Gordon Brown

Niðurstöður tveggja skoðanakannana sem birtar voru í Bretlandi í dag spá Íhaldsflokknum sigri í þingkosningum á næsta ári. Þetta dregur úr líkum á að stjórn Gordons Brown haldi velli, að því er fréttavefur Reuters greinir frá.

Af tvennu illu er nú gallagripurinn Gordon Brown skárri kostur en að Íhaldsflokkurinn komist aftur til valda á Bretlandi.  Þá fyrst er kominn tími til að Bretar biðji;

Guð að hjálpa sér.


mbl.is Gengi Browns dvínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Blessaður farðu nú að vakna af þessari vinstri villu - hefurðu ekki lesið fréttir af efnahag Bretlands upp á síðkastið ??

Tími Brown og Darling er liðinn, sem betur fer fyrir brezka alþýðu !!!

Sigurður Sigurðsson, 6.12.2009 kl. 13:26

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég hef lesið fréttir um ástandið í Bretlandi og Bretar þurfa allt annað í dag en Íhaldsflokkinn með sína Thatsher-frjálshyggju.  Þá fyrst fer allt til fjandans.

Jakob Falur Kristinsson, 7.12.2009 kl. 10:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband