Fólksfækkun

Mesta fólksfækkunin síðasta áratug hefur verið í... 22 sveitarfélög á landi, einkum þó á Vestfjörðum og Norðurlandi eystra, falla undir skilgreiningu Byggðastofnunar um viðvarandi fólksfækkun á tímabilinu 1996 til 2006. Er þá miðað við 15% fækkun íbúa eða meira.

Þetta þarf ekki að koma neinum á óvart.  Á Vestfjörðum þar sem ég þekki best til, þá byggðust sjávarþorpin upp á sínum tíma vegna aðgengis að fiskimiðunum.  Nú þegar það hefur verið af þeim tekið, hrynja byggðirnar.  Þegar ég var að reka frystihús,togaraútgerð og 2 línu- og rækjuskip á Bíldudal þá störfuðu hjá mínu fyrirtæki yfir 100 manns og 1990 fór íbúatalan þar að nálgast 450 manns og hafði ekki verið fleira fólk á Bíldudal síðan um 1950 en nú búa innan við 200 manns á staðnum.  Þetta er mjög hliðstæð þróun um alla Vestfirði.  Það er oft talað um að atvinnuleysi sé lítið á Vestfjörðum og er það rétt.  Það á sér eðlilegar skýringar fólkið sem missir vinnu sína flytur einfaldlega á þá staði þar sem vinnu er að fá en bíður ekki atvinnulaust eftir einhverju sem aldrei kemur, tölurnar sem ég nefndi frá Bíldudal sýna þetta best.  Á sínum tíma voruð sameinuð 4 sveitarfélög á sunnanverðum Vestfjörðum en þetta skeði 1992  Þetta voru eftir talin sveitarfélög íbúatala innan sviga:

 Bíldudalshreppur (450 íbúar), Patrekshreppur (900) Rauðasandshreppur (150) og Barðastrandarhreppur ( 250) Þetta nýja sveitarfélag fékk nafnið Vesturbyggð og íbúafjöldi 1.450 manns.  Í dag eru íbúar í Vesturbyggð um 700 og fækkar enn.  Ef ekki verður gert eitthvað róttækt í atvinnumálum á Vestfjörðum þá munu þeir leggjast í eyði og öll húsin verða nýtt sem sumarhús.  Það sagði mér eitt sinn maður sem var einn af þeim síðust sem  að fluttu frá Grunnavík í Jökulfjörðum.   Að það hefði ekkert verið hægt að gera nema koma búslóðinni um borð í bátinn og setja stefnuna á Ísafjörð og líta aldrei til baka.  Það lýsir best hvílík örvænting er ráðandi hjá fólki ,sem enn býr á Vestfjörðum að það tekur fegins hendi að fá olíuhreinsistöð og það í einn fallagsta fjörðinn, sem er Arnarfjörður og þótt flestir viti að þessi stöð verðu aldrei reist á Vestfjörðum þá er hún samt hálmstrá sem margir hanga í.  Fólkinu finnst að það hafi þó einhverja von um betri tíma.

Það sem raunhæfast væri að gera væri það að setja til sveitarfélaganna 25 þúsund tonna aflakvóta og síðan myndi hvert sveitarfélag geta leigt þetta út gegn vægu gjaldi og fengið tekjur og atvinnulífið tæki kipp.  Þetta ætti að byggjast á krókaveiðum og skilyrði að öllum afla yrði landað til vinnslu á Vestfjörðum.  Ástæðan fyrir því að ég óttast að Vestfirðir fari í eyði er líka sú að Vestfirðingar misstu sinn besta talsmann, sem var Einar Oddur Kristjánsson, sem var sá eini af stjórnarliðum á Alþingi, sem þorði að segja sína skoðun, þótt hún vær kannski alveg eftir flokkslínunni. og rétt áður en hann lést hafði hann verið í viðtali við BB á Ísafirði og þar lýsti hann áhyggjum sínum hvernig kvótakerfið væri að fara með Vestfirði og taldi jafnframt að skoða þyrfti kvótamálin niður í kjölinn.  En nú njóta Vestfirðingar ekki lengur starfskrafa Einars Odds og þá kemur að Nafna hans Einari Kristinn, sjávarútvegsráðherra, ætlar hann að horfa þegjandi á Vestfirðir fara í eyði?  Einar K. Guðfinnsson nú er boltinn hjá þér og hvað ætlar þú að gera?  Ég held að ég geti svarað fyrir ráðherrann og svarið er: Akkúrat ekki neitt.


mbl.is Viðvarandi fólksfækkun í 22 sveitarfélögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Settur inn

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýðveldisins, við setningu... 

   Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, verður settur inn í embætti þann 1. ágúst næstkomandi eins og venjan er. Hefur hann þá setið í þrjú kjörtímabil. Athöfnin verður í Dómkirkjunni og verður síðan haldið í Alþingi.

Það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég las að forsetinn hefði verið settur inn í fangelsi.  En svo er nú víst ekki heldur innsetning í embættis forseta og er Ólafur þar með að byrja sitt þriðja kjörtímabil.  Ég er mjög ánægður með Ólaf, sem forseta.  Ég kaus hann á sínum tíma og mér finnst hann hafið staðið sig mjög vel og þær breytingar sem hann hefur gert á embættinu mjög góðar.  Það eina sem mér finnst um forseta Íslands á hverjum tíma, er það að mér finnst þeir ættu að hafa meiri völd.  Nú er að störfum stjórnarskrárnefnd og eftir því sem ég hef heyrt munu Sjálfstæðismenn vilja draga úr völdum forseta.  Davíð Oddson, æðstiprestur sjálfstæðismanna mun víst aldrei geta gleymt þegar Ólafur neitaði að skrifa undir fjölmiðlalögin sem voru mjög umdeild.  Og þegar Davíð segir eitthvað þá eru það um leið lög hjá Sjálfstæðismönnum.  En vonandi stoppar Samfylkingin það af ef stjórnarskrárnefnd ætlar að draga úr þessum litlu völdum sem forsetinn þó hefur.  Eins og ég sagði áður finnst mér að forsetinn eigi að hafa meiri völd í okkar þjóðfélagi.  Það skeður ekkert þótt Davíð Oddson verði brjálaður í Seðlabankanum.  Hann má vera í fýlu fyrir mér eins lengi og hann vill.


mbl.is Embættistaka forseta verður 1. ágúst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísbirnir

Þrír ísbirnir voru skotnir til bana á sunnudag á Grænlandi,Þrír ísbirnir voru skotnir til bana á Grænlandi á sunnudag, að sögn danska vefritsins Berlingske Tidende. Atvikið átti sér stað nærri byggðinni Atammik við Maniitsoq þegar birna og tveir ungar hennar nálguðust tjaldbúðir sem hópur fólks dvaldist í við veiðar.

Þeir kunna á þetta Grænlendingar, þeir gera það eina rétta, sem er að skjóta ísbirnina.  Það var annað hér á landi, þegar þjóðfélagið fór nánast á hliðina vegna þess eins að þeir voru drepnir, semvar auðvitað það eina rétta.


mbl.is Þrír ísbirnir skotnir nærri byggð á Grænlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ermasund

Benedikt ásamt landsliðinu í sjósundi. Hópurinn er nú...Benedikt Hjartarson sundmaður vonast til að geta synt yfir Ermasundið á morgun, en hann hefur beðið átekta, ásamt landsliðinu í sjósundi, í Dover á Englandi frá því í síðustu viku. Í dag var ekki óhætt að stinga sér til sunds en útlit er fyrir að aðstæður verði góðar í fyrramálið.

Hvenær ætlar þessi maður að skilja það að hann getur ekki synt yfir Ermasund.  Ég tek undir hans eigin orð sem fram kemur í fréttinni, en þar segir Benedikt aðspurður um sundið;  "Þetta er auðvitað bilun."


mbl.is „Er náttúrulega bara bilun“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Laxveiði

Þyrlurnar í Þórsmörk. Dynur þyrluvængja truflaði óvænt öræfakyrrðina í Þórsmörk í síðustu viku. Tvær þyrlur lentu þá með skömmu millibili nálægt tjaldstæðinu við Bása og eins renndu þar að tveir stórir jeppar hlaðnir veisluföngum. Var annar þeirra merktur veiðiþjónustunni Lax-á.

Þetta eru sko karlar sem kunna að fara í lax og ekki blankir.  Þyrla + 2 stórir jeppar með veisluföng.  Ég væri ekki til í svona ferð.  Þótt það verði örugglega mjög skemmtilegt hjá þessum mönnum, Ég öfunda þá ekki. 

Ég er í bindindi svo ég yrði að afþakka svona ferð þótt mér yrði boðið í fyrsta lagi hef ég engan áhuga á laxveiðum og sérstaklega núna þegar fiskunum er sleppt aftur.  Til hvers er verið að veiða fisk og sleppa síðan aftur.  Hins vegar stundaði ég talsverðar netaveiðar á laxi kringum 1990 og bullandi veiði 40 stk og uppí 100 í lögn.  Það var alvöru veiðar.  En að fara í laxveiði á bara til að drekka sig fulla og skítt með alla veiði, þessu er hvort sem öllu sleppt aftur og ef fólki langar að fá sér lax að borða, þá er nóg til af honum í flestum stórmörkuðum.  Nú er líka talið að lax sem dreginn er á land og síðan sleppt, muni ekki lifa lengi, því hreistrið á laxfiskum er svo viðkvæmt að bara það eitt að draga fiskinn upp á árbakkann er nóg til að hreistrið skemmist það mikið að fiskurinn deyr fljótlega eftir að honum er sleppt.  Sérstaklega mun þetta eiga við um fisk sem er nýgenginn í árnar.  Þetta er villimennska á hæsta stigi og ekki bætir nú úr ef menn eru við þessa iðju sina blindfullir.


mbl.is Með þyrlum í laxveiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útilokar ekki að auknar þorskveiðar verið leyfðar á næstu árum.

Þessi fyrirsögn  er það sem sjávarútvegsráðherra sagði á fundi fyrir stuttu.  Ráðherra hefur nánast farið að einu og öllu eftir ráðgjöf Hafró um úthlutaðan aflakvóta.  Hann virðist því trúa á þeirra vísindi og allur þessi niðurskurður í þorski sé til að byggja þorskstofninn upp.  Þar sem ráðherrann er svona viss í sinni trú á Hafró, þá hlýtur hann að trúa því líka að þorskstofninn sé að stækka.  Þess vegna skil ég ekki þessa fyrirsögn og hvað eru næstu ár? Er það 5-10-15-20 ár sem ráðherrann er að tala um.  Við getum gengið út frá einu að hann er ekki að tala um næstu 5 ári, því Hafró er búin að lýsa því yfir að a.m.k. næst 5 ár verði ekki hægt að auka við þorskkvótann.   Þannig að ráðherrann hlýtur að vera að tala um næstu 10-20 ár.  Ef ég skil Hafró rétt þá er 130 þúsund tonn í þorskkvóta kominn til að vera svona um ókomna framtíð.  Við byggjum aldrei upp þorskstofninn ef alltaf á að taka mark á rásðgjöf Hafró.  Þessi 25 ára tilraun ætlar að verða okkur nokkuð dýr.  Það sem bjargað hefur því að stofninn er ekki löngu hruninn er sú staðreynd að á fyrsta áratug þessarar vitleysu var ekki farið eftir tillögum Hafró og veitt miklu meiri þorskur en tillögurnar frá Hafró hljóðuðu upp á  og miklu færri tegundir kvótasettar, í byrjun var þetta aðeins þorskurinn.  sl. 10-15 ár hefur verið farið nánast 100% eftir tilögum Hafró og allir vita nú niðurstöðuna. Einnig er nú kominn aflakvóti á allar þær fisktegundir sem eru við Ísland.  Nýliðun hjá þorski hefur verið mjög léleg l. 10-15 ár og hún verður alltaf léleg, því það er búið að eyðileggja alla möguleika á nýliðun við suðurströndina, með öllum þessum virkjunum sem hafa verið reistar á undaförnum árum.  fyrirsögnin hefði því að vera svona: "Ráðherra útilokar auknar þorskveiðar á næstu árum" þá væri hann sjálfum sér samkvæmur
Þannig að ferskvatn sem fer í sjóinn er alltof lítið og sjórinn alltof saltur til að eðlileg nýliðun geti átt sér stað.  Nú er orðið árvisst svokallað hrygningarstopp til að fiskurinn fái frið til að hrygna.  En það er ekki nóg þótt þorskurinn og aðrir fiskstofnar fái næði til að hrygna ef skilyrðin í hafinu er slík að klak fisksins lifir það ekki af.  Þannig tel ég að þegar hrygningarstoppið er hjá fiskiskipum þá ætti líka að hleypa öllu ferskvatni framhjá virkjunum á sama tíma þá myndi klakið heppnast og nýliðun verða góð.  Nú veit ég ekki hvað oft Hafró mælir seltumagn í sjónum og ef það er gert væri fróðlegt að skoða hvað sjórinn er saltur á hinum ýmsu stöðum á landinu.  Kannski er þetta ekki til, en ég held að það þurfi að skoða þetta.  Nú getur vel verið að þetta sé bull í mér, en ég ætla að segja frá því að Páll Bergþórsson f.v. veðurfræðingur, taldi sig búinn að finna út að það væri samspil á milli fjölgun virkjana og hrygningu fiska við suðurströnd Íslands.

Hvort sem þetta er rétt eða rangt, þá er það deginum ljósara að eitthvað hefur skeð í vistkerfi sjávar og við verðum að fá betri rannsóknir til að finna út hvað er að ske og hvernig við getum brugðist við því.  Hafró er komin með sína skýringar, en þær eru að alltof mikið hafi verið veitt umfram þeirra tillögur, en þessi umframveiði tel ég að hafi í raun bjargað þorskstofninum.

Þessi stjórnunaraðferð er dauðadæm og ætla að halda þessari hringavitleysu áfram munu þurrka út þorsk,ýsu ofl. tegundir af Íslandsmiðum.  Kannski er það ætlunin og við eigum bara að lifa á álútflutningi, en oft er verið að bera þessar greinar sama hvað varðar tekjur fyrir þjóðarbúið.  Álverin bera höfuð og herðar yfir aðrar atvinnugreinar hvað varðar útflutningstekjur.  En þegar málin eru skoðuð betur þá kemur annað í ljós.  Á meðan álverin skila mestum gjaldeyrir í þjóðarbúið þá skilja þau ekki eftir í okkar hagkerfi nema innan við 20% sig tekjum á meðan sjávarútflutningur skilur eftir í hagkerfinu  rúm 80% af tekjum og ég held að ferðamennirnir skilji eftir hér á landi meiri gjaldeyrir en álverin.  Þegar þorskkvótinn er svona lítill og stór ýsukvóti,  þá færist stór hluti af veiðinni upp í landssteina og þar er mokað upp smáfiski bæði þorski og ýsu, þetta er ekkert nema rányrkja og nú er brottkastið komið á fulla ferð aftur.  Þannig að í dag er verið að veiða miklu fleiri einstaklinga úr stofninum en áður, sem þýðir það að stóra árganga mun vanta í veiðina á komandi árum og þá kemur tillaga frá Hafró um meiri niðurskurður á aflaheimildum og þá erum við búin að fara í hring eftir hring.  Hafró beinir sókninni í smáfisk sem þýðir að heilu árgangarnir eru litli og þá boða Hafró meiri niðurskurð sem færi sóknina yfir í smáfisk.  Þannig mun Hafró halda áfram að elta skottið á sjálfum sér.

Þetta minnir mig á mann vestur á Bíldudal og hét Guðbjartur og hann gekk alltaf með þann draum í maganum, um að verða kaupmaður.  Svo komst hann yfir gamalt vigtarhús og fór að innrétta allt fyrir væntanlegri verslun.  Svo fór hann að fá vörur og verslun hófst.  Hann stillti vöruverðinu, mjög í hóf og seld jafnvel talsvert af vörum undir kostnaðarverði.  Svo var það einu sinni að það var sjómannadagur og allir gosdrykkir seldust upp hjá Guðbjarti.  Hann greip þá til þess ráðs að fara í Kaupfélagið á staðnum og kaupa nokkra kassa af gosdrykkjum og seldi síðan á sama verði og áður.  Verslunarstjórinn í kaupfélaginu var skyldur Guðbjarti og fór nú til hans og sagði við hann; "Þú hlýtur að sjá þetta getur aldrei gengi hjá þér ef þú ert að greiða með hverjum hlut sem þú selur"  Þá brosti Guðbjartur og sagði; "Ég ætla að ná þessu upp á veltunni.". Það varð því engan undrandi þegar Guðbjartur hætti að versla og lokaði verslun sinni.  Hann var eins og Hafró alltaf að elta skottið á sjálfum sér.  En Guðbjartur þótt ekki væri hann langskólagenginn var fljótur að átta sig á að eitthvað var hann að gera vitlaust og hætti því verslunarrekstri í stað þess að berja höfðinu við steininn og halda ruglinu áfram,  Hann var þó sá maður að viðurkenna sín mistök.  En allir sérfræðingarnir með allar sínar prófgráður eru ekki enn búnir að skilja að eitthvað hefur brugðist í því að byggja upp sterka fiskistofna.  Ég held að þeir gætu margt lært af Guðbjarti, kaupmanni á Bíldudal að stundum verður að viðurkenna mistök sín en ekki berja höfðinu stöðugt í steininn og neita að viðurkenna staðreyndir.


Bloggfærslur 15. júlí 2008

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband