Myntkörfulán

Hagsmunasamtök heimilanna lýsa í ályktun yfir vonbrigðum með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, í máli sem reis vegna deilna um lögmæti myntkörfuláns vegna bílakaupa. Saka samtökin héraðsdóm um að heimila samninga sem snúist um ólögmætt athæfi, eins og til dæmis þjófnað.

Myntkörfulánin eru ólögleg, en dómur er dómur og ekkert að gera nema að sætta sig við hann.  Af því þessi samtök nefna þjófnað.  Þá er ekkert við því að segja, því allir sem geta stela því sem þeir mögulega geta og hafa gert í langan tíma.


mbl.is Lýsa vonbrigðum með dóm í myntkörfulánsmáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Þór Björnsson

Það er auðvelt að sjá að dómstólar landsins fara ekki eftir landslögum, þar ráða annarleg sjónarmið og fyrirfram ákveðnir dómar. Sérstaklega á þetta við um hæstarétt íslands sem er gjörspillt pólítísk stofnun jötugæðinga sem ekkert hafa sér til ágætis nema tengsl eða vensl við ráðamenn og flokka.

Þú færð ekkert réttlæti hér ef þú ert venjulegur maður.

Árni Þór Björnsson, 7.12.2009 kl. 12:50

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er rétt.

Jakob Falur Kristinsson, 8.12.2009 kl. 09:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband