Lyfjakostnaður

Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna ákveðinna öndunarfæralyfja breytist 1. janúar 2010. Breytingin felur í sér að ódýrustu innúðalyfin til meðferðar við astma og langvinnri lungnateppu verða með almenna greiðsluþátttöku sjúkratrygginga. Er markmiðið að spara 2-300 milljóna króna útgjöld sjúkratrygginga.

Þarna er verið að gera hóp af sjúklingum að tilraunadýrum, með því að nota aðeins ódýrustu lyfin við þeirra sjúkdómum.  Það er enginn vandi að spara í heilbrigðiskerfinu, með því að velta sífellt hærri kostnaði yfir á sjúklinganna.


mbl.is Greiðsluþátttaka í öndunarlyfjum breytist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki má gleyma að svokölluð samheitarlyf eru ekki einhliða "kópí" af upprunalegu lyfi, eins og flestir kaupendur halda ! Þau eru kannski ódýrari enda ódýrari efni í þeim vegna fjöldaframleiðslu. Hvet sem flesta að kynna sér innihald þessara lyfja á lyfjahandbókinni á vefnum.

Viskan 18.12.2009 kl. 11:24

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þau lyf, sem kölluð eru samheitalyfi, gera sama gagn og upprunalegu lyfin.  En hvort innihaldið sé það sama dreg ég í efa.

Jakob Falur Kristinsson, 19.12.2009 kl. 09:38

3 identicon

Sammála, enda ávallt yfirlýsingar í apótekum um að þau geri sama gagn, en að sjálfsögðu er ekki gerð grein fyrir muninn á innihaldi og aukaverkunum...

Viskan 19.12.2009 kl. 10:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband