Sofið á verðinum

 Gjaldeyrisskiptasamningar, sem Ísland gerði við seðlabanka Svíþjóðar fyrr á árinu um kaupa allt að 500 milljónir evra fyrir krónur á markaðsgengi hverju sinni, hefur ekki verið virkjaður. Þetta kemur fram í samtali Bloomberg fréttastofunnar við Brittu von Schoulz hjá sænska seðlabankanum.

Hvað var eiginlega að ske, voru allir sofandi?  Gjaldeyrisskiptasamningur sem gerður var fyrr á árinu ekki nýttur.  Heldur er beðið þar til allt er komið í vitleysu og öngþveiti.


mbl.is Sænskur gjaldeyrisskiptasamningur ekki virkjaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misheppnaður brandari

John McCain.Tilraun Joe, bróður bandaríska forsetaframbjóðandans Johns McCains, til að segja brandara á kosningafundi í Virginíu, mæltist ekki sérlega vel fyrir.

Brandarar koma ekki John McCain í Hvíta húsið.  Það er löngu orðið ljóst að það verður Obamba sem þangað fer.


mbl.is Misheppnaður brandari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fundir

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra yfirgaf... „Er ekki betra að vanda til verka heldur en að fara út með eitthvað sem ekki er rétt,“ sagði Þorgerðu Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra þegar hún fór af fundi í Ráðherrabústaðnum nú fyrir skömmu. „Auðvitað eru menn að reyna að setja sér tímamörk og koma með eitthvað fyrir morgundaginn.“

Nú held ég að sé kominn tími til að Geir H. Haarde segi af sér og láti Þorgerði Katrínu taka við.  Þorgerður hefur það fram yfir Geir að hún þorir að taka ákvarðanir, án þess að fá leyfi hjá Davíð Oddsyni fyrst.


mbl.is Biðlað til helstu vinaþjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baugur

Verslun Karen Millen í Covent Garden í London.Euler Hermes, breskt viðskiptatryggingafélag hefur sagt upp samningum við nokkra af birgjum Baugs í Bretlandi, að því er breska blaðið Independent on Sunday segir frá í dag.

Ekki eru þetta góðar fréttir nema kannski fyrir Davíð Oddsson


mbl.is Vill ekki tryggja viðskiptaskuldir fyrirtækja Baugs við birgja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherrar

Björgvin G. Sigurðsson var fámáll eins og aðrir. Gestkvæmt er áfram í Ráðherrabústaðnum þar sem fundahöld hafa staðið yfir frá því klukkan 9 í morgun. Nú laust eftir klukkan 14 komu Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks og Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, af fundi með ráðherrum.

Það er mikil ferð á ráðherrunum í dag.  Hvað ætli þeir leysi frekar í ráðherrabústaðnum á sunnudegi sem þeir ekki gátu á venjulegum ríkisstjórnarfundi?


mbl.is Ráðherrar og þingmenn koma og fara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Silfur Egils

Ég ætlaði að bæta aðeins við það sem kom fram hjá Þorvaldi Gylfasyni prófessor í þessum þætti.  Hann fullyrti að Seðlabankinn hefði á undanförnum árum gert mikil mistök.  Og aðspurður hvað væri til ráða við því var svarið einfalt.  Skipta um stjórnendur og síðan bætti hann við að ef ríkisstjórnin réði ekki heldur við vandann yrði bara að skipta um hana líka.  Varðandi Alþjóða Gjaldeyrissjóðinn sagði Þorvaldur "Við skulum búa okkur undir það að sá sjóður gerði kröfu um að við sæktum um aðild að ESB og tækjum upp evru."

Milljarðar fluttir heim

Lífeyrissjóðirnir hafa verið að flytja heim fjármuni á síðustu vikum. Lífeyrissjóðirnir hafa á síðustu vikum og mánuðum verið að færa heim fjármuni í talsvert miklum mæli. Ekki liggur hins vegar fyrir um hversu háar upphæðir er að ræða, en þó er ljóst að um tugi milljarða er að ræða.

Getur þessi ríkisstjórn ekkert gert af viti.  Hver gefur henni vald til að krefjast að lífeyrissjóðir okkar verði látnir kaupa ónýtar krónur fyrir erlendan gjaldeyrir.  Ég sem öryrki hef að vísu kynnst því að ríkisvaldið þykist eiga minn lífeyrissjóð og lækkar mínar bætur um þær greiðslur sem ég fæ frá lífeyrissjóði.


mbl.is Tugir milljarða fluttir heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neyð

Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, kemur til... Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, sagði þegar hann kom af fundi í Ráðherrabústaðnum nú um klukkan 15, að unnið væri hörðum höndum að aðgerðaáætlun vegna fjármálakreppunnar og hann vissi ekki annað en að það gengi prýðilega.

Auðvitað gengur þetta ágætlega með því að ætla að velta vandanum yfir á hinn almenna launamann.


mbl.is Telur vinnu ganga vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankarnir

Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambands Íslands. „Forsenda fyrir okkar aðkomu að þessu máli er að bankarnir selji hluta eigna sinna erlendis," segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands. Hann segir að það sé forgangsmál að lækka skuldir þjóðarbúsins erlendis og það sé ekki nóg að lífeyrissjóðirnir flytji heim fjármuni. Bankarnir verði að gera það líka.

Þetta er rétt hjá Eiríki.  Þeir sem komu okkur í þennan vanda eiga auðvitað að vera þeir fyrstu sem einhverju þurfa að fórna til að leysa hann.


mbl.is Bankarnir verða að selja eignir erlendis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræðsla við Alþjóðagjaldeyrisvarasjóðinn

Í Silfri Egils í dag var rætt við Þorvald Gylfason prófessor.  Þar kom fram að eitt af því sem núverandi ríkisstjórn er að brölta við að gera er að fá Lífeyrissjóði landsins til að selja eignir sínar erlendis og kaupa í staðinn íslenskar krónur, sem eru nánast verðlausar.  Eftir að fjármálasnillingar þessa lands hafa fengið að leika lausum hala við útrásina frægu og eru búnir að skuldsetja sín fyrirtæki fyrir upphæð sem er öll þjóðarframleiðsla Íslands í eitt ár þá á að nota lífeyrissparnað okkar til að bjarga málum.  En Þorvaldur benti á annað að til er stofnun sem leita á til þegar svona vandi kemur upp og það er Alþjóða Gjaldeyrisvarasjóðurinn.  Þá vaknar sú spurning af hverju er það ekki gert og skýringin kom hjá Þorvaldi.  Þegar sá sjóður tekur að sér að veita aðstoð gerir hann kröfur um að stokka algerlega upp fjármálakerfi viðkomandi lands og þá er hætt við að hausar munu fljúga.  Seðlabankinn og aðrir bankar yrðu teknir í endurskoðun og spilin stokkuð upp á nýtt.  Það er þetta atriði sem íslensk stjórnvöld vilja forðast í lengstu lög, heldur á að nota lífeyrissparnað okkar.  Hinn almenni launamaður á að setja í hættu sinn lífeyrissparnað til að sumir menn geti haldið haus og verið áfram á sínum ofurlaunum.

Bloggfærslur 5. október 2008

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband