17.7.2008 | 05:58
Hraðakstur
Lögreglan á Selfossi var við hraðamælingar á Suðurlandsvegi, við Svínahraun, í um klukkustund í dag. Á þeim tíma stöðvaði hún sextán ökumenn fyrir of hraðan akstur. Sá er ók greiðast, var á 130 km hraða.
Hvað liggur fóli svona mikið á að það getur ekki ekið á löglegum hraða. Ég hef verið að undra mig á því, að núna er búið að setja upp hraðamyndavélar bæði á Sandgerðisveg og Garðsveg, en engin er á Reykjanesbrautinni, þar sem umferð er þó miklu meiri en á hinum tveimur vegunum. Ég hefði haldið að fólk reyndi að spara eldsneyti þegar það er í hæstu hæðum. Þegar ég ek Reykjanesbrautina, sem nú er búið að tvöfalda að Grindavíkur afleggjaranum, þá ek ég á 80 til 90 km. hraða, því þá eyðir minn bíll minnst. þrátt fyrir það að ég sé á löglegum hraða þjóta bílarnir fram hjá mér og oft hef ég orðið hissa þegar flutningabílar og rútur sem ekki mega aka hraðar en á 80 krn eru að fara fram úr mér og eru örugglega vel yfir 100 km. hraða. Eins hef ég tekið eftir því að merktir fyrirtækisbílar aka langt yfir hámarkshraða enda þurfa bílstjórar þeirra bíla ekki að greiða sektina sjálfir ef þeir eru teknir. Mér finnst að bílar frá einu ákveðnu fyrirtæki séu verstir í umferðinni en það eru bílar frá Íslandspósti. Þeir eru kannski að flytja hraðpóst, sem gæti skýrt þetta og bílstjórinn telur sig hafa sama rétt og sjúkrabílar, hver veit? Það er að sjálfsögðu virðingarvert hjá Íslandspósti að koma póstinum til skila fljótt og vel en að brjóta umferðarlög til þess finnst mér nú full langt gengið. Sá sem ekur á yfir 100 km hraða er að eyða um 10% til 20% meira af eldsneyti en ef ekið er á löglegum hraða og mínúturnar sem sparast eru mjög fáar. En þeir sem eru í vinnu hjá öðum við akstur þurfa ekki að borga eldsneytið og er því alveg sama, en fyrirtækin hljóta að gera þær kröfur til sinna bílstjóra að haga sér vel í umferðinni og brjóti ekki umferðarlög.
![]() |
Sextán teknir fyrir of hraðan akstur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2008 | 05:13
Honum tókst það
Benedikt Hjartarson náði undir miðnættið því takmarki sínu að synda yfir Ermarsund. Benedikt tók land austan við Cap Gris-Nez Frakklandsmegin klukkan 23:36 að íslenskum tíma og hafði þá synt 60 km vegalengd og verið á sundi í 16 klukkustundir og 1 mínútu.
Það er full ástæða til að óska Benedikt til hamingju með þetta sundafrek. Þetta geta ekki nema hraustustu menn.
Jafnfram bið ég kappann afsökunar á því að hafa verið að gera grín vegna þessa sunds hér á minni blogg-síðu.
![]() |
Tókst að synda yfir Ermarsund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.7.2008 | 04:58
Skemmtiferðaskip
Farþegaskip frá Venezuela með tólf hundruð farþega innanborðs var kyrrsett í New York höfn í dag eftir að bandaríska landhelgisgæslan fann verulegar skemmdir á skrokki skipsins.
Hvernig dettur mönnum í hug að gera út handónýtt skip til skemmtiferða og taka 1200 farþega. Skip þetta mun víst skráð á Bahamaeyjum og við skoðun kom í ljós að skrokkur þess var mjög illa farinn og skipið hriplegt. Auk þess voru gerðar 66 athugasemdir við björgunarbúnað skipsins, þetta var í raun fljótandi dauðagildra.
![]() |
Farþegaskip kyrrsett |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2008 | 21:48
Olíuverð
Verð á hráolíu hefur haldið áfram að lækka á heimsmarkaði í dag, m.a. vegna nýrra upplýsinga um að eldsneytisbirgðir í Bandaríkjunum jukust milli vikna þvert á væntingar fjárfesta. Hefur verðið lækkaði um rúma 5 dali tunnan á markaði í New York í dag og samtals um nærri 12 dali á tveimur dögum.
Hver andskotinn er nú að ske. Það er byrjað að lækka bensín og olíu, þetta veit ekki á gott. En er á meðan er.
![]() |
Olíuverð heldur áfram að lækka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.7.2008 | 21:36
Jón Ólafsson
Jón Ólafsson athafnamaður kveðst saklaus af ákærum um skattsvik en ákæra um skattsvik á árunum 1999 til 2002 var þingfest í Héraðsdómi í dag. Þess var krafist að annar tveggja verjenda Jóns viki sæti í málinu vegna þess að hann kynni að verða kallaður til sem vitni.
Auðvitað er maðurinn saklaus þótt hann hafi lagfært aðeins skattaskýrsluna sína. Það hefur aldrei verið talin glæpur á Íslandi að svíkja aðeins undan skatti. Annars er þetta ótrúlegur maður, þegar Norðurljósaveldið var að hruni komið tókst honum að selja allt batteríið og fara úr landi með nokkra milljarða í vasanum. Síðan snýr hann sér að vatnsútflutningi, sem margir íslendingar haf reynt án árangurs. En Jóni tekst að markaðasetja sitt vatn í Bandaríkjunum með þátttöku stórfyrirtækis þar í landi og er núna að byggja stóra verksmiðju í Þorlákshöfn og allt bendir til að honum takist að flytja út nokkur þúsund tonn af vatni árlega ef ekki nokkur hundruð þúsund tonn. Allir aðrir sem hafa reynt þetta hafa farið lóðrétt á hausinn. Jón mun víst ekki hafa neitt nám að baki bara barnaskólapróf ef hann náð því sem vafi er á. En það er sama honum tekst að slá algerlega við öllum markaðsfræðingum og rekstrarhagfræðingum. Maðurinn virðist græða á öllu sem hann tekur sér fyrir hendur svo ég er hræddur um að ríkisskattstjóri með alla sína hásólamenntuðu sérfræðinga, muni ekki ná tökum á Jóni Ólafssyni og þetta mál sem hefur verið 6 ár í rannsókn verður örugglega svipað Baugsmálinu að því líkur með einni allsherjar skítalykt og verða þeim sem að því stóðu til skammar. Hvernig má það vera að það taki 6 ár að skoða skattaframtal hjá einum manni og þótt ríkinu takist að ná einhverjum peningum af Jóni verður það ekki nema brot af öllum þeim kostnaði sem þessi 6 ára rannsókn hefur kostað. Það kæmi mér ekki á óvart að sumt af því sem Jón er ákærður fyrir væri fyrnt.
![]() |
Segist saklaus af ákærum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2008 | 16:26
Sund yfir Ermasund
Sundmaðurinn Benedikt Hjartarson er hálfnaður með að synda yfir Ermarsundið. Hann hefur nú synt yfir 25 km, eða sem jafngildir 20.000 sundtökum. Þrátt fyrir að hafa verið stunginn af marglyttu fyrr í dag hefur sundið gengið ágætlega.
Jæja vonandi tekst þetta núna hjá karlgreyinu. En þá er eftir að komast til baka, og það held ég að hann klári ekki að synda.
![]() |
Benedikt hálfnaður yfir Ermarsund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.7.2008 | 16:19
Íslenska kvótakerfið í fiskveiðum
Því hefur oft verið haldið fram að íslenska kvótakerfið væri það besta í heimi. Ef þessi fullyrðing er rétt, þá bið ég nú Guð um að hjálpa öllum öðrum þjóðum heimsins, því þá hlýtur stjórn fiskveiða hjá öllum öðrum löndum á hnettinum að vera hryllingur. Þegar þetta kerfi var sett á 1984 var sagt að um væri að ræða kerfi til reynslu í eitt ár og átti bara við um þorsk, ýsu,ufsa og karfa. En núna er hvert einasta kvikindi sem syndir í sjónum orðin eign einhvers. Á þessum tíma var Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og Halldór Ásgrímsson var sjávarútvegsráðherra. Ég og Steingrímur vorum á þeim tíma góðir vinir og alltaf þegar hann var á ferð um Vestfirði gisti hann heima hjá mér. Oft sendi ég honum upplýsingar úr mínu fyrirtæki um hvernig reksturinn gengi og ég var mjög ánægður á einum miðstjórnarfundi í Framsóknarflokknum en þar flutti Steingrímur góða ræðu um sjávarútveginn og notaði glærur sem varpað var á tjald sem sýndu hinar ýmsu lykiltölur úr rekstri sjávarútvegsfyrirtækja og ég kannaðist við hverja mynd því þetta hafði ég allt sent honum fyrir þennan fund að hans beiðni. Oft hringdi Steingrímur til að fá upplýsingar og alltaf ef ég átti leið til Reykjavíkur vildi hann að ég kæmi á hans fund til að spjalla um stöðu mála hverju sinni. Einnig veit ég að hann átti marga svona trúnaðarvini um allt land og gat þannig haft fingurinn á þjóðarsálinni og vissi alltaf hvað var að ske á hverjum tíma. Þegar kom að því að taka upp þetta kvótakerfi hafði Steingrímur miklar áhyggjur af því að binda þetta við skip. Hann vildi skipta þessu á milli vinnslu og veiða en af hálfu Halldórs kom það ekki til greina. Hann sagði eitt sinn við mig að hann hefði af því miklar áhyggjur að verið væri að setja af stað eitthvert kerfi sem stjórnvöld myndu síðan missa öll tök á og aðrir ráða meira en stjórnvöld. Eins veit ég að það pirraði Steingrím hvað Halldór var linur gagnvart L.Í.Ú. enda mun Kristján Ragnarsson hafa verið tíður gestur hjá Halldóri og ef gera þurfti einhverjar breytingar á kvótakerfinu þá mætti Kristján með flösku og hann og Halldór fóru í bíltúr á ráðherrabíl Halldórs yfirleitt út í Örfirisey, og meðan flaskan var að tæmast þá voru gerðar þær tillögur sem Kristján vild fá í gegn. Ég hef nú ekki tölu á öllum þeim breytingum sem gerðar hafa verið á lögum um stjórn fiskveiða. frá 1984 en þær skipta tugum. Enda hafði starfsfólkið í ráðuneytinu á orði þegar Kristján mætti; "Að nú væri eins öruggt og nótt fylgir degi að breyting á kvótakerfinu væri á næsta leiti."
En hitt er deginum ljósara að þetta kerfi átti aldrei að snúast um verndun fiskistofna, heldur búa til gervipeninga fyrir útgerðina í formi verðlagningu á kvóta, sem nú er heimilt að veðsetja. Það þarf heldur engan að undra þótt lögin um stjórn fiskveiða séu eitt allsherjar rugl. Því öll veigamestu atriðin í lögunum eru samin af þeim félögum Kristjáni Ragnarssyni f.v. formanni LÍÚ og Halldóri Ásgrímssyni, blindfullum út í Örfirisey á góðviðrisdegi. Áhyggjur Steingríms af því að verið væri að setja af stað verkefni sem stjórnvöld misstu síðan alla stjórn á voru líka réttamætar. Að kalla þetta síðan besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi er þvílíkt öfugmæli að þau munu varðveitast á spjöldum sögunnar sem tákn um hvað sumir menn hafa getað verið heimskir. Við eigum ekki besta kvótakerfi í heimi, heldur eigum við heimsmet í heimsku hinna ýmsu ráðherra.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.7.2008 | 09:37
Eyðibyggðastefnan
Byggð mun nánast leggjast af í mörgum sveitarfélögum innan fárra áratuga, haldi sama þróun áfram og verið hefur undanfarin fimmtán ár. Þetta kemur fram í skýrslu Byggðastofnunar um byggðarlög þar sem fólksfækkun er viðvarandi.
Ég var að skrifa um þetta í gær og ætla ekki að endurtaka það hér en í gær nefndi ég sérstaklega Bíldudal en þar hefur fækkun orðið rúm 50% á 15 ára tímabili og fækkar enn. Það er ekkert nema gott um það að segja að Byggðastofnun sendi frá sér svona skýrslur. En þá verða stjórnvöld og sérstaklega byggðamálaráðherrann Össur Skarphéðinsson að gera eitthvað til að forða því að heilu landsvæðin fari í eyði. Vestfirðingar eru duglegir að bjarga sér og það nýjasta til að skapa atvinnu var að fara af stað með ferðamennsku að norskri fyrirmynd. Þetta byggist á því að taka á móti ferðamönnum og leigja þeim litla báta til að veiða með sjóstöng. Síðan má hver ferðamaður taka með sér 20 kg af flökum heim af þeim fiski sem hann veiddi. Þetta hefur verið stundað í Noregi í nokkur ár og þangað koma á milli 20-40 þúsund veiðimenn. Það eru einkum Þjóðverjar sem sækja í þessar ferðir en nú er farið að bera á ferðamönnum frá öðrum löndum. Fyrsta sumarið 2007 sem þetta var stundað voru tvö fyrirtæki í þessari starfsemi og allt gekk vel og fyrirtækin skiluðu hagnaði, en þá kom áfallið, sem var bakreikningur frá Fiskistofu fyrir leigu á öllum þeim fiski sem veiddur hafði verið og litlu munaði að fyrirtækin yrðu gjaldþrota. Þegar var komið að því að bóka í ferðir fyrir 2008 settu fyrirtækin kvótaleigu inn í verðið en ekki varð það til að draga úr eftirspurn í þessar ferðir og munu nú í sumar koma á milli 3.000 til 4.000 ferðamenn til að veiða fisk. En þá kom andskotans kvótinn til sögunnar og fyrirtækin sem voru búin að selja í þessar ferðir urðu að leigja kvóta sama hvað hann kostaði. Þetta hefur haft þau áhrif að hinn venjulegi trillukarl gat ekki lengur leigt til sín kvóta því hann var svo dýr. Ég hef heyrt frá trillukörlum, sem kenna Vestfirðingum og þessari ferðamennsku um mikla hækkun á leiguverði á aflakvóta. En ég held að þeir ættu frekar að styðja Vestfirðinga í þeirri baráttu um það að veiðar þýsku sjóstangveiði mannanna, verði undanþegin kvóta. Því að ætla að kenna Vestfirðingum um, er eins og að hengja bakara fyrir smið.
Svo er líka til önnur gerð af sjóstangaveiðum, en þá eru haldin ákveðin mót sem sótt eru af yfirstétt okkar þjóðar og þá þarf engan kvóta.
Í Noregi þurfa fyrirtæki sem eru í nákvæmlega sama rekstri ekki að hafa áhyggjur af kvóta, því Norska ríkið lætur sér nægja allar tekjurnar af ferðamönnunum en eru ekki að passa að einhver útgerð sem á kvóta nýti sér þessa ferðamennsku til að ná sér í peninga. En á Íslandi passa stjórnvöld að sægreifarnir geti braskað með kvótann sinn og nýtt sér framtak annarra til að ná sér í pening.
Það kann að vera að sumum finnist þetta ekki vera mikið mál en fyrir litlu sjávarþorpin á Vestfjörðum er þetta stórmál. Þegar maður fer að skoða þetta vandlega kemur á óvart hvað mörg störf verða til við þessa starfsemi. Ferðamennirnir þurfa gistingu og mat og sumir taka jafnvel bílaleigubíla og skoða Vestfirði. Það verða til nokkur störf við bátanna, því að löndun lokið þarf að þrífa bátana og gera þá klára fyrir næsta dag. Eins eru sumir sem vilja fara út úr fjörðunum og þá þarf að vera tiltækur skipstjóri til að fara með þeim og margt fleira týnist til.
Væri nú til of mikils ætlast að stjórnvöld í okkar landi styddu við bakið á þessari ferðamennsku og létu þessar veiðar vera utan kvóta. Þetta er nú ekki meira magn en svo að það er aðeins brot af þeim fiski sem kemur í flottroll uppsjávarveiðiskipa og fer í bræðslu. Ef svo illa er komið fyrir okkar fiskistofnum að nokkrar sjóstangir í nokkra mánuði á ári, myndu eyðileggja allt starf Hafró þá er ástandið á Íslandsmiðum skelfilegt og ætti að banna allar veiðar strax hér við land.
Nei það er ekki fiskvernd sem þarna ræður för og hefur aldrei gert síðan þetta kerfi var sett á heldur virðast varðhundar kvótakerfisins ráða algerlega yfir öllum gerðum sjávarútvegsráðherra Einars K. Guðfinnssonar. Það hafa verið tvö fyrirtæki í þessari ferðamennsku og það þriðja var stofnað í Bolungarvík fyrir stuttu og ætlar að vera með fullt af veiðimönnum næsta sumar. Þannig að við getum brátt átt von á því að um 10 þúsund ferðamenn komi til Vestfjarða til að veiða fisk. Það eru ekki bara Vestfirðir sem fá hlut af komu þessara hópa. Þeir þurfa að fara með flugi til Íslands og líka heim aftur,þeir gista oftast tvær nætur á hótelum og versla á höfuðborgarsvæðinu. Vestfirðingum svíður það einnig að í þessu kvótarugli skuli Vestfirðingurinn Einar Kristinn Guðfinnsson dansa vangadans við sægreifanna brosandi út að eyrum, þrátt fyrir að fólkið sem kaus hann á Alþingi og treysti honum, lepji dauðan úr skel. Ég kalla þetta eyðibyggðastefnu, því það eru stjórnvöld sem hafa komið því til leiðar að byggðir eru við það að fara í eyði. Nú er verið að vinna að miklum snjóflóðavörnum á Vestfjörðum, ég hef heyrt nefnt að varnargarðarnir sem eiga að skýla Bíldudal muni kosta um 3 milljarða og eitthvað álíka upphæð í Bolungarvík og einhverjir milljarðar fara á aðra staði. En til hvers er verið að þessari vitleysu að eyða nokkrum milljörðum til að verja byggð sem búið er að ákveða að eigi að fara í eyði. Ég bara næ þessu ekki.
Að það þurfi aflakvóta fyrir veiðum þýskra manna með sjóstöng á Vestfjörðum er til skammar.
![]() |
Byggðarlög leggjast í eyði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.7.2008 | 17:52
Fólksfækkun
22 sveitarfélög á landi, einkum þó á Vestfjörðum og Norðurlandi eystra, falla undir skilgreiningu Byggðastofnunar um viðvarandi fólksfækkun á tímabilinu 1996 til 2006. Er þá miðað við 15% fækkun íbúa eða meira.
Þetta þarf ekki að koma neinum á óvart. Á Vestfjörðum þar sem ég þekki best til, þá byggðust sjávarþorpin upp á sínum tíma vegna aðgengis að fiskimiðunum. Nú þegar það hefur verið af þeim tekið, hrynja byggðirnar. Þegar ég var að reka frystihús,togaraútgerð og 2 línu- og rækjuskip á Bíldudal þá störfuðu hjá mínu fyrirtæki yfir 100 manns og 1990 fór íbúatalan þar að nálgast 450 manns og hafði ekki verið fleira fólk á Bíldudal síðan um 1950 en nú búa innan við 200 manns á staðnum. Þetta er mjög hliðstæð þróun um alla Vestfirði. Það er oft talað um að atvinnuleysi sé lítið á Vestfjörðum og er það rétt. Það á sér eðlilegar skýringar fólkið sem missir vinnu sína flytur einfaldlega á þá staði þar sem vinnu er að fá en bíður ekki atvinnulaust eftir einhverju sem aldrei kemur, tölurnar sem ég nefndi frá Bíldudal sýna þetta best. Á sínum tíma voruð sameinuð 4 sveitarfélög á sunnanverðum Vestfjörðum en þetta skeði 1992 Þetta voru eftir talin sveitarfélög íbúatala innan sviga:
Bíldudalshreppur (450 íbúar), Patrekshreppur (900) Rauðasandshreppur (150) og Barðastrandarhreppur ( 250) Þetta nýja sveitarfélag fékk nafnið Vesturbyggð og íbúafjöldi 1.450 manns. Í dag eru íbúar í Vesturbyggð um 700 og fækkar enn. Ef ekki verður gert eitthvað róttækt í atvinnumálum á Vestfjörðum þá munu þeir leggjast í eyði og öll húsin verða nýtt sem sumarhús. Það sagði mér eitt sinn maður sem var einn af þeim síðust sem að fluttu frá Grunnavík í Jökulfjörðum. Að það hefði ekkert verið hægt að gera nema koma búslóðinni um borð í bátinn og setja stefnuna á Ísafjörð og líta aldrei til baka. Það lýsir best hvílík örvænting er ráðandi hjá fólki ,sem enn býr á Vestfjörðum að það tekur fegins hendi að fá olíuhreinsistöð og það í einn fallagsta fjörðinn, sem er Arnarfjörður og þótt flestir viti að þessi stöð verðu aldrei reist á Vestfjörðum þá er hún samt hálmstrá sem margir hanga í. Fólkinu finnst að það hafi þó einhverja von um betri tíma.
Það sem raunhæfast væri að gera væri það að setja til sveitarfélaganna 25 þúsund tonna aflakvóta og síðan myndi hvert sveitarfélag geta leigt þetta út gegn vægu gjaldi og fengið tekjur og atvinnulífið tæki kipp. Þetta ætti að byggjast á krókaveiðum og skilyrði að öllum afla yrði landað til vinnslu á Vestfjörðum. Ástæðan fyrir því að ég óttast að Vestfirðir fari í eyði er líka sú að Vestfirðingar misstu sinn besta talsmann, sem var Einar Oddur Kristjánsson, sem var sá eini af stjórnarliðum á Alþingi, sem þorði að segja sína skoðun, þótt hún vær kannski alveg eftir flokkslínunni. og rétt áður en hann lést hafði hann verið í viðtali við BB á Ísafirði og þar lýsti hann áhyggjum sínum hvernig kvótakerfið væri að fara með Vestfirði og taldi jafnframt að skoða þyrfti kvótamálin niður í kjölinn. En nú njóta Vestfirðingar ekki lengur starfskrafa Einars Odds og þá kemur að Nafna hans Einari Kristinn, sjávarútvegsráðherra, ætlar hann að horfa þegjandi á Vestfirðir fara í eyði? Einar K. Guðfinnsson nú er boltinn hjá þér og hvað ætlar þú að gera? Ég held að ég geti svarað fyrir ráðherrann og svarið er: Akkúrat ekki neitt.
![]() |
Viðvarandi fólksfækkun í 22 sveitarfélögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.7.2008 | 16:46
Settur inn
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, verður settur inn í embætti þann 1. ágúst næstkomandi eins og venjan er. Hefur hann þá setið í þrjú kjörtímabil. Athöfnin verður í Dómkirkjunni og verður síðan haldið í Alþingi.
Það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég las að forsetinn hefði verið settur inn í fangelsi. En svo er nú víst ekki heldur innsetning í embættis forseta og er Ólafur þar með að byrja sitt þriðja kjörtímabil. Ég er mjög ánægður með Ólaf, sem forseta. Ég kaus hann á sínum tíma og mér finnst hann hafið staðið sig mjög vel og þær breytingar sem hann hefur gert á embættinu mjög góðar. Það eina sem mér finnst um forseta Íslands á hverjum tíma, er það að mér finnst þeir ættu að hafa meiri völd. Nú er að störfum stjórnarskrárnefnd og eftir því sem ég hef heyrt munu Sjálfstæðismenn vilja draga úr völdum forseta. Davíð Oddson, æðstiprestur sjálfstæðismanna mun víst aldrei geta gleymt þegar Ólafur neitaði að skrifa undir fjölmiðlalögin sem voru mjög umdeild. Og þegar Davíð segir eitthvað þá eru það um leið lög hjá Sjálfstæðismönnum. En vonandi stoppar Samfylkingin það af ef stjórnarskrárnefnd ætlar að draga úr þessum litlu völdum sem forsetinn þó hefur. Eins og ég sagði áður finnst mér að forsetinn eigi að hafa meiri völd í okkar þjóðfélagi. Það skeður ekkert þótt Davíð Oddson verði brjálaður í Seðlabankanum. Hann má vera í fýlu fyrir mér eins lengi og hann vill.
![]() |
Embættistaka forseta verður 1. ágúst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
2006
Tenglar
Ýmsir tenglar
- Arnfirðingur
- Bíldudalur
- Bolungarvík
- Bæjarins besta á Ísafirði
- Guðrún Rebekka Jakobsdóttir Edinborg
- Falið vald
- Flateyri
- Frjálslyndi flokkurinn
- Ísafjörður
- Júdit Krista Jakobsdóttir, Bíldudal
- Kristinn Ásgeirsson, Danmörku
- Kristinn H. Gunnarsson
- KVÓTASVINDLIÐ MITT
- Mats Wibe Lund
- Óvinir Ísland
- Skipamyndir Þorgeir Baldursson ljósmyndari
- Suðureyri
- Strandabyggð
- Súðavík
- Tálknafjörður
- Tíðis-fréttavefur
- Vesturbyggð
- VÍSIR.IS
SKIPAMYNDIR
- Fiskistofa Ýmsar upplýsingar
- Gísli Reyisson Aflafréttir
- Hafþór Hreiðarsson Skipamyndir
- Ragnar í Grindavík Skipamyndir
- Skip.is Ýmsar upplýsingar
- Þorgeir Baldursson SKIPAMYNDIR
- http://
Bloggvinir
-
Adda bloggar
-
Ágúst H Bjarnason
-
Albertína Friðbjörg
-
Alma Jenny Guðmundsdóttir
-
Anna
-
Anna Guðný
-
Anna Heiða Stefánsdóttir
-
Anna Pálsdóttir! :)
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Apamaðurinn
-
Arinbjörn Kúld
-
Ásgerður Jóna Flosadóttir
-
Arnlaugur Helgason
-
Arnþór Helgason
-
Ársæll Níelsson
-
Ásdís Rán
-
Ásgeir Jóhann Bragason
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Ásgeir Sveinsson
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Baldur Smári Einarsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bara Steini
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Birna M
-
Bjarney Bjarnadóttir
-
Bjarni Baukur
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Bjarni Kjartansson
-
Baldur Hermannsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Bjarki Þór Guðmundsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Björgvin S. Ármannsson
-
Björgvin Guðmundsson
-
Björn Leví Gunnarsson
-
Björn Finnbogason
-
Bragi Sigurður Guðmundsson
-
Bragi Sigurðsson
-
Hommalega Kvennagullið
-
Bwahahaha...
-
Davíð Pálsson
-
Davíð S. Sigurðsson
-
Didda
-
Dunni
-
Edda Agnarsdóttir
-
Edda Sveinsdóttir
-
Eggert Þór Aðalsteinsson
-
Egill Jón Kristjánsson
-
egvania
-
Einar B Bragason
-
Einar Kristinn Guðfinnsson
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Eiríkur Sjóberg
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Emil Örn Kristjánsson
-
J. Einar Valur Bjarnason Maack
-
Elín Margrét Guðmundsdóttir
-
Evrópusamtökin, www.evropa.is
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
-
FF
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Faktor
-
Fannar frá Rifi
-
Finnur Bárðarson
-
Fjarki
-
Friðrik Höskuldsson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Georg Birgisson
-
Gestur Guðjónsson
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnar Þór Ólafsson
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Guðjón Heiðar Valgarðsson
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Guðjón Ó.
-
Guðmundur St Ragnarsson
-
Guðmundur Zebitz
-
Guðni Gíslason
-
gudni.is
-
Guðrún Hafdís Bjarnadóttir
-
Guðrún Jónína Eiríksdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðrún Una Jónsdóttir
-
Guðrún Helgadóttir
-
Guðrún S Hilmisdóttir
-
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gísli Sigurðsson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Haffi
-
Hafrún Kristjánsdóttir
-
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
-
Halla Rut
-
Halldór Sigurðsson
-
Halldór Örn Egilson
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Hallur Magnússon
-
Haraldur Bjarnason
-
Haraldur Davíðsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Heimir Lárusson Fjeldsted
-
Heiður Helgadóttir
-
Helga Dóra
-
Helga Sigrún Harðardóttir
-
Helga Þórðardóttir
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Himmalingur
-
Hilmar Sæberg Ásgeirsson
-
hilmar jónsson
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Hjalti Sigurðarson
-
Hjartagullin mín
-
Hinrik Þór Svavarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Hlekkur
-
Huld S. Ringsted
-
Hólmdís Hjartardóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
hreinsamviska
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Hörður Halldórsson
-
Hörður Hilmarsson
-
Hvíti Riddarinn
-
Ingunn Jóna Gísladóttir
-
Ingvar Valgeirsson
-
Jakob Kristinsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jens Guð
-
Jens Sigurjónsson
-
Jóhannes Jónsson
-
Jóhanna Fríða Dalkvist
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jóhannes Þór Skúlason
-
Jón Baldur Lorange
-
Jón Halldór Eiríksson
-
Jón Kristófer Arnarson
-
Jón Finnbogason
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Jónína Benediktsdóttir
-
Kama Sutra
-
Karl Tómasson
-
Karl V. Matthíasson
-
Katrín
-
Kjarri thaiiceland
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristinn Sigurjónsson
-
Kristinn Theódórsson
-
Kristján Pétursson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Lilja Skaftadóttir
-
Lovísa
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Lýður Árnason
-
Maddý
-
Magnús Þór Friðriksson
-
Margrét Sigurðardóttir
-
Marinó Hafnfjörð Þórisson
-
Magnús H Traustason
-
Marinó Már Marinósson
-
Marzellíus Sveinbjörnsson
-
Morgunblaðið
-
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
Natan Kolbeinsson
-
Níels A. Ársælsson.
-
Ólafía Margrét Guðmundsdóttir
-
Ólafur Þór Gunnarsson
-
Ólafur Tryggvason Þorsteinsson
-
Ólafur Ragnarsson
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Ólafur Tryggvason
-
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
-
Ólöf de Bont
-
Óskar Helgi Helgason
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Paul Nikolov
-
Páll Höskuldsson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
percy B. Stefánsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Borgþórs
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Ragnhildur Jónsdóttir
-
Ragnhildur Sverrisdóttir
-
Regína R
-
Ruth
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Rúna Guðfinnsdóttir
-
Rögnvaldur Þór Óskarsson
-
Samtök Fullveldissinna
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
-
Sigríður Hafdís Þórðardóttir
-
Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir
-
Sigurður Haukur Gíslason
-
Sigurður Jón Hreinsson
-
Sigurður Jónsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Snorri Bergz
-
Sigurjón Sveinsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Þorsteinn Briem
-
Steinþór Ásgeirsson
-
Svartagall
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sævar Einarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sólveig Aradóttir
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
TARA
-
Tiger
-
Tinna Eik Rakelardóttir
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valbjörn Júlíus Þorláksson
-
Valdimar Leó Friðriksson
-
Valan
-
Vefritid
-
Vestfirðir
-
Viggó H. Viggósson
-
Vilborg Auðuns
-
Þórbergur Torfason
-
ÞJÓÐARSÁLIN
-
Þórhallur Heimisson
-
Þórhallur Pálsson
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Þórir Kjartansson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Þór Jóhannesson
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Jón V. Þorsteinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 1
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 802138
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 24.1.2010 Jakob Kristinsson er látinn.
- 21.1.2010 Spakmæli dagsins
- 21.1.2010 Obama
- 21.1.2010 Icesave
- 21.1.2010 Mótmælendur ákærðir
- 21.1.2010 Norwegian
- 21.1.2010 Kaninn og RÚV
- 21.1.2010 Látinn laus
- 21.1.2010 Kína
- 21.1.2010 Hvað vill félagsmálaráðherra?
182 dagar til jóla
Nýjustu færslurnar
- Skömm af veiðgjaldafrumvarpinu
- NATO kaffi og kleinur
- Ranghugmynd dagsins - 20250625
- Auðmjúk Kristrún ræddi við Trump.
- Úreltir fordómar og úreltar skilgreiningar vegna samruna
- Mót-6. Mosó. 23. júní, 2025.
- Vígvellir Úkraínu bíða íslenskra ungmenna ... Höfnum styrjöld þeirra
- Lítil vinna fyrir ungdóminn á evrusvæðinu
- Kristrún í klemmu á NATÓ ráðstefnu
- Þjóðverjar vígbúast, enn á ný.
Af mbl.is
Viðskipti
- Mælikvarðar eru víða
- Kínversk fyrirtæki leita á ný mið
- Nýr framkvæmdastjóri Fly Over Iceland
- Aukin velta á vormánuðum
- Alþjóðlegir frumkvöðlar verðlaunaðir á Íslandi
- Verðmætin sem virðast leynast í Kviku
- Innlánaaukning að hluta vegna lántöku
- Merki Robotaxi ekki traustvekjandi
- Óvissa um Hormussund hækkar olíuverð
- Stoppa vegna öryggis