Ellilífeyrisþegar

Alþingi samþykkti í dag að lækka vasapeninga ellilífeyrisþega um 35 milljónir króna á næsta ári frá því sem upphaflega var gert ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár. Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokks, sagði að um væri að ræða jafnvirði 7 klukkustunda af Icesave-skuldbindingum.

Gat ríkisstjórnin ekki fundið annað til að spara en lækka vasapeninga gamla fólksins um 35 milljónir, en til samanburðar má nefna að kostnaður við rekstur ráðherrabílanna er um 70 milljónir á ári.  Það er búið að skerða greiðslur til ellilífeyrisþega og öryrkja og enn er þrengt að kjörum gamla fólksins og það af ríkisstjórn, sem, kennir sig við velferð.

Þetta er nú meiri andskotans velferðin.


mbl.is Vasapeningar ellilífeyrisþega skertir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Saga Akranes

Á fundi bæjarstjórnar Akraness lagði formaður bæjarráðs fram bókun þar sem fram kemur að sagnaritari, sem vinnur að ritun Sögu Akraness, hafi sl. 10 ár þegið 73 milljónir kr. frá Akraneskaupstað vegna verkefnisins. Fram kemur á vef Skessuhorns að ýmsum sé farið að þykja verkefnið taka of langan tíma og kosta of mikið.

Hann vinnur greinilega rólega þessi söguritari, sem hefur verið í 10 ár að rita sögu Akranes og fengið greitt 73 milljónir fyrir.  Ætli hluti bókarinnar verði ekki orðin úreltur þegar þessi bók kemur út. 

Ef hún kemur þá nokkuð út.


mbl.is 73 milljónir fyrir að rita sögu Akraness
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sarah Palin

Sarah Palin, forsetaframbjóðandi repúblikana í fyrrahaust, hlýtur þann vafasama heiður að hljóta titilinn lygari ársins fyrir þau ummæli að heilbrigðisfrumvarp Baracks Obama Bandaríkjaforseta feli í sér „dauðanefndir“. Það er vefsíðan PolitiFact sem stendur fyrir valinu.

Hún er alltaf jafn seinheppin í orðavali þessi aumingja kona.  Hún virðist nota öll meðul til að auglýsa bók sína og vekja á sér athygli.


mbl.is Palin lygari ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögfræðiálit

Í lögfræðiáliti bresku lögfræðistofunnar Mishcon de Reya fyrir fjárlaganefnd Alþingis er fjallað í löngu máli um evrópska innistæðutryggingakerfið án þess að komist sé að skýrri niðurstöðu. Lögfræðistofan segir þó að það ríki ljóslega lagalegur efi á að aðildarríki að Evrópska efnahagssvæðinu beri skylda til að tryggja lágmarksgreiðslur úr innistæðutryggingasjóði ef sjóðurinn getur ekki staðið undir þeim skuldbindingum.

Mér sýnist að þingmenn tíni út úr þessu lögfræðiáliti það, sem þeim hentar best.  Það er mikill munur á því hvort að þingmenn er í stjórn eða stjórnarandstöðu.  Alltaf geta þeir fundið eitthvað í þessu áliti, sem styður þeirra málflutning.


mbl.is Lagalegur efi um skuldbindingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ivesave

„Það sem stendur upp úr í áliti Mishcon de Reya er að fyrirvarar Alþingis frá því í sumar eru að engu orðnir, það hallar gríðarlega á hagsmuni Íslands, það er ekkert jafnvægi á milli samningsaðila, og það er fjallað um hina lagalegu skyldu á þann veg að hún sé í reynd ekki til staðar,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks. Álitið staðfesti því máflutning stjórnarandstöðunnar í meginatriðum.

Þetta er alveg rétt hjá Bjarna, en hann gleymir að nefna að það kom líka fram í þessu áliti að ef Icesave-frumvarpið verður fellt verða Íslendingar í enn verri málum, því hægt væri að gjaldfella kröfuna og krefjast greiðslu strax.  Það er alltaf gott að geta vitnað í svona álit, en þá verður að segja allan sannleikan, en ekki  bara hluta hans.


mbl.is Staðfestir málflutning minnihlutans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afbrot

Alls voru skráð tæplega 6.000 hegningarlaga-, umferðarlaga-og fíkniefnabrot í nóvember. Hegningarlagabrotin voru 1.168 eða 19%, umferðarlagabrotin 4.706(79%) og fíkniefnabrotin 119(2%). Hegningarlagabrotum fækkaði um 19% en umferðarlagabrotum fjölgaði um 19% og voru þau rúmlega 700 fleiri í ár en í fyrra. Fíkniefnabrotum fækkaði um 10%.

Það munaði ekki um það, tæp 6000 hegningalagabrot í einum mánuði.  En vonandi fer að draga úr þessu aftur.  Öll fangelsi yfirfull og því ganga brotamenn lausir eftir að hafa játað brot sín.


mbl.is 6 þúsund afbrot skráð í nóvember
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gallaður barnastóll

IKEA biður viðskiptavini sína sem eiga Leopard barnastól að hætta strax að nota stólinn og skila sætinu og grindinni til IKEA. Tekið er á móti stólnum í Skilað og skipt og verður hann að fullu endurgreiddur. IKEA hefur fengið 11 tilkynningar um brotna smellulása á stólunum.

Alltaf er það ánægjulegt þegar verslun bregst svona fljótt við þegar upp kemur galli á vöru, sem hún hefur selt.

Gott hjá IKEA

 


mbl.is IKEA innkallar barnastóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fækkun

Þann 1. desember 2009 voru íbúar með lögheimili á Íslandi 317.593. Ári áður var íbúafjöldi 319.756 og hefur þeim því fækkað milli ára um 2163 íbúa eða 0,7%. Mest er fækkunin hlutfallslega á Austurlandi. Þar fækkaði um 431 einstakling, eða 3,3% frá fyrra ári.

Þetta þarf ekki að koma neinum á óvart, þar sem margir eru að flýja land vegna allra þeirra erfiðleika, sem á Íslandi eru í dag.  Þessi þróun mun halda áfram og nokkuð víst að tölur um fækkun verða enn meiri 1. desember 2010.


mbl.is Landsmönnum hefur fækkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spakmæli dagsins

Kæri jólasveinn,

gefðu okkur nú eitthvað

gott í skóinn.

(Jóhanna og Steingrímur)


Þáttökugjald

Samfylkingin á Seltjarnarnesi efnir til forvals 30. janúar næstkomandi um röðun á framboðslista í sveitarstjórnarkosningunum 29. maí 2010. Stefnt er að sameiginlegri kynningu á frambjóðendum í dreifiriti og á sérstökum kynningarfundi. Þátttökugjald er kr. 20.000, að því er segir í tilkynningu.

Þarf nú að fara að greiða þáttökugjald til að taka þátt í prófkjörum. 

Þvílík andskotans vitleysa og rugl.


mbl.is Þátttökugjald 20 þúsund hjá Samfylkingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband