Gjaldþrot

Þúsundir ferðamanna eru nú strandaglópar eftir að stærsta flugfélag Skotlands, Flyglobespan, varð gjaldrota. Systurfélag þess, Globespan, fór í kjölfarið í greiðslustöðvun og var öllum flugferðum þess aflýst og 800 manns misstu vinnuna.

Það er víðar en á Íslandi, sem fyrirtæki verða gjaldþrota í stórum stíl, með tilheyrandi afleiðingum.  Okkar stærsta flugfélag Icelandair er haldið gangandi vegna þess að ríkið er þar stærsti eigandinn.


mbl.is Strandaglópar eftir gjaldþrot flugfélags
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arngrímur Stefánsson

Ég lenti nú í svipuðu þegar ég flaug með Futura til og frá spáni.  Daginn þegar fara átti heim fór fyrirtækið í greiðsluþrot og var ég fastur 6 tíma á flugvellinum og kom Iceland Express Íslenskum túristum til bjargar. 

Hefði samt kosið að það hefði verið Iceland Air því flugvélin var óþægileg, engin heyrnartól hægt að kaupa, og ekkert sjónvarpsefni.  Ekki bætti úr skák að ég var 18 ára og gat því keypt mér nokkra bjóra í spænska flugfélaginu enn þurfti að vera bláedru, sjónvarps og tónlistarlaus á bakaleiðinni.  Það var greinilegt að fríið var löngu búið áður enn ég myndi lenda. 

Arngrímur Stefánsson, 17.12.2009 kl. 19:47

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er ömurleg lífsreynsla, að vera búinn að skipuleggja gott frí og greiða fyrir.  En lenda svo í því að flugfélagið sem átti að flytja farþegana er allt í einu orðið gjaldþrota.  IcelandExpress veitir enga þjónustu um borð í sínum vélum og þannig ná þeir að halda verðinu niðri.  En þegar greitt hefur verið fyrir ákveðna ferð, á ferðamaðurinn rétt á því að fá þá þjónustu, sem greitt hefur verið fyrir.

Jakob Falur Kristinsson, 18.12.2009 kl. 10:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband