Frábær grein

Urður Ólafsdóttir skrifaði frábæra grein í Fréttablaðið í dag um kvótakerfið.  Ég hvet alla sem hafa áhuga á sjávarútvegsmálum að lesa þessa grein.  Í umfjöllun sinni um kvótakerfið er hún að velta því fyrir sér hverjir öfluðu veiðireynslunnar sem kvótinn byggist á.  Urður var gift Sigurði Bjarnasyni skipstjóra sem lést langt um aldur fram en Sigurður Bjarnason var mikill aflamaður og var skipstjóri á bátum frá Bíldudal og Tálknafirði, en síðustu árin var hann skipstjóri á línuskipinu Orra ÍS frá Ísafirði og var mjög oft aflahæstur á Vestfjörðum.  Þannig að Urður Ólafsdóttir þekki þessi mál mjög vel,  Nú er hún að kalla eftir samstöðu og spyr hvar eruð þið, sjómenn og sjómannskonur og spyr Hvað með ykkur sjómenn ætlið þið ekki að berjast fyrir ykkar rétti og segir síðan

"Þið megið ekki skilja þrjá eða fjóra sjómenn eftir í baráttunni fyrir rétti ykkar allra.  Þetta er réttur sem hetjur hafsins sem horfnir eru börðust fyrir og þið búnir að láta ræna af ykkur"

Hún minnist einnig á þegar allur síldarflotinn sigldi í höfn 1967 og aftur 1975 og í bæði skiptin höfðu sjómenn sigur í ákveðnum deilumálum.

Ég er sannfærður um að þessi grein Urðar á eftir að skipta sköpum varðandi kvótakerfið og ég held að Einar K. Guðfinnsson ætti að drullast til að skipa þá nefnd sem samið var um í stjórnarsáttmálanum og átti að endurskoða kvótakerfið.  Það þýðir ekki lengur Einar Kristinn að segja bara að það verði gert á kjörtímabilinu.  Ef tekst að virkja alla þá sem Urður telur upp, sem eru sjómenn,sjómannskonur fiskvinnslufólk og áhugafólk um réttlátt kvótakerfi, þá væri komið slíkt afl að kvótakerfinu yrði breytt strax.  Grein Urðar er á bls. 27 í Fréttablaðinu 17. júlí.

Urður Ólafsdóttir þú ert hetja.

Ég vil þakka Urði Ólafsdóttur fyrir þessa frábæru grein og vona að hún komi nú til liðs við okkur hér á blogginu því hún er greinilega mjög góður penni.  Það verður frábært í sögu þjóðarinnar að þegar allir læddust með veggjum og nöldruðu um ranglæti kvótakerfisins að þá skuli koma sjómannsekkja og hrista rækilega upp í öllu saman.  Enda bjó hún lengst af sinni ævi á Vestfjörðum og maður hennar var Bílddælingur eins og svo margt gott fólk t.d. ég.


Ofsaakstur

Mynd 456381Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði 18 ára stúlku á 199 km/klst hraða á Reykjanesbrautinni rétt eftir miðnætti í nótt. Að sögn lögreglu var stúlkan svipt ökuréttindum á staðnum.

Það munaði ekki um það bara á 199 km. hraða.  Hvað er fólk eiginlega að hugsa þegar það hagar sér svona og nýkomin með bílpróf.  Þetta er bæði brjálæði, rugl og heimska og svo á að leyfa henni að taka bílprófið aftur svo hún geti þá endurtekið leikinn.  sektin skiptir engu máli, pabbi og mamma borga.


mbl.is Tekin á 199 km hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ást á rauðu ljósi

Ég þurfti að fara til Reykjavíkur sl. föstudag og þá er umferðin slík að það mætti ætla að margir bílstjórar hefðu fengið 100 þúsund flog eins og Bjartmann söng um hérna um árið.  Ég var að aka eftir Bústaðarveginum og þegar ég kem að fyrstu umferðarljósunum er komið gult og ég stoppa.  Byrjar þá ekki bílstjórinn á bílnum fyrir aftan mig að flauta og flauta til að láta óánægju sína í ljós yfir því að ég stoppaði.  Hann ætlaðist til að ég svínaði yfir á gulu ljósi því hann var að flýta sér og þegar ég leit aftur fyrir bílinn sá ég manninn steyta báða hnefanna út í loftið, slík var reiðin.  Ég  fór þá út úr mínum bíl og labbaði til mannsins og spurði kurteislega hvort hann þyrfti að tala eitthvað við mig og flautið og handapatið hefði bent til þess.  "Nei hvæsti maðurinn á mig, þú áttir að fara yfir áðan og þótt komið væri gult ljós hefði ég sloppið líka".  Meðan við vorum að ræða saman skiptust ljósin og maðurinn öskraði á mig "það er komið' grænt og drullaðu þér af stað".  Ég spurði manninn hvort hann væri eitthvað veikur og afhverju honum lægi svona mikið á.  En á meðan við vorum að ræða þessi mál skiptust ljósin aftur og nú var komið rautt.  Maðurinn trylltist og öskraði á mig; "Sjáðu hvað þú ert búinn að geta helvítis asninn þinn og menn eins og þú ættu ekki að hafa bílpróf, helvítis andskotans djöfullulls vandræði"grenjaði maðurinn á eftir mér þegar ég fór aftur inn í minn bíl.  Svo kom auðvitað græna ljósið og ég fór af stað með brjálæðinginn fyrir aftan mig.  Svona er nú Ísland í dag í föstudagsumferðinni í Reykjavík.

Hraðakstur

Lögreglan við eftirlit. Lögreglan á Selfossi var við hraðamælingar á Suðurlandsvegi, við Svínahraun, í um klukkustund í dag. Á þeim tíma stöðvaði hún sextán ökumenn fyrir of hraðan akstur. Sá er ók greiðast, var á 130 km hraða.

Hvað liggur fóli svona mikið á að það getur ekki ekið á löglegum hraða.  Ég hef verið að undra mig á því, að núna er búið að setja upp hraðamyndavélar bæði á Sandgerðisveg og Garðsveg, en engin er á Reykjanesbrautinni, þar sem umferð er þó miklu meiri en á hinum tveimur vegunum.  Ég hefði haldið að fólk reyndi að spara eldsneyti þegar það er í hæstu hæðum.  Þegar ég ek Reykjanesbrautina, sem nú er búið að tvöfalda að Grindavíkur afleggjaranum, þá ek ég á 80 til 90 km. hraða, því þá eyðir minn bíll minnst.  þrátt fyrir það að ég sé á löglegum hraða þjóta bílarnir fram hjá mér og oft hef ég orðið hissa þegar flutningabílar og rútur sem ekki mega aka hraðar en á 80 krn eru að fara fram úr mér og eru örugglega vel yfir 100 km. hraða.  Eins hef ég tekið eftir því að merktir fyrirtækisbílar aka langt yfir hámarkshraða enda þurfa bílstjórar þeirra bíla ekki að greiða sektina sjálfir ef þeir eru teknir.  Mér finnst að bílar frá einu ákveðnu fyrirtæki séu verstir í umferðinni en það eru bílar frá Íslandspósti.  Þeir eru kannski að flytja hraðpóst, sem gæti skýrt þetta og bílstjórinn telur sig hafa sama rétt og sjúkrabílar, hver veit?  Það er að sjálfsögðu virðingarvert hjá Íslandspósti að koma póstinum til skila fljótt og vel en að brjóta umferðarlög til þess finnst mér nú full langt gengið.  Sá sem ekur á yfir 100 km hraða er að eyða um 10% til 20% meira af eldsneyti en ef ekið er á löglegum hraða og mínúturnar sem sparast eru mjög fáar.  En þeir sem eru í vinnu hjá öðum við akstur þurfa ekki að borga eldsneytið og er því alveg sama, en fyrirtækin hljóta að gera þær kröfur til sinna bílstjóra að haga sér vel í umferðinni og brjóti ekki umferðarlög. 


mbl.is Sextán teknir fyrir of hraðan akstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Honum tókst það

Benedikt á sundi í kvöld.Benedikt Hjartarson náði undir miðnættið því takmarki sínu að synda yfir Ermarsund. Benedikt tók land austan við Cap Gris-Nez Frakklandsmegin klukkan 23:36 að íslenskum tíma og hafði þá synt 60 km vegalengd og verið á sundi í 16 klukkustundir og 1 mínútu.

Það er full ástæða til að óska Benedikt til hamingju með þetta sundafrek.  Þetta geta ekki nema hraustustu menn. 

Jafnfram bið ég kappann afsökunar á því að hafa verið að gera grín vegna þessa sunds hér á minni blogg-síðu.


mbl.is Tókst að synda yfir Ermarsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtiferðaskip

Farþegaskip frá Venezuela með tólf hundruð farþega innanborðs var kyrrsett í New York höfn í dag eftir að bandaríska landhelgisgæslan fann verulegar skemmdir á skrokki skipsins.

Hvernig dettur mönnum í hug að gera út handónýtt skip til skemmtiferða og taka 1200 farþega. Skip þetta mun víst skráð á Bahamaeyjum og við skoðun kom í ljós að skrokkur þess var mjög illa farinn og skipið hriplegt. Auk þess voru gerðar 66 athugasemdir við björgunarbúnað skipsins, þetta var í raun fljótandi dauðagildra. 

 

 


mbl.is Farþegaskip kyrrsett
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. júlí 2008

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband