17.11.2008 | 20:56
Afsögn Guðna Ágústssonar
Nú hefur Guðni Ágústsson sagt af sér sem formaður Framsóknar og jafnframt þingmennsku. Þetta kom öllum á óvart svo ekki sé meira sagt. Það verður mikil eftirsjá af Guðna af Alþingi, bæði var kann skemmtilegur karakter og góður ræðumaður. Nú tekur væntanlega Áldrottningin Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður við sem formaður a.m.k. fram að flokksþinginu sem verður í lok janúar en ekki á ég nú von á því að hún muni ná þar kjöri sem formaður og má jafnvel þakka fyrir að ná kjöri inná þing í næstu kosningum. Það skyldi þó ekki verða svo að Bjarni Harðarson verði sannspár, en hann sagði í þættinum Mannamál í gær að ef Guðni yrði undir í ákvörðun um aðild af ESB þá gæti restin af flokknum alveg eins gengið í Samfylkinguna. Það er nokkuð ljóst að Guðni hefur metið stöðuna sem svo eftir miðstjórnarfund sl. laugardag að hann yrði undir og því tekið þessa ákvörðun. Það er nokkuð broslegt að í öllum þeim hremmingum sem Ísland hefur nú lent í, þá hafa aðeins sagt af sér tveir menn og báðir úr Framsókn og úr sama kjördæmi og hvorugur bar nokkra ábyrgð á núverandi ástandi. Þótt Guðni hafi að vísu verið í ríkisstjórn í tvö kjörtímabil með Sjálfstæðisflokknum þá var hann landbúnaðarráðherra og sem slíkur bar hann ekki neina ábyrgð á fjármálum þjóðarinnar. Valgerður Sverrisdóttir var aftur á móti viðskiptamálaráðherra þegar bankarnir voru einkavæddir á sínum tíma og hefði hún frekar átt að segja af sér en Guðni. Og að lokum;
Burt með allt spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur.
17.11.2008 | 20:33
Skuldir
Nú liggur það fyrir að Ísland er að verða skuldugasta land heimsins. Hver íslendingur mun skulda4,5 milljónir. Ég á fjögur börn og átta barnabörn og skuldum við því saman rúmar 400 milljónir, sem við getum auðvitað aldrei greitt. Allt er þetta vegna ævintýramennsku örfárra manna, sem nú lendir á blásaklausu fólki. Það eina sem ég get gert í stöðunni er að vona að bæði börnin mín og barnabörn verði dugleg í því að eignast mörg börn svo greiðalubyrgðin dreifist meira. Ég verð auðvitað löngu kominn undir græna torfu þegar þessar skuldir verða greiddar að fullu. Allt stafar þetta af spillingu og aftur spillingu og enginn er ábyrgur sinna gerða. Því segi ég;
Burt með allt spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur.
17.11.2008 | 18:11
Dagblöð
Mikið lifandis ósköp varð ég feginn þegar 24 Stundir hættu að koma út, það fækkaði þá um eitt dagblað í pósthólfinu hvern morgun, einnig hætti Viðskiptablaðið að vera dagblað og varð að vikublaði. Ekki það að 24 Stundir væru neitt slæmt dagblað, en ég er áskrifandi að Morgunblaðinu og Viðskiptablaðinu, svo kom Fréttablaðið og 24 Stundir. Það komu dagar sem ég komst ekki yfir að lesa öll þessi ósköp. Enda þegar maður hafði lesið Morgunblaðið þá voru komnar allar þær fréttir sem maður hafði áhuga á og lestur hinna blaðanna var bara eins og að lesa endurtekið efni. Síðan hrúgaðist þessi blaðahaugur upp í geymslunni hjá mér og þar sem ég er fatlaður varð ég að fá aðstoð aðra hverja viku við að koma þessum ósköpum út í blaðagám. En nú fæ ég aðeins tvö blöð á dag og finnst alveg nóg og blaðahaugurinn í geymslunni hækkar ekki jafn hratt og áður. Og að lokum;
Burt með allt spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur.
17.11.2008 | 17:53
Flokkar klofna
Allt bendir til þess að bæði Sjálfstæðisflokkur og Framsókn muni klofna eftir þeirra landsfundi í lok janúar. Ekki mun það græta mig þótt svo fari því þessir tveir flokkar bera mesta ábyrgð á því hvernig komið er fyrir íslenskri þjóð í dag. Þessir flokkar munu ekki klofna vegna málefniságreinings, heldur vegna framapots ákveðinna aðila. Málefni hafa alla tíð verið auka atriði hjá þessum flokkum, heldur er mest horft til þeirra manna sem komast til forustu. Þótt ég geti ekki komið auga á hvað það ætti að vera eftirsóknarvert að verða formaður Framsóknarflokksins. Í Sjálfstæðisflokknum ræður Geir H. Haarde ekkert við núverandi ástand og slæmt þegar forsætisráðherra þjóðarinnar er staðinn að lygi hvað eftir annað. En Geir er vorkunn því hann er með bílstjóra í aftursætinu, sem er Davíð Oddsson og hann hefur valið þann kostinn að taka þá hagsmuni fram yfir þjóðarhag og það mun verða honum að falli fyrr eða síðar. Báðir þessir flokkar eru börn síns tíma og stofnaðir í því þjóðfélagsástandi sem var á sínum tíma og hafa ekki náð að taka þeim breytingum eins og þjóðfélagið hefur breyst frá því að þeir voru stofnaðir. Verður þeirra því ekki saknað þótt þeir hverfi í núverandi mynd. Þetta eru spillingarflokkar sem vilja hygla einstaklingum á kostnað heildarinnar. En vonandi ná landsfundir þeirra að beina þeim á rétta braut, þótt ég efi það. Og að lokum;
Burt með allt spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur.
17.11.2008 | 17:32
Seðlabankinn
Brugðið hefur við að greiðslur eru lagðar inn á reikninga Seðlabankans, en Seðlabankinn ekki fengið neinar upplýsingar um greiðsluna aðrar en fjárhæðina á daglegum yfirlitum. Þetta hefur orðið til þess að tefja afgreiðslu. Þetta kemur fram á vef Seðlabanka Íslands þar sem farið er ofan í það hvernig greiðslur milli landa fara fram.
Getur þessi blessaður banki ekkert gert rétt. Hverri greiðslu sem lögð er inn hjá Seðlabankanum fylgir hver á að fá greiðsluna og ef reikningsnúmer er í einum af hinum gömlu bönkum, hlýtur að vera auðvelt að breyta því t.d. að hafa samband við eiganda greiðslunnar. Því allt sem fer inn á reikninga í gömlu bönkunum situr þar fast. Einnig væri auðvelt að loka öllum reikningum í gömlu bönkunum svo ekki væri hægt að leggja inn á þá. Alveg ótrúlegt hvað hægt er að gera einfalda hluti flókna. Og að lokum;
Burt með allt spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur.
![]() |
Eitthvað um að upplýsingar vanti varðandi greiðslur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.11.2008 | 17:07
Fáránlegt
Þegar ríkið tók yfir bankanna þrjá og sett voru neyðarlög á Alþingi, var Fjármálaeftirlitinu veitt mjög mikið vald. Engar breytingar voru gerðar á mönnun þessarar stofnunar. Nú sitja þar sömu menn og hafa yfirvald á öllu bankakerfi landsins og eiga að passa að allt sé gert rétt. Þetta eru sömu menn og áttu að hafa eftirlit með bönkunum áður en gerðu ekki neitt heldur horfðu á bakakerfið þenjast út og verða stærra en 12 föld þjóðarframleiðsla Íslands. Er nokkur ástæða til að ætla að þessir menn standi sig eitthvað betur í dag? Ég held varla. Nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn ákveðið að flýta sínum landsfundi fram til lok janúar 2009. Þetta er sagt vera gert til að auðvelda stefnumótun flokksins og sagt að yfir 1000 manns muni koma á þennan fund og þá fái rödd þjóðarinnar að heyrast og taka þátt í stefnumótun flokksins á breyttum tímum. Þess má geta að á mótmælafundum á Austurvelli sl. laugardaga hafa mætt 5-8 þúsund manns. Ekki er tekið mikið mark á þeim mótmælum og sagt að þetta sé ekki rödd þjóðarinnar. Það er sem sagt álit forustu Sjálfstæðisflokksins að rödd þjóðarinnar komi bara frá fólki sem er með flokkskýrteini í þeim flokki. Þrátt fyrir að skoðanakannanir sýni að fylgi þessa flokks er innan við 25% kjósenda og nokkuð víst að stór hluti þeirra 1000 sem mæta á landsfundin muni ekki kjósa flokkinn næst þegar kosið verður. Svo er líka stór spurning hverjir hafa til þess vald að ákveða hvað sé rödd þjóðarinnar og hvað ekki. Það mun ekki koma í ljós fyrr en að kosningar verða. Ég tel ekki rétt að kjósa núna við þær aðstæður sem nú eru, en um leið og rofar til á ný verður að kjósa t.d. næsta vor. Það er líka stórskrýtið að þeir aðilar sem mesta ábyrgð bera á að hafa komið okkur í þessi vandræði eigi núna að leiða það starf að koma okkur út úr þeim og þar á ég við stjórnendur Fjármálaeftirlitsins, bankastjórn Seðlabankans ofl. Það vekur einnig furðu að með skilanefndunum sem voru skipaðaðar yfir hverjum banka þá starfar Lárus Welding fv. bankastjóri Glitnis með skilanefnd Glitnis og Sigurjón Árnason fv. bankastjóri Landsbankans, starfar með skilanefnd Landsbankans. Í hinu nýja Kaupþing eru yfirmannsstöður að stórum hluta skipaðar sömu mönnum og var í gamla Kaupþingi og svipað mun víst vera í hinum bönkunum. Sem sagt sama fólkið á að leiða starf hinna nýju banka og áttu þátt í hruni hinna gömlu. Því er borið við að þetta hafi verið nauðsynlegt til að starfsemin héldist eðlileg og á sama tíma eru hundruðir vel menntaðs fólks að leita sér að vinnu. Þannig að það hefði verið auðvelt að fá nýtt starfsfólk í þessa nýju banka án þess að sækja það til gömlu bankanna. Það eru enginn ofurlaun í Glitnir í dag sagði Birna Einarsdóttir, bankastjóri en samt eru laun hennar 1.750 þúsund á mánuði og fyrir venjulegan launamann eru það ofurlaun, en siðblinda þess fólks sem starfaði í gömlu bönkunum er slík t.d. Birnu að þetta þykir ósköp eðlilegt, einnig þykir það ósköp eðlilegt að hlutabréfakaup Birnu Einarsdóttur í Glitnir fyrir 180 milljónir gufuðu upp og ekkert er gert nema að Fjármálaeftirlitið á að skoða það mál sérstaklega og allir vita nú hver verður niðurstaðan í þeirri skoðun. Því hvernig á að vera hægt að skoða eitthverja pappíra um þessi kaup sem ekki eru til lengur. Nei þetta er spilling og aftur spilling. Og að lokum;
Burt með allt spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2008 | 11:47
Kreppa
Kreppan í Bretlandi verður lengri og dýpri en áður var haldið samkvæmt mati stærsta þrýstihóps hagsmunasamtaka í landinu, The Confederation of British Industry (CBI), sem birt var í dag.
Ef Bretar hefðu ekki sett hryðjuverkalög á Ísland þá væru fleiri störf í boði en nú er, því íslensku bankarnir í Bretlandi sköpuðu fjölda starfa. Ekki vorkenni ég þeim í núverandi ástandi. Það uppsker hver eins og hann sáir. Og að lokum;
Burt með allt spillingarliðið, hvar í flokki sem Það stendur.
![]() |
Langri kreppu spáð í Bretlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.11.2008 | 11:28
Rússar
Rússar íhuga að veita Íslendingum lán en segja að fjórir milljarðar Bandaríkjadala sé of há fjárhæð. Reuters fréttastofan hefur þetta eftir Dmitrí Pankin, aðstoðarfjármálaráðherra Rússlands í dag. Segir hann að ákvörðun Rússa muni byggja á efnahagsástandinu á Íslandi og hvaða önnur lán séu tryggð.
Nú eigum við að láta leka til NATO að við ætlum að bjóða Rússum aðstöðu á Keflavíkurflugvelli og er ég viss um að um leið færu allar NATO-Þjóðirnar að bjóða okkur aðstoð og Bandaríkin líka. Þá værum við í þeirri stöðu að geta sagt við þessar þjóðir að við tækjum ekki meiri lán og er ég viss um að þá myndu þessar þjóðir bjóða okkur hreina styrki. Þannig yrðum við fljót í gegnum fjármálakreppuna. Og að lokum;
Burt með allt spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur.
![]() |
Rússar íhuga enn að lána |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2008 | 11:17
Ekkert val
Utanríkisráðuneyti Íslands hefur þegar lagt drög að umsókn um aðild að Evrópusambandinu í byrjun næsta árs, eftir því sem fram kemur á fréttavefnum euobserver. Vefurinn vísar í umfjöllun Financial Times og segir að markmiðið sé að Ísland verði aðili að ESB árið 2011.
Eins og ég var að skrifa hér áðan þá höfum við ekkert val lengur og neyðumst til að fara í viðræður við ESB um aðild hvort sem okkur líkar það eða ekki. En að sjálfsögðu þarf að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um slíkt mál og kosningar samfara, því við getum ekki farið í slíkar viðræður nema að gera ákveðnar breytingar á stjórnarskrá landsins og slíkt er ekki hægt nema að kosningar til Alþingis fylgi í kjölfarið. Og að lpkum;
Burt með allt spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur.
![]() |
Drög lögð að umsókn um ESB-aðild? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
17.11.2008 | 11:09
ESB
Nú ætti ekkert að vera lengur því til fyrirstöðu að við gengjum í ESB. Helstu rökin gegn aðild hafa verið þau að þá misstum við yfirráð yfir okkar fiskimiðum, en í dag stefnir allt í að við munum missa þau hvort sem er. Nú er búið að samþykkja að kröfuhafar í gömlu bankanna fái þá upp í skuldir og jafnvel að þeir eignist hlut í nýju bönkunum líka. Þarna er aðallega um erlenda banka að ræða frá ESB. Sjávarútvegurinn er gríðarlega skuldsettur vegna svokallaðrar hagræðingar í greininni, sem hefur byggst á því að stór fyrirtæki hafa keypt upp minni aðila og veiðiheimildir eru stöðugt að færast á færri aðila. Nú munu þessir erlendu bankar algerlega hafa íslenskan sjávarútveg í hendi sinni og nánast ráð því hvaða fyrirtæki fá að lifa og hvaða fyrirtæki eigi að fara á hausinn. Veiðiheimildir fyrirtækja eru botnveðsettar og ef þessir aðilar beita sér geta þeir einfaldlega knúið fyrirtæki í sjávarútvegi til að láta þær af hendi upp í skuldir og selt síðan hæstbjóðenda hvort sem hann er á Íslandi eða í ESB án þess að íslendingar geti gert eitt né neitt. Við verðum verr sett en að fara í aðildarviðræður við ESB því í slíkum viðræðum er ekki útilokað að tekið væri tillit til þess hvað Ísland er háð sjávarútveginum. En að óbreyttu fara veiðiheimildir við Ísland til ESB hvort sem okkur líkar betur eða verr. Og að lokum;
Burt með allt spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 17. nóvember 2008
Færsluflokkar
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
2006
Tenglar
Ýmsir tenglar
- Arnfirðingur
- Bíldudalur
- Bolungarvík
- Bæjarins besta á Ísafirði
- Guðrún Rebekka Jakobsdóttir Edinborg
- Falið vald
- Flateyri
- Frjálslyndi flokkurinn
- Ísafjörður
- Júdit Krista Jakobsdóttir, Bíldudal
- Kristinn Ásgeirsson, Danmörku
- Kristinn H. Gunnarsson
- KVÓTASVINDLIÐ MITT
- Mats Wibe Lund
- Óvinir Ísland
- Skipamyndir Þorgeir Baldursson ljósmyndari
- Suðureyri
- Strandabyggð
- Súðavík
- Tálknafjörður
- Tíðis-fréttavefur
- Vesturbyggð
- VÍSIR.IS
SKIPAMYNDIR
- Fiskistofa Ýmsar upplýsingar
- Gísli Reyisson Aflafréttir
- Hafþór Hreiðarsson Skipamyndir
- Ragnar í Grindavík Skipamyndir
- Skip.is Ýmsar upplýsingar
- Þorgeir Baldursson SKIPAMYNDIR
- http://
Bloggvinir
-
Adda bloggar
-
Ágúst H Bjarnason
-
Albertína Friðbjörg
-
Alma Jenny Guðmundsdóttir
-
Anna
-
Anna Guðný
-
Anna Heiða Stefánsdóttir
-
Anna Pálsdóttir! :)
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Apamaðurinn
-
Arinbjörn Kúld
-
Ásgerður Jóna Flosadóttir
-
Arnlaugur Helgason
-
Arnþór Helgason
-
Ársæll Níelsson
-
Ásdís Rán
-
Ásgeir Jóhann Bragason
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Ásgeir Sveinsson
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Baldur Smári Einarsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bara Steini
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Birna M
-
Bjarney Bjarnadóttir
-
Bjarni Baukur
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Bjarni Kjartansson
-
Baldur Hermannsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Bjarki Þór Guðmundsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Björgvin S. Ármannsson
-
Björgvin Guðmundsson
-
Björn Leví Gunnarsson
-
Björn Finnbogason
-
Bragi Sigurður Guðmundsson
-
Bragi Sigurðsson
-
Hommalega Kvennagullið
-
Bwahahaha...
-
Davíð Pálsson
-
Davíð S. Sigurðsson
-
Didda
-
Dunni
-
Edda Agnarsdóttir
-
Edda Sveinsdóttir
-
Eggert Þór Aðalsteinsson
-
Egill Jón Kristjánsson
-
egvania
-
Einar B Bragason
-
Einar Kristinn Guðfinnsson
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Eiríkur Sjóberg
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Emil Örn Kristjánsson
-
J. Einar Valur Bjarnason Maack
-
Elín Margrét Guðmundsdóttir
-
Evrópusamtökin, www.evropa.is
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
-
FF
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Faktor
-
Fannar frá Rifi
-
Finnur Bárðarson
-
Fjarki
-
Friðrik Höskuldsson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Georg Birgisson
-
Gestur Guðjónsson
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnar Þór Ólafsson
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Guðjón Heiðar Valgarðsson
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Guðjón Ó.
-
Guðmundur St Ragnarsson
-
Guðmundur Zebitz
-
Guðni Gíslason
-
gudni.is
-
Guðrún Hafdís Bjarnadóttir
-
Guðrún Jónína Eiríksdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðrún Una Jónsdóttir
-
Guðrún Helgadóttir
-
Guðrún S Hilmisdóttir
-
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gísli Sigurðsson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Haffi
-
Hafrún Kristjánsdóttir
-
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
-
Halla Rut
-
Halldór Sigurðsson
-
Halldór Örn Egilson
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Hallur Magnússon
-
Haraldur Bjarnason
-
Haraldur Davíðsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Heimir Lárusson Fjeldsted
-
Heiður Helgadóttir
-
Helga Dóra
-
Helga Sigrún Harðardóttir
-
Helga Þórðardóttir
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Himmalingur
-
Hilmar Sæberg Ásgeirsson
-
hilmar jónsson
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Hjalti Sigurðarson
-
Hjartagullin mín
-
Hinrik Þór Svavarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Hlekkur
-
Huld S. Ringsted
-
Hólmdís Hjartardóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
hreinsamviska
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Hörður Halldórsson
-
Hörður Hilmarsson
-
Hvíti Riddarinn
-
Ingunn Jóna Gísladóttir
-
Ingvar Valgeirsson
-
Jakob Kristinsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jens Guð
-
Jens Sigurjónsson
-
Jóhannes Jónsson
-
Jóhanna Fríða Dalkvist
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jóhannes Þór Skúlason
-
Jón Baldur Lorange
-
Jón Halldór Eiríksson
-
Jón Kristófer Arnarson
-
Jón Finnbogason
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Jónína Benediktsdóttir
-
Kama Sutra
-
Karl Tómasson
-
Karl V. Matthíasson
-
Katrín
-
Kjarri thaiiceland
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristinn Sigurjónsson
-
Kristinn Theódórsson
-
Kristján Pétursson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Lilja Skaftadóttir
-
Lovísa
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Lýður Árnason
-
Maddý
-
Magnús Þór Friðriksson
-
Margrét Sigurðardóttir
-
Marinó Hafnfjörð Þórisson
-
Magnús H Traustason
-
Marinó Már Marinósson
-
Marzellíus Sveinbjörnsson
-
Morgunblaðið
-
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
Natan Kolbeinsson
-
Níels A. Ársælsson.
-
Ólafía Margrét Guðmundsdóttir
-
Ólafur Þór Gunnarsson
-
Ólafur Tryggvason Þorsteinsson
-
Ólafur Ragnarsson
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Ólafur Tryggvason
-
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
-
Ólöf de Bont
-
Óskar Helgi Helgason
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Paul Nikolov
-
Páll Höskuldsson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
percy B. Stefánsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Borgþórs
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Ragnhildur Jónsdóttir
-
Ragnhildur Sverrisdóttir
-
Regína R
-
Ruth
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Rúna Guðfinnsdóttir
-
Rögnvaldur Þór Óskarsson
-
Samtök Fullveldissinna
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
-
Sigríður Hafdís Þórðardóttir
-
Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir
-
Sigurður Haukur Gíslason
-
Sigurður Jón Hreinsson
-
Sigurður Jónsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Snorri Bergz
-
Sigurjón Sveinsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Þorsteinn Briem
-
Steinþór Ásgeirsson
-
Svartagall
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sævar Einarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sólveig Aradóttir
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
TARA
-
Tiger
-
Tinna Eik Rakelardóttir
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valbjörn Júlíus Þorláksson
-
Valdimar Leó Friðriksson
-
Valan
-
Vefritid
-
Vestfirðir
-
Viggó H. Viggósson
-
Vilborg Auðuns
-
Þórbergur Torfason
-
ÞJÓÐARSÁLIN
-
Þórhallur Heimisson
-
Þórhallur Pálsson
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Þórir Kjartansson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Þór Jóhannesson
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Jón V. Þorsteinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 5
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 802121
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 24.1.2010 Jakob Kristinsson er látinn.
- 21.1.2010 Spakmæli dagsins
- 21.1.2010 Obama
- 21.1.2010 Icesave
- 21.1.2010 Mótmælendur ákærðir
- 21.1.2010 Norwegian
- 21.1.2010 Kaninn og RÚV
- 21.1.2010 Látinn laus
- 21.1.2010 Kína
- 21.1.2010 Hvað vill félagsmálaráðherra?
185 dagar til jóla
Nýjustu færslurnar
- PRADA á tískuviku í Mílanó
- Hlutleysi er sverð Íslands og skjöldur
- Hvað stjórnar þessari þjóð ?
- Álit álitsgjafa einskins vert
- The Original Sin
- HÚN ÞARF NÚ AÐ FARA AÐ ENDURSKOÐA "FORGANGSRÖÐUNINA" HJÁ SÉR.......
- "Það er búið að kveikja í púðurtunnunni"
- Óheiðarleg framsetning á ,,Pride
- Frá tískuviku herra í Mílanó
- Stríð og stærsta olíukreppa allra tíma