Strætó

Nú mun hafa verið ákveðið að strætó.bs. bjóði út 50% af öllum akstri og er þetta fyrsta skref í að einkavæða félagið. Síðan kemur skref nr. 2 en þá verður félagið einkavinavætt.  Ljóta andskotans vitleysan.  sl. vetur fékk skólafólk frítt í strætó en dettur nokkrum manni með fullu viti að einkaaðilar muni gera slíkt.  Sá sem fær þetta verkefni fær ákveðinn styrk frá sveitarfélögunum sem eiga strætó bs. og getur síðan verðlagt fargjöld eftir sínu höfði. 

Á þetta að draga úr notkun einkabifreiða?


Rafmagnsreikningur

Belgi nokkur var ekki ánægður þegar hann fékk rafmagnsreikninginn sinn nýlega enda hafði raforkuverðið hækkað umtalsvert milli mánaða.

Það er eins gott að safna klinki en því miður eru ekki til einseyringar hjá okkur svo við verðum bara að safna krónum sem allir segja að sé ónýt, til að borga rafmagnsreikninginn.


mbl.is Borgaði rafmagnsreikninginn með einseyringum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að fara úr landi

Nú er ég alveg búinn að fá nóg af baslinu og vitleysunni hér á landi og er búinn að setja íbúðina mína á sölu og bílinn líka.  Ég er að kaupa 43 feta snekkju í Danmörk.  Þetta er eikarskip um 20 tonn að stærð með tveimur káettum, eldhúsi, borðsal og salerni og sturtu.  Öll yfirbygging er úr massífu tekki og í bátnum eru öll helstu siglingartæki.  Báturinn er í Horsens í Danmörku og fylgir plássið þar með.  Þar er hann tengdur við rafmagn í landi.  Þarna ætla ég að búa og sigla um svæðið þarna í kring.  Síðan þegar fer að hausta sigli ég kannski til Kanarí eða í Miðjarðahafið og næ mér í pening með því að sigla með ferðamenn.  Ef vel liggur á mér næsta sumar skrepp ég kannski til Íslands og fer hring um landið á bátnum.  Ég verð í engum vandræðum að sigla því ég er bæði lærður vélstjóri og með skipsstjórapróf.  Þetta kostar mig rúmar 10 milljónir en á eftir að verða mikið ævintýri og ég er búinn að kanna að ef ég gerist danskur ríkisborgari þá fæ ég danskar örorkubætur sem eru miklu hærri en hér á landi.  Ég ætla því að bjóða mínum bloggvinum í heimsókn og mun skilja eftir símanúmer hér á síðunni áður en ég fer og vonast eftir að fá sem flesta í heimsókn og koma í smá ævintýraferð.  Það eina sem mig vantar er kona sem kann að elda og þrífa og er til í allt.

Eignir á Keflavíkurflugvelli

Mér er með öllu óskiljanlegt hvernig íslensku samnigafulltrúnum tókst að klúðra samningum um flugvöllinn á Miðnesheiði þegar herinn fór.  Nú er komið í ljós að Ísland á ekki allt það sem þeir héldu.  NATO á t.d. olíulögnina úr Helguvík upp á flugvöll.  NATO á þó nokkrar fasteignir og það sem er öllu alvarlegra að NATO á tvær flugbrautir.  Þar sem við erum í NATO fáum við að nota þessar eignir á meðan NATO þarf ekki að nota þær.  En sá tími gæti komið að NATO  þyrfti að nota þessar eignir og þá geta þeir gert það án þess að spyrja okkur um leyfi og ef þeir þyrftu t.d. að nota flugbrautirnar tvær gætu þeir stöðvað allt borgarlegt flug um völlinn.  Það vekur líka furðu að dómsmálaráðherra segir að þessar eignir séu alfarið í eigu íslendinga á sama tíma er fullyrt að í utanríkisráðuneytinu að NATO eigi  og ég spyr hvaða vitleysingar komu fram fyrir Íslands hönd í samningunum við bandaríska herinn þegar hann fór og lét okkur fá allar sínar eignir?  Er ekkert samráð milli ráðuneyta þegar verið er að semja um svona stóra hluti?

 


Þykknar upp

Gert er ráð fyrir hægri sunnan- og suðvestanátt og léttskýjuðu á landinu norðan- og austanverðu í dag og að hiti verði allt að 15 til 20 stig. Vestantil þykknar smám saman upp, þar verður suðaustan 10-15 metrar á sekúndu og fer að rigna sunnanlands og vestan undir kvöldið. Einnig verður lítilsháttar væta norðan og austanlands um tíma í nótt.

Mikið er ég feginn því þegar er glampandi sól og hiti þá er varla líft í íbúðinni minn fyrir hita.  Ég er nú svo áttavilltur hér í Sandgerði að ég er ekki með áttirnar á hreinu.  Þó held ég miðað við sólarganginn á mínum svölum að þær snúi í Norð-Vestur.


mbl.is Þykknar upp vestantil í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísbirnir

Ísbirnir hafa gengið á land í sumar, síðast á Skaga. Leitað var á Hornströndum í nótt að hugsanlegum ísbjörnum, sem ferðafólk á svæðinu taldi sig hafa séð í gærkvöldi. Leitað var bæði úr lofti og af sjó en ekkert fannst og segir lögreglan á Ísafirði, að líklegt sé að um missýn hafi verið að ræða.

Er nú orðin skortur á Ísbjörnum á Íslandi til að drepa.  Við verðu þá bara að flytja þá inn frá Grænlandi.  Annars mun það ekki hafa verið missýn hjá konunum tveimur sem sögðust hafa séð þriðja ísbjörninn fyrir norðan.  Þetta var ísbjörn, en lögreglan kom og skaut dýrið, gróf það og lét engan vita.  Þannig að það varð enginn flugsýning í sambandi við þann ísbjörn og Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra, vissi ekkert um þetta fyrr en hún fékk skýrslu um málið frá lögreglu og er sú skýrsla vel falin í umhverfisráðuneytinu og merkt með XXX.


mbl.is Engir ísbirnir fundust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvíburar

Tvíburabræður, sem fæddust í Berlín í Þýskalandi í síðustu viku, hafa vakið mikla athygli en þeir hafa ekki sama hörundslit. Móðirin er fædd í Gana og faðirinn í Þýskalandi og bræðurnir líkjast hvor sínu foreldrinu.

Það ætti þá að vera auðvelt að þekkja þá í sundur, sem oft er erfitt með tvíbura af sama kyni.


mbl.is Mislitir tvíburar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tap með góðri afkomu

 Nýherji tapaði 432 milljónum á fyrri hluta ársins, samanborið við 209 milljóna hagnað á sama tíma í fyrra. Afkoma af kjarnastarfsemi Nýherja og starfsemi Applicon erlendis er sögð hafa verið ágæt, en afkoma af fjárfestingum í nýrri starfsemi undir væntingum. 455 milljóna gengistap var á tímabilinu.

Afkoman af rekstri er ágæt að öðru leit en því að það er tap á honum.  Hver skilur þetta?


mbl.is Nýherji tapaði 432 milljónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hraðakstur

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði fimm ökumenn, sem urðu uppvísir að því að aka of hratt í gærkvöldi og nótt. Sá sem hraðast ók var á 160 km/klst. á Reykjanesbrautinni. Þá var einn ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Hvað er eiginlega að þessu fólki, tók það aldrei bílpróf og veit ekki hvað skilti sem á stendur 90 þýðir.  Ég held að það verði að setja upp hraðamyndavélar á nokkrum stöðum á Reykjanesbrautinni eins og búið er að gera hérna á Sandgerðisvegi og Garðsvegi.  Kunningi minn sem var að koma til Sandgerðis gleymdi myndavélinni og var eitthvað yfir 90 km hraða og skömmu seinna fékk hann gíróseðil í pósti með sekt upp á 30 þúsund.  Svo hækkar þetta í áföngum ef bíll þeirra kemur á mynd aftur.  Hann hafði samband við sýslumannsembættið á Blönduósi, sem sér um að innheimta þessar sektir og bað um frest í 2 vikur til að borga þetta.  Konan sem svaraði í símann var virkilega hissa og spurði hvort hann vildi ekki skipta þessu meira niður, en hamm ætlaði bara að borga þetta í einu lagi.  Miðað við viðbrögð konunnar virðist það vera opinn leið að svona sekti sé hæg að fá talsverða greiðsludreifingu á.  Þar með er búið að minnka áhrif sektarinnar, því mörgum munar verulega um að þurfa að greiða þetta strax en og passa sig þá betur en ef hægt er að dreifa þessu á eitt ár eða meira finnur viðkomandi lítið fyrir því.


mbl.is Á 160 á Reykjanesbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. júlí 2008

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband