Færri nemendur

Grunnskólinn í Norðlingaholti Grunnskólanemendum fækkar frá síðasta skólaári en nemendur í grunnskólum á Íslandi voru 43.511 haustið 2008, auk þess sem 135 börn stunduðu nám í 5 ára bekk í 5 skólum. Grunnskólanemendum hefur fækkað um 330 frá síðastliðnu skólaári, eða 0,7%. Á sama tíma fjölgar starfsfólki við kennslu. Haustið 2008 voru 7.858 starfsmenn í grunnskólum á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 232 frá hausti 2007 eða um 3,0%.

Samkvæmt þessu eru færri nemendur hjá hverjum kennara en áður var og því ætti kennslan að vera betri.


mbl.is Færri nemendur en fleira starfsfólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já kennsla hefur löngum verið vanmetið starf.

Jakob Falur Kristinsson, 3.3.2009 kl. 10:15

2 identicon

Það er ákaflega grunnhyggið að fá út úr þessari frétt að færri nemendur séu hjá hverjum kennara en áður.  Frekar að fleira fólk komi að hverjum nemenda en fyrr  t.d. vegna stefnunnar um skóla fyrir alla, fjölbreyttari kennsluhátta, lengingar skóladags o.fl.

Sigrún Sighvatsdóttir 3.3.2009 kl. 11:00

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Hvað er svona grunnhyggið?  Ég skrifaði að þá væru færri nemendur á hvern kennara en áður.  Er það ekki nákvæmlega það sama og að segja fleiri kennarar komi að hverjum nemanda en fyrr.

Jakob Falur Kristinsson, 3.3.2009 kl. 11:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband