Nyhedavissen hætt.

Fyrsta forsíða Nyhedsavisen .Útgáfu danska fríblaðsins Nyhedsavisen hefur verið hætt og kemur blaðið ekki út á morgun. Var starfsfólki blaðsins tilkynnt þetta í pósti frá framkvæmdastjóra blaðsins og ritstjóra í kvöld. Dótturfélag 365, áður Dagsbrún, Dagsbrun Media í Danmörku hleypti Nyhedsavisen, af stokkunum en það er nú í meirihlutaeigu Morten Lund. Stoðir Invest minnkuðu hlut sinn í útgáfufélaginu í júlí, úr 49% í 15%

Það stóð ekki lengi þetta ævintýri og búið að eyða nokkrum milljörðum í.  Hvar eru nú allir fjármálsnillingar Íslands, sem öllu eiga að getað bjargað.?


mbl.is Útgáfu Nyhedsavisen hætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Guð til?

Michael Moore.Bandaríski kvikmyndagerðarmaðurinn Michael Moore er ekki óvanur því að valda fjaðrafoki með orðum sínum, og hefur hann nú vakið athygli með því að segja að fellibylurinn Gústav, sem stefnir á New Orleans, sé sönnun þess að Guð sé til vegna þess að bylurinn komi illa við repúblíkana, sem ætla að hefja landsfund sinn á morgun.

Flest er nú farið að kenna við Guð almáttugan.  Ef Guð er til hvers vegna ætlar hann að leggja sömu borgina í rúst og fyrir þremur árum?  Þetta er ekki sönnun heldur ágiskun hjá leikaranum.


mbl.is Segir Gústav sönnun þess að Guð sé til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eddie Murphy

Eddie Murphy.Bandaríski leikarinn Eddie Murphy leigði nýverið tvær einkaþotur til þess að fljúga með vini sína og ættingja til Grikklands. Leikarinn mun hafa lagt mikla áherslu á að fá tvær vélar til ferðarinnar, eina fyrir fullorðna fólkið, og aðra fyrir börn.

Hann er ekki blankur þessi náungi.  En svona hlutir geta ekki talist umhverfisvænir.


mbl.is Ekki mjög umhverfisvænn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretar

Breskir skrifstofumenn hafa lítið séð af sólskini í ágúst.Bretar kvarta sáran yfir sumrinu, sem nú er brátt á enda. Hefur blaðið Daily Mirror eftir veðurfræðingum, að skotvindar í háloftunum hafi verið of sunnarlega og beint til Bretlands veðri, sem í raun hefði átt að vera á Íslandi.

Ekki vorkenni ég þeim þótt þeir fái dæmigert Íslandsveður í eitt sumar.


mbl.is Bretar kvarta sáran yfir sumrinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

New Orleans

New Orleans minnir helst á draugabæBorgarstjóri New Orleans biðlaði í dag til allra þeirra sem ekki hafa forðað sér út úr borginni að gera það sem fyrst. Um leið tilkynnti hann um útgöngubann í borginni í nótt og að þeir sem brytu af sér yrðu fangelsaðir. Flestir hafa farið að óskum borgaryfirvalda og minnir borgin helst á draugabæ.

Þótt þessi fellibylur heit Gústa virðist hann ætla að vera jafn sterku og þeir sem báru kvennamannsnöfn,


mbl.is Draugabærinn New Orleans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússland

Lögregla í Rússlandi skaut í dag til bana eiganda vefjar sem gagnrýnt hefur yfirvöld harðlega, að því er samstarfsmenn hans greindu frá. Þetta gerðist í Ingúsetíu, sem er næsta hérað við Tétsníu, og kann að auka spennuna í héraðinu, þar sem fjölmargar árásir hafa að undanförnu verið gerðar á lögreglu og embættismenn.

Það er greinilegt að Rússland er að hverfa frá lýðræði yfir í einræði og fara aftur um mörg ár.  Verður kannski bæst að fara að lofsyngja Lenín og Stalín?  Það kæmi ekki á óvart.


mbl.is Lögregla skaut eiganda vefseturs til bana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rauði krossinn

Alþjóðlegum fundi landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans lauk á Selfossi síðdegis dag. Um 60 fulltrúar frá 25 landsfélögum og forystumenn Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans sóttu fundinn til að ræða málefni sem brenna heitast á Rauða kross hreyfingunni, og samhæfa mannúðaraðgerðir sínar.

Þessi samtök vinna mjög gott starf og því nauðsynlegt að halda fund til að samræma allar aðgerðir, svo hver sé ekki að þvælast fyrir öðrum.


mbl.is Alþjóðlegum fundi Rauða krossins og Rauða hálfmánans lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að busla í sjónum

Buslað í Skarðsvík á Snæfellsnesi Það er ekki að sjá að haustið sé í nánd. Þessi hressu börn frá Hellissandi létu sig ekki muna um að skella sér í sjóinn í Skarðsvík, þótt lofthitinn hafi verið 15 gráður og sjávarhitinn ekki nema 5 gráður. Þrátt fyrir það skemmtu börnin sér vel undir vökulum augum foreldra og nutu útiverunnar.

Þetta eru hraust og heilbrigð börn þarna á Hellissandi.


mbl.is Buslað í sjónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sátt

Guðjón Friðriksson„Ég bauð Guðjóni Friðrikssyni að setja athugasemd hans á vefsíðu mína, matthias.is, og vísa í hana úr dagbókarfærslunni. Hann samþykkti það og er því full sátt okkar á milli og málið úr sögunni. Ég fagna þeirri niðurstöðu,“ segir Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins.

Það er alltaf fagnaðarefni þegar menn ná sáttum í deilum.  Það er alltaf besta lausnin.


mbl.is Matthías Johannessen: Málið er úr sögunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flugmenn

Mynd 476617Sextán flugmönnum Icelandair hefur verið sagt upp til viðbótar við þá átta sem fengu reisupassann nýverið. Á aðeins þremur mánuðum hafa 112 flugmenn Icelandair misst vinnuna. Ástæðan fyrir uppsögnunum er sú að verkefni flugfélagsins í Venesúela var sagt upp

Þá eru þeir orðnir á annað hundrað flugmennirnir sem sagt er upp hjá þessu fyrirtæki á síðustu mánuðum. mánuðum.


mbl.is 16 flugmönnum sagt upp hjá Icelandair
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. september 2008

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband