Gott að ekki fór verr

Ökumaðurinn sem handtekinn var um hádegisbilið í dag eftir mikla eftirför í Kópavogi, keyrði á fjóra lögreglubíla. Eftirförin hófst í Hafnarfirði en þar veittu lögreglumenn eftirtekt bíl sem stolið var í nótt. Ökumaðurinn keyrði á ofsahraða og varð lögreglan að keyra á bílinn til að stöðva hann.

Þetta hefur verið mikill glæfraakstur.  En hvort meiri hætta stafaði af hinum handtekna ökumanni eða lögreglunni er tvísýnt.  Því miður er það alltof algengt að þegar lögreglan er að elta bíla, þá ekur lögreglan ekki síður hættulegra en sá sem eltur er.  Hvort er betra að grunaður ökumaður sleppi eða stórslys verð á lögreglumönnum.


mbl.is Mildi að ekki fór verr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Sigurðsson

Þú meinar sem sagt að leyfa manninum bara að fara sína leið, út úr dópaður og mögulega drepa einhvern einhversstaðar á leið sinni. Ég held ekki, það verður að stöðva svona menn með öllum ráðum.

Gísli Sigurðsson, 20.12.2009 kl. 18:11

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég er að meina að ekki verði gengið svo langt að lögreglumenn séu í stórhættu og jafnvel slasist alvarlega, eins og dæmi eru um.

Jakob Falur Kristinsson, 20.12.2009 kl. 19:36

3 Smámynd: Hannes

Ef maður er að nauðga konu með hníf á löggan að leyfa manninum að ljúka sér af í ró og næði af því að hann gæti slasað lögreglumann við handtökuna?

Það þarf að ná svona fólki af götunni og loka inni á Litla Hrauni og henda lyklunum.

Ef fólk hagar sér eins og þessi þjófa aumingi þá hef ég engar áhyggjur af hans öryggi bara af öryggi almennings og lögreglunnar.

Hannes, 21.12.2009 kl. 01:11

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég var einmitt að skrifa um að lögreglumenn gætu verið í hættu og slasast, en hef enga samúð með brotamönnum.

Jakob Falur Kristinsson, 21.12.2009 kl. 10:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband