23.7.2008 | 16:19
Tombólur
Börn hafa löngum verið dugleg við að styrkja Rauða Krossinn með því að halda tombólur. Oft má sjá þau við stórmarkaði eða á götum úti þegar veður er gott og bjóða þá ýmsan varning til sölu eða eru með tombólu. Rauði Krossinn lætur ágóðann renna til fátækra barna svo þarna eru börn að safna fyrir börn.
Ég dáist alltaf að þegar börnin eru að að halda þessar tombólur og virðingarvert af Morgunblaðinu að birta alltaf myndir og nöfn barnanna þegar þau afhenda peningana sem þau hafa safnað. Börnin eru svo einlæg í þessu starfi sínu og ég hef þann sið að versla alltaf á tombólum hjá börnum. Ég kalla það ekki minna afrek að börn skuli í sumar hafa látið Rauða-krossinn hafa kr. 70.000,- en þótt einn auðmaður gefi nokkur hundruð milljónir. Sá ríki er að kaupa sér ímynd en börnin ekki.
![]() |
Tombóla tombóla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.7.2008 | 16:10
Radowan Karadizic
Radovan Karadzic, sem er sakaður um þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyninu, hyggst verja sig sjálfur þegar stríðsglæpadómstóllinn í Haag mun rétta í máli hans. Frá þessu greindi lögmaður Karadzic í dag.
Hann klárar það örugglega karlgreyið enda skipta varnir engu máli hjá þessum dómstól. Það er löngu búið að ákveða niðurstöðuna áður en réttarhöld hefjast. Hefur fólk virkilega trú á að heimurinn batni þótt eitt gamalmenni verði líflátið, það er þá ekki mikið að. Það eina sem upp úr þessu hefst er að nú blossa upp aftur deilur þjóðarbrota í fyrrum Júkóslavíu þar sem sæmilegur friður var þó komin á. Þessi réttarhöld eiga eftir að kosta mörg saklaus mannslíf.
![]() |
Hyggst verja sig sjálfur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.7.2008 | 15:59
Hús rifið
Hafist var handa í dag við að rífa hús Stálsmiðjunnar við Mýrargötu í Reykjavík. Framkvæmdir við endurnýjun götunnar hófust í lok mars. M.a. er gert ráð fyrir að timburkirkja í rússneskum stíl rísi við götuna á vegum rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar hér á landi.
Þá eru horfin öll þau mannvirki sem aldarmótamennirnir byggðu upp við Reykjavíkurhöfn af stórhug, reyndar er slippurinn sjálfur eftir en hann mun eiga að fara upp á Grundartanga. Einnig tókst að bjarga gamla Alliace húsinu en þá varð að hafa þar verslun. Það má helst ekkert sjást við Reykjavíkurhöfn sem minnir á sjósókn eða fisk nema í formi safna. Var nú ekki hægt að finna aðra lóð fyrir timburkirkju í rússneskum stíl en einmitt þarna. Síðan er Laugavegurinn heilagur þar má ekki hreyfa við neinum kofa og verðlaunatillagan um nýtt hús fyrir Listaháskóla Íslands sem byggja á við Laugaveg er ekki nógu ljót og gamaldags svo hægt verði að nota hana.
Hvað er eiginlega að í Reykjavík er fólk búið að gleyma að hún byggðist upp vegna öflugrar útgerðar og fiskvinnslu. Verður kannski það næsta að banna að fiskiskip komi í þessa höfn, það kæmi ekki á óvart.
![]() |
Hús Stálsmiðjunnar rifið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.7.2008 | 15:43
Grandi hf.
Guðmundur A. Birgisson, hefur selt nær allan hlut sinn í Granda, eða rúmlega 2,7 milljónir hluta á genginu 10,5 og fær þá tæpar 29 milljónir króna fyrir söluna.
Það er betra að eiga 29 milljónir í peningum en smá hlut í einum af risunum í íslenskum sjávarútvegi. Þar sem Guðmundur átti aðeins 2,7 milljónir í félaginu gat hann í mesta lagi vænst að fá 10% arð og arður er alltaf reiknaður af nafnverði þetta hefði því orðið 270 þúsund en nú bjóða sumir bankar 15% innlánsvexti á ákveðnum reikningum og ef hann leggur inn á einn slíkan fær hann 435 þúsund í vexti á ári. Skynsamur maður hann Guðmundur A. Birgisson.
![]() |
Selur nær allan hlut sinn í HB Granda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.7.2008 | 15:29
Lopapeysur
Sala á lopapeysum hefur rokið upp úr öllu valdi vegna lágs gengis íslensku krónunnar. Prjónakonur landsins keppast við en samt er svo komið að skortur er á lopapeysum í algengum stærðum.
Það er mjög ánægjulegt að fá svona jákvæðar fréttir í öllu krepputalinu. Látum alla hagfræðinganna fara að prjóna lopapeysur þar myndu þeir gera mest gagn fyrir íslenskt efnahagslíf.
![]() |
Krónan niður ullin upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.7.2008 | 15:25
Icelandair Express
Iceland Express mun í september taka í notkun tvær Boeing 737-700 flugvélar. Það er Astreus Airlines, systurfélag Iceland Express, sem á og rekur vélarnar sem koma í stað MD90 vélanna sem flogið hafa fyrir Iceland Express.
Það er enga uppgjöf að sjá á þessu félagi og þessi vélaskipti er vegna hækkandi eldsneytisverðs en nýju vélarnar eyða mun minna en þær eldri. Þar sem félagið er ekki með flugrekstrarleyfi á Íslandi þarf annað félag með slíkt leyfi að reka vélarnar að nafninu til.
Til hamingju Icelandair Express.
![]() |
Iceland Express fær tvær Boeing 737 vélar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.7.2008 | 15:17
Gömul skip
Tvö af af elstu skipum Samherja komu nýlega úr sinni síðustu veiðiferð eftir langan og farsælan feril hjá félaginu. Eru þetta Norma Mary, áður Akureyrin EA-110, og Víðir, áður Apríl HF. Skipin stunduðu bæði bolfiskveiðar og ár eftir ár hafa þau verið meðal þeirra íslensku skipa sem skilað hafa mestu aflaverðmæti.
Þetta eru að verða örlög okkar skuttogaraflota sem eitt sinn taldi yfir 100 skip eitt af öðru fara þau í brotajárn en sem betur fer hefur Samherji hf. verið kraftmikill í að endurnýja sinn flota og þetta mun vera liður í því. Síðan eru margir aðrir togarar bundnir við bryggju vegna kvótaleysis og hins háa olíuverðs. Ég held að þetta háa olíuverð leiði til þess að skuttogaraútgerð leggst af á Íslandi. á komandi árum.
![]() |
Síðasta veiðiferðin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.7.2008 | 14:52
Grásleppuveiðar
Mig hefur oft dreymt um að vera ríkur og gert margar tilraunir til þess. 1975 var ég að vinna í fyrirtækinu Matvælaiðjan hf. á Bíldudal en þá hafði dregið mjög úr rekstri þess fyrirtækis og aðeins unnin rækja. Föðurbróðir minn, Kristján Ásgeirsson var þarna framkvæmdastjóri og einnig annar frændi minn Jörundur að nafni að vinna þarna. Um vorið gengum við þá hugmynd að fara í grásleppuútgerð og verkun og allt benti til að þetta yrði stórgróða fyrirtæki. Kristján pantaði öll veiðarfæri frá SÍS og hrognatunnur og allt var þetta tekið út í reikning sem yrði síðan gerður upp með væntanlegri sölu á grásleppuhrognunum. Þegar vinnu lauk í rækjuvinnslunni á daginn fórum við félagar að setja upp netin og unnum oft fram á kvöld. Svo kom að því að allt var klárt. Matvælaiðjan átti á þessum tíma 3 báta og völdum við minnsta bátinn Hólmaröst BA-37 11 brl. til veiðanna. Það var ákveðið að Jörundur yrði skipstóri, ég vélstjóri og Kristján óbreyttur háseti.
Svo rann stóra stundin upp að farið var á sjó til að leggja netin og fórum við yst í Arnarfirðinum og lögðum fram af Selárdal einnig lögðum við nokkrar trossur norðan megin við Lokinhamra og fórum síðan í Geirþjófsfjörð með tvær trossur. Við létum þetta liggja í 2-3 daga en þá var farið á sjó til að draga. Við byrjuðum að draga við Selárdal og var þokkalegur afli þar. Ekki höfð'um við neitt spil til að draga netin og drógum við Kristján þetta á höndum en Jörundur var við stjórn í stýrishúsinu og andæfði bátnum.Þegar við höfðum lokið við að draga og leggja aftur við Selárdal var farið yfir að Lokinhömrum og dregið þar en afli var lítill svo við ákváðum að leggja þær trossur við Selárdal. Þá áttum við eftir trossurnar í Geirþjófsfirði og þar sem þangað var talsvert stím sagðist Kristján að hann ætlaði að fara niður í lúkar og laga kaffi og eftir smástund sá ég að vel rauk úr reykháfnum, en eftir smástund kallar Kristján á mig og réttir mér fötu og biður mig að setja sjó í hana. Ég spurði undrandi hvað ætlar þú að gera, ekki ferðu að laga kaffið með sjó. Nein,nei sagði hann það eru smávandræði það er kviknað í lúkarnum og ég sá reyk leggja upp á dekkið. Ég rétti honum fötuna og spurði hvort þetta væri nóg. Já, já sagði hann ég er líka með vatn til að skvetta á eldinn. Svo kom að því að Kristján kallaði á mig í kaffið og fór ég niður og sátum þar og spjölluðum lengi saman. Eftir góa stund heyrðist kallað úr stýrishúsinu með valdsmannslegri röddu; "Á dekk strákar við erum að verða komnir". Þá fórum við upp og vorum þá að sigla inn Geirþjófsfjörðinn. Jörundur skipaði okkur að svipast eftir baujum svo hægt væri að byrja að draga. En allt í einu er eins og högg komi á bátinn og hann stoppar og við Kristján duttum flatir á dekkið. Hvað er nú að ske sagði skipstjórinn? Kristján leit út fyrir borðstokkinn og sá þá að báturinn var strandaður. Við höfðum sem sagt lagt netin á flóði en nú var háfjara og það fellur mikið út í þessum firði og við sáum í kíkir okkar baujur sem lágu flatar á þurrum botni. Það var sama hvað við reyndum að losa bátinn að ekkert gekk og urðum við því að bíða eftir flóði og gátum þá dregið netin og ákváðum við að leggja ekki þarna aftur heldur fórum heim og næst þegar við fórum að Selárdal lögðum við þessar trossur þar líka og vorum nú með öll netin á sama svæði. Hrognin verkuðum við sjálfir og í vinnslusal Matvælaiðjunnar.
Þegar við höfðum verið við þetta í um 2 mánuði og búnit að fá á milli 20-30 tunnur gerði mikið hvassviðri af NA og næst þegar við fórum að draga voru netin full af þara og drullu. Urðum við því að taka þau öll í land til að láta þetta þorna svo betra væri að hrista þarann úr. En það dróst stöðugt að við byrjuðum á því verki. Þegar netin höfðu hangið utan á hjalli yst í þorpinuí um 2 mánuði fréttum við að nokkrar rollur hefðu flækt sig í netunum og drepist. Eigandi hafði þeirra skorið allt í tætlur. Var því lokaverkefnið hjá okkur í þessari útgerð að aka leifarnar af netunum og fara með til brennslu á sorphaugum Bíldudals. Við urðum að greiða bætur fyrir rollurnar sem drápust og þegar öll hrognin höfðu verið seld og lokauppgjör kom frá SÍS vorum við í skuld sem enn er ógreidd.
Ég hef aldrei síðan reynt við grásleppuútgerð eða verkun og aldrei orðið ríkur maður hvað peninga varðar.
23.7.2008 | 11:00
Ekki bara Mest
að var ekki bara fyrirtækið Mest sem Glitnir hirti bestu molana frá upp í skuldir. Nú hefur verið byrjað að hrærara í eignasafni Hannesar Smárasonar og Landsbankinn hefur tekið Oddaflug ehf. sem nú heitir EO-fjárfestingarfélag en aðaleign þess félags er í félaginu Stoðum sem aftur á stóran hluti í Baugi. Þá hefur Byr-sparisjóður tekið frá Hannesi félagið Prímus sem nú heitir FI-fjárfesting en helstu eignir þess félags eru stór hlutur í Húsasmiðjunni, stór hlutur í Apple-umboðinu, og í Hótel Búðum og talsverður hlutur í Byr. Er því búið að hirða af Hannesi mest af hans eignum í fyrirtækjum.
Því er spáð að slíkum atburðum eigi eftir að fjölga mjög á næstu mánuðum að bankar hirði bestu molana úr hverju fyrirtækinu á eftir öðru og þeir sem fyrir nokkrum síðan voru taldir vera moldríkir menn, sem gætu gleypt allt það sem þá langaði í, séu nú fátæklingar.
Það hefur verið í fréttum að talsverður samdráttur hefur orðið í smásöluversluninni en stórmarkaðirnir ætli að bíða fram yfir verslanamannahelgi með hópuppsagnir. Enda væri það álitshnekkir fyrir alla verslun ef hópuppsagnir væru rétt fyrir verslunarmannahelgi.
23.7.2008 | 10:13
Húsbyggingar
Bloggfærslur 23. júlí 2008
Færsluflokkar
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
2006
Tenglar
Ýmsir tenglar
- Arnfirðingur
- Bíldudalur
- Bolungarvík
- Bæjarins besta á Ísafirði
- Guðrún Rebekka Jakobsdóttir Edinborg
- Falið vald
- Flateyri
- Frjálslyndi flokkurinn
- Ísafjörður
- Júdit Krista Jakobsdóttir, Bíldudal
- Kristinn Ásgeirsson, Danmörku
- Kristinn H. Gunnarsson
- KVÓTASVINDLIÐ MITT
- Mats Wibe Lund
- Óvinir Ísland
- Skipamyndir Þorgeir Baldursson ljósmyndari
- Suðureyri
- Strandabyggð
- Súðavík
- Tálknafjörður
- Tíðis-fréttavefur
- Vesturbyggð
- VÍSIR.IS
SKIPAMYNDIR
- Fiskistofa Ýmsar upplýsingar
- Gísli Reyisson Aflafréttir
- Hafþór Hreiðarsson Skipamyndir
- Ragnar í Grindavík Skipamyndir
- Skip.is Ýmsar upplýsingar
- Þorgeir Baldursson SKIPAMYNDIR
- http://
Bloggvinir
-
Adda bloggar
-
Ágúst H Bjarnason
-
Albertína Friðbjörg
-
Alma Jenny Guðmundsdóttir
-
Anna
-
Anna Guðný
-
Anna Heiða Stefánsdóttir
-
Anna Pálsdóttir! :)
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Apamaðurinn
-
Arinbjörn Kúld
-
Ásgerður Jóna Flosadóttir
-
Arnlaugur Helgason
-
Arnþór Helgason
-
Ársæll Níelsson
-
Ásdís Rán
-
Ásgeir Jóhann Bragason
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Ásgeir Sveinsson
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Baldur Smári Einarsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bara Steini
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Birna M
-
Bjarney Bjarnadóttir
-
Bjarni Baukur
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Bjarni Kjartansson
-
Baldur Hermannsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Bjarki Þór Guðmundsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Björgvin S. Ármannsson
-
Björgvin Guðmundsson
-
Björn Leví Gunnarsson
-
Björn Finnbogason
-
Bragi Sigurður Guðmundsson
-
Bragi Sigurðsson
-
Hommalega Kvennagullið
-
Bwahahaha...
-
Davíð Pálsson
-
Davíð S. Sigurðsson
-
Didda
-
Dunni
-
Edda Agnarsdóttir
-
Edda Sveinsdóttir
-
Eggert Þór Aðalsteinsson
-
Egill Jón Kristjánsson
-
egvania
-
Einar B Bragason
-
Einar Kristinn Guðfinnsson
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Eiríkur Sjóberg
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Emil Örn Kristjánsson
-
J. Einar Valur Bjarnason Maack
-
Elín Margrét Guðmundsdóttir
-
Evrópusamtökin, www.evropa.is
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
-
FF
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Faktor
-
Fannar frá Rifi
-
Finnur Bárðarson
-
Fjarki
-
Friðrik Höskuldsson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Georg Birgisson
-
Gestur Guðjónsson
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnar Þór Ólafsson
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Guðjón Heiðar Valgarðsson
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Guðjón Ó.
-
Guðmundur St Ragnarsson
-
Guðmundur Zebitz
-
Guðni Gíslason
-
gudni.is
-
Guðrún Hafdís Bjarnadóttir
-
Guðrún Jónína Eiríksdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðrún Una Jónsdóttir
-
Guðrún Helgadóttir
-
Guðrún S Hilmisdóttir
-
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gísli Sigurðsson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Haffi
-
Hafrún Kristjánsdóttir
-
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
-
Halla Rut
-
Halldór Sigurðsson
-
Halldór Örn Egilson
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Hallur Magnússon
-
Haraldur Bjarnason
-
Haraldur Davíðsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Heimir Lárusson Fjeldsted
-
Heiður Helgadóttir
-
Helga Dóra
-
Helga Sigrún Harðardóttir
-
Helga Þórðardóttir
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Himmalingur
-
Hilmar Sæberg Ásgeirsson
-
hilmar jónsson
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Hjalti Sigurðarson
-
Hjartagullin mín
-
Hinrik Þór Svavarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Hlekkur
-
Huld S. Ringsted
-
Hólmdís Hjartardóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
hreinsamviska
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Hörður Halldórsson
-
Hörður Hilmarsson
-
Hvíti Riddarinn
-
Ingunn Jóna Gísladóttir
-
Ingvar Valgeirsson
-
Jakob Kristinsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jens Guð
-
Jens Sigurjónsson
-
Jóhannes Jónsson
-
Jóhanna Fríða Dalkvist
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jóhannes Þór Skúlason
-
Jón Baldur Lorange
-
Jón Halldór Eiríksson
-
Jón Kristófer Arnarson
-
Jón Finnbogason
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Jónína Benediktsdóttir
-
Kama Sutra
-
Karl Tómasson
-
Karl V. Matthíasson
-
Katrín
-
Kjarri thaiiceland
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristinn Sigurjónsson
-
Kristinn Theódórsson
-
Kristján Pétursson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Lilja Skaftadóttir
-
Lovísa
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Lýður Árnason
-
Maddý
-
Magnús Þór Friðriksson
-
Margrét Sigurðardóttir
-
Marinó Hafnfjörð Þórisson
-
Magnús H Traustason
-
Marinó Már Marinósson
-
Marzellíus Sveinbjörnsson
-
Morgunblaðið
-
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
Natan Kolbeinsson
-
Níels A. Ársælsson.
-
Ólafía Margrét Guðmundsdóttir
-
Ólafur Þór Gunnarsson
-
Ólafur Tryggvason Þorsteinsson
-
Ólafur Ragnarsson
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Ólafur Tryggvason
-
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
-
Ólöf de Bont
-
Óskar Helgi Helgason
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Paul Nikolov
-
Páll Höskuldsson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
percy B. Stefánsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Borgþórs
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Ragnhildur Jónsdóttir
-
Ragnhildur Sverrisdóttir
-
Regína R
-
Ruth
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Rúna Guðfinnsdóttir
-
Rögnvaldur Þór Óskarsson
-
Samtök Fullveldissinna
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
-
Sigríður Hafdís Þórðardóttir
-
Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir
-
Sigurður Haukur Gíslason
-
Sigurður Jón Hreinsson
-
Sigurður Jónsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Snorri Bergz
-
Sigurjón Sveinsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Þorsteinn Briem
-
Steinþór Ásgeirsson
-
Svartagall
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sævar Einarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sólveig Aradóttir
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
TARA
-
Tiger
-
Tinna Eik Rakelardóttir
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valbjörn Júlíus Þorláksson
-
Valdimar Leó Friðriksson
-
Valan
-
Vefritid
-
Vestfirðir
-
Viggó H. Viggósson
-
Vilborg Auðuns
-
Þórbergur Torfason
-
ÞJÓÐARSÁLIN
-
Þórhallur Heimisson
-
Þórhallur Pálsson
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Þórir Kjartansson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Þór Jóhannesson
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Jón V. Þorsteinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 2
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 802125
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 24.1.2010 Jakob Kristinsson er látinn.
- 21.1.2010 Spakmæli dagsins
- 21.1.2010 Obama
- 21.1.2010 Icesave
- 21.1.2010 Mótmælendur ákærðir
- 21.1.2010 Norwegian
- 21.1.2010 Kaninn og RÚV
- 21.1.2010 Látinn laus
- 21.1.2010 Kína
- 21.1.2010 Hvað vill félagsmálaráðherra?
184 dagar til jóla
Nýjustu færslurnar
- Er ekki allt í lagi eða hvað?
- "Við erum hér til að taka yfir" Og þá trúi ég þér
- Álitsgafi Vísis út í móa?
- Hótað lífsláti
- Eignaupptaka ríkisins er skær sósíalismi
- Heimsfriður í húfi
- Jóhönnustjórnin 2 mun gera nákvæmlega það sama og Jóhönnustjórnin 1
- Júnískákmótið á fimmtudaginn.
- Markmið Viðreisnar
- 177 Íslendingar hefðu enn verið ofanjarðar í árslok 2024