Sofið á verðinum

 Gjaldeyrisskiptasamningar, sem Ísland gerði við seðlabanka Svíþjóðar fyrr á árinu um kaupa allt að 500 milljónir evra fyrir krónur á markaðsgengi hverju sinni, hefur ekki verið virkjaður. Þetta kemur fram í samtali Bloomberg fréttastofunnar við Brittu von Schoulz hjá sænska seðlabankanum.

Hvað var eiginlega að ske, voru allir sofandi?  Gjaldeyrisskiptasamningur sem gerður var fyrr á árinu ekki nýttur.  Heldur er beðið þar til allt er komið í vitleysu og öngþveiti.


mbl.is Sænskur gjaldeyrisskiptasamningur ekki virkjaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Líney

Er ekki bara beðið eftir að hlutirnirreddist af  sjálfu sér?

Líney, 5.10.2008 kl. 16:41

2 Smámynd: Ómar Ingi

Þreytandi fundir og allir sofnaðir

Ómar Ingi, 5.10.2008 kl. 18:21

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Allar aðrar siðmenntaðar þjóðir ráða fagmenn í seðlabanka. Kannski í Úganda eða einhverjum slíkum ríkjum dytti mönnum í hug að ráða fyrrum forsætisráðherra í starfið þó hann hafi ekkert vit á hagfræði.

Sigurður Þórðarson, 5.10.2008 kl. 21:42

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Auk Davíðs eru reyndar tveir aðrir bankastjórar sem á að heita að stjórni málum, Eiríkur Guðnason og Ingimundur Friðriksson. Báðir eru þeir hámenntaðir hygg ég í sínum fræðum.

Magnús Geir Guðmundsson, 5.10.2008 kl. 22:48

5 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er mikið af hámenntuðu fólki í Seðlabankanum, en vandinn er bara sá að kraftar þeirra eru ekki nýttir.  Davíð ræður öllu og gerir það sem honum sýnist.  Honum nægir ekki að vera alsráðandi í bankanum, heldur vill hann líka stjórna Sjálfstæðisflokknum og kemst upp með það.

Jakob Falur Kristinsson, 6.10.2008 kl. 06:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband