni Matthiesen og tóku kolrangar ákvarðanir þegar þeir þjóðnýttu Glitnir á einni nóttu, sem varð til að hinir bankarnir fóru líka.  Þótt Samfylkingin væri með viðskiptaráðuneytið var sá ráðherra aldrei hafður með í ráðum.  Enda voru allar fyrstu aðgerðir mótaðar af hefndarhug Davíðs Oddsonar gegn ákveðnum hluthöfum Glitnis.


mbl.is Dagur gagnrýnir borgarstjóra harðlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband