Bréf

Medvedev heilsar Jóhanni Karli, Spánarkoningi, í...Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sendi Dmitrí Medvedev, forseta Rússlands, leynilegt bréf fyrir þremur vikum. Var sérstakur sendiboði látinn afhenda Rússlandsforseta bréfið sem fjallaði um kjarnorkuvæðingu Írans.

Til hvers er Obama að senda forseta Rússlands bréf?  Veit hann ekki að forsetinn ræður engu í Rússlandi heldur er það Pútín sem öllu ræður.  Forsetinn er aðeins leppur þar til Pútín má bjóða sig fram aftur sem forseti.


mbl.is Obama sendi Medvedev leynilegt bréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bylgjan

Alla þessa viku eða næstu ætlar útvarpsstöðin Bylgjan að flytja eingöngu jákvæðar fréttir.  Þetta er gott framtak, því landsmenn eru búnir að fá yfir sig nóg af öllum þeim fréttum sem fjalla um vandræði og erfiðleika hjá fólki og fyrirtækjum. 

    Þeir eiga hrós skilið sem ráða ríkjum á Bylgjunni.


Vestmannaeyjar

Vestmannaeyjaflugvöllur. Róbert Marshall, aðstoðarmaður Kristjáns L. Möller, samgönguráðherra, segir að engin ákvörðun liggi fyrir um endurskoðun ákvörðunar um skerta þjónustu á Vestmannaeyjaflugvelli. Árni Johnsen, þingmaður suðurkjördæmis segir ráðherra hafa lofað því hátíðlega að skerðingin yrði afturkölluð.

Þarna verður engin skerðing á þjónustu.  Ef Árni Johnsen er búinn að kreista loforð út úr samgönguráðherra, þá er víst að Árni fylgir því eftir hvað sem það kann að kosta og hvað aðferðum verður beitt.


mbl.is Engin ákvörðun um endurskoðun lokunar í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjúkrahúsið Vogur

Meðferðarstöð SÁÁ, Vogur36 ný tilfelli af lifrarbólgu C fundust á Sjúkrahúsinu Vogi á síðasta ári. Það er heldur minna en undanfarin ár. 1122 einstaklingar sem hafa sprautað sig í æð hafa komið á Sjúkrahúsið Vog á síðustu 5 árum. Gerð hafa verið skimunarpróf fyrir alnæmissmiti hjá nær öllum án þess að ný tilfelli af alnæmissmiti hafi fundist meðal þeirra.

Ekki veit ég hvort er verra að greinast með lifrabólgu C eða alnæmi.  Því báðir þessir sjúkdómar eru ólæknandi og dregur fólk til dauða.  Ætli það skipti þann sem er dauður nokkru máli með hvaða sjúkdóm hann greindist og orsakaði dauðann


mbl.is 36 greindir með lifrarbólgu en enginn með alnæmi á Vogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bush

George W. Bush Bandaríkjaforseti á síðasta blaðamannafundi...Birt hefur verið skjal frá valdatíð George W. Bush Bandaríkjaforseta þar sem fram kemur að forsetinn hafi ótakmarkaða heimild til að framselja fanga til annarra ríkja án tillits til þess hvort hætta væri á að þeir yrðu pyntaðir.

Þetta þarf ekki að koma neinum á óvart.  Því það er með ólíkindum hvað þessi maður komst upp með.  Það er líka stór furðulegt að bandarískir kjósendur skildu á sínum tíma kjósa þennan vitleysing, sem forseta Bandaríkjanna.


mbl.is Bush leit framhjá pyntingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lokaðir vegir

Mynd 485996 Vegna snjóflóða og snjóflóðahættu eru lokaðir vegirnir um Súðavíkurhlíð, Óshlíð og á Eyrarhlíð. Veður fer versnandi á norðanverðum Vestfjörðum og er mokstur víðast hvar í biðstöðu. Ekkert ferðaveður er og er fólk beðið um að vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu.

Þetta er nú það ástand sem Vestfirðingar ofl. á landsbyggðinni verða að búa við.  Eftir að ég flutti hingað í Sandgerði og gerði snjókomu heyrði ég oft fólk tala um hvernig færðin væri á heiðinni.  Ég áttaði mig ekki á því um hvaða heiði fólk var að tala um.  En það var þá Miðnesheiði, þótt ég sé búinn að búa hér í rúm 3 ár hef ég aldrei fundið neina heiði.  Miðnesheiðin er bara smá hæð ef maður miðar við það sem ég var vanur frá Vestfjörðum.


mbl.is Vegir lokaðir vegna snjóflóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Færri nemendur

Grunnskólinn í Norðlingaholti Grunnskólanemendum fækkar frá síðasta skólaári en nemendur í grunnskólum á Íslandi voru 43.511 haustið 2008, auk þess sem 135 börn stunduðu nám í 5 ára bekk í 5 skólum. Grunnskólanemendum hefur fækkað um 330 frá síðastliðnu skólaári, eða 0,7%. Á sama tíma fjölgar starfsfólki við kennslu. Haustið 2008 voru 7.858 starfsmenn í grunnskólum á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 232 frá hausti 2007 eða um 3,0%.

Samkvæmt þessu eru færri nemendur hjá hverjum kennara en áður var og því ætti kennslan að vera betri.


mbl.is Færri nemendur en fleira starfsfólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Suðurlandsvegur

Suðurlandsvegur í Svínahrauni Vegagerðin hefur tilkynnt frummatsskýrslu um 31 kílómetra kafla Suðurlandsvegar, frá Hólmsá ofan Reykjavíkur að Hveragerði. Jákvæð áhrif á samgöngur, útivist og vatnsvernd eru talin vega þyngra en þau neikvæðu áhrif sem verða á gróður, jarðfræði og náttúruminjar. Breikkun vegarins mun hafa verulega jákvæð áhrif á umferðaröryggi og afköst vegarins í heild.

Það er merkilegt við þessa skýrslu að 2+2 vegur hefur meiri neikvæð áhrif á umhverfið en 2+1 vegur.  2+1 vegur er betri að því leiti að þá er hægt að leggja nýjan veg lengri leið.  2+1 vegir eru algengir víða erlendis t.d. í Lúxemborg en auðvitað verða ökumenn að vera þess meðvitaðir að þriðja akreinin er einungis ætluð fyrir framúr akstur.


mbl.is Umferðaröryggi og afköst aukast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loðnuleit

Mynd 313214Áhöfnin á Faxa RE er nú við loðnuleit á svæðinu vestur og norðvestur af Snæfellsnesi. Loðnuleitin fer fram í samvinnu við Hafrannsóknastofnunina er Sveinn Sveinbjörnsson fiskifræðingur um borð í skipinu.

Ég held að það sé útséð með að það verður engin loðnuveiði í vetur.  Nú er kominn mars og spákellingin í Vestmannaeyjum var búinn að fullyrða að loðnan kæmi í lok febrúar.  En þetta er ekki alslæmt því nú fær loðnan að ganga vestur í Breiðafjörð og kemur sér vel fyrir þorskinn.  Nú ætti að auka þorskkvótann um 150 þúsund tonn, þá myndi loðnan í raun skila einhverjum verðmætum í þjóðarbúið.  Hinsvegar verður þetta mikið áfall hjá fyrirtækjum sem eru mest í uppsjávarveiðum.


mbl.is Leita loðnu við Snæfellsnes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pizza Jut

Mynd 478587Fyrirtækið, sem rekið hefur þrjá Pizza Hut staði í Danmörku, ætlar að hætta því og verða staðirnir þrír því lagðir niður. Segir forsvarsmaður félagsins, að danskur veitingahúsarekstur gangi illa, einkum þó pítsustaðir.

Það er víðar en á Íslandi sem fólk hefur lítið af peningum.  Það er eins og mig minni að einhverjir íslendingar hafi komið þessum rekstri af stað á sínum tíma.


mbl.is Pizza Hut hættir rekstri í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband